Fréttablaðið - 11.09.2015, Síða 26
Friðrika Hjördís
Geirsdóttir
umsjónarkona Lífsins | rikka@365.is
Álfheimar 74 | 517 8500
Mikið úrval af
vönduðum og fallegum,
meðgöngu- og brjóstagjafafatnaði
ásamt fallegu barnavörunum okkar
Haustvörurnar eru
komnar í Tvö Líf
U
ndanfarnar vikur
hef ég verið að vinna
að þáttunum mínum
Hjálparhönd sem sýnd-
ir eru á Stöð 2. Þar fá
áhorfendur að kynnast þeim sem
gefa tíma sinn til hjálpar öðrum
á einhvern hátt. Laun þeirra sem
eru sjálfboðaliðar eru ekki mæld
í krónum og aurum heldur kær-
leiksríkum tilfinningum. Það er
hverjum manni hollt að hjálpa
náunganum og leggja sín lóð á
vogarskálarnar og búast ekki
við neinu til baka nema ánægj-
unni einni saman. Það kom mér
svo sem ekki á óvart að það fólk
sem ég hef kynnst á þessu ferða-
lagi eigi það sameiginlegt að vera
með stórt hjarta og sé innst inni
að fylgja ákveðinni köllun í líf-
inu. Það er gefandi að fá að kynn-
ast slíkum einstaklingum, það er
nefnilega ákveðinn kraftur í góð-
mennskunni. Þú safnar ekki ein-
ungis karmastigum með því að
koma vel fram við fólk heldur er
það beinlínis hollt fyrir líkama og
sál. Góðmennsku mætti á vissan
hátt hreinlega líkja við lífsnauð-
synlegt næringarefni fyrir hug
og hjarta. Öll getum við unnið að
því að vera betri hvert við annað
og liggur þá beinast við að byrja
á okkur sjálfum.
Hvernig bregstu við?
Þú og enginn annar stjórnar því
hvernig þú bregst við orðum
og hegðun annarra, þú ræður
því hvort þú takir því persónu-
lega eða látir eins og vind um
eyru þjóta og látir ekkert raska
þinni stóísku ró. Streita hefur
mikil áhrif á líf okkar og hvern-
ig við komum fram við aðra. Séu
einstaklingar undir miklu álagi
getur það komið fram í hvössum
orðasamskiptum og niðurrífandi
gagnrýni. Það er enginn nema þú
sem hefur stjórn á þínum huga og
getur vanið hann á að velja frek-
ar jákvæðar og uppbyggilegar
hugsanir. Þegar þú lendir í stöðu
þar sem þér finnst þú gjörsam-
lega vera að tapa þér, andaðu þá
að þér og reyndu að einbeita þér
að einhverju sem fær þig til að
líða vel. Það tekur tíma að venja
hug og líkama við nýjar venj-
ur. Gefðu þér að minnsta kosti
mánuð til þess að breyta hugar-
farinu.
Opnum augun
Góðmennska getur verið vand-
meðfarin því stór munur er á því
að vera góður við einhvern af
því að þú vorkennir viðkomandi
eða af því að þú lítur á einstak-
linginn sem jafningja og langar
hreinlega til að vera góður af því
að það fær lífið til þess að verða
einfaldlega skemmtilegra. Hrein
góðmennska felst líklega í því
að ætlast ekki til neins til baka
því engan verðmiða er hægt að
setja á tilfinningar en verðlaun-
in eru augljós.Gefum okkur tíma
til þess að opna augun og líta í
kringum okkur, er einhver þér
nákominn sem vantar hjálp eða
geturðu gefið hluta af tíma þínum
til hjálpar ókunnugum?
líFið mælir með
Útgáfufélag 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000
umsjón Friðrika Hjördís Geirsdóttir rikka@365.is l ábyrgðarmaður Kristín Þorsteinsdóttir
erlabjorg@365.is l auglýsingar Atli Bergmann atlib@365.is
Hönnun Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is l forsíðumynd Anton Brink
Lífið
www.visir.is/lifid
Nú þegar kólna fer í veðri þá
teygir maður sig gjarnan eftir
heitum drykk. til að verja gegn
flensu, kvefi og hita kroppinn er
þjóðráð að dreypa á jurtatei.
Í verslunum er hægt að kaupa
úrval af tei, bæði með jurta-
bragði en einnig til að seðja
sæta tóna því hægt er að fá te
með súkkulaði, kanil og lakkrís.
Hver og einn ætti að geta fund-
ið sér bragð við hæfi og njóta
þess að ylja kroppinn með bráð-
hollum heitum drykk.
tedrykkju
Hlín Reykdal skartgripahönn-
uður hlustar á fjölbreytta tóna
þegar hún fer í ræktina en lögin
eiga það öll sameiginlegt að
koma manni úr sporunum. fleiri
lagalista má finna á reikningi
Heilsuvísis á Spotify.
Younger
Seinabo Sey Kygo Remix
SoLo Dancing
indiana
StoLe the Show
Kygo
King
yeaRS & yeaRS
Fun
Pitbull
King Kunta KendRicK
lamaR
unicorn
baSement Jaxx
StanD StiLL
Flight FacilitieS maRio
baSanov Remix
BarBra StreiSanD
ducK Sauce
waLKing with
eLephantS
ten WallS
Tónar skarTa
sínu fegursTa
Góðmennska er
næringarefni sálarinnar
Þegar þú lendir í stöðu
þar sem þér finnst
þú gjörsamlega vera
að tapa þér, andaðu
þá að þér og reyndu
að einbeita þér að
einhverju sem fær þig
til að líða vel.
Heilsuvísir
2 • lÍfIÐ 11. SeptembeR 2015
1
1
-0
9
-2
0
1
5
0
6
:2
3
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
0
F
-E
5
B
4
1
6
0
F
-E
4
7
8
1
6
0
F
-E
3
3
C
1
6
0
F
-E
2
0
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
6
4
s
_
1
0
_
9
_
2
0
1
5
C
M
Y
K