Fréttablaðið - 11.09.2015, Blaðsíða 60

Fréttablaðið - 11.09.2015, Blaðsíða 60
Tryggið ykkur miða 565 5900 midi.is Sunnudagur 20. september kl 13.00 Sunnudagur 27 september kl 13.00 Sunnudagur 4. október kl 13.00 og kl 16.00 “Ég er enn með svo miklar harðsperrur í kjálkanum eftir hlátrasköllin að ég get ekki ennþá talað með góðu móti” Silja Aðalsteinsdóttir gagnrýnandi hjá TMM “Leikhúsgaldrar og töfrabrögð eru nýtt með frábærum hætti í sýningunni” Silja Huldudóttir gagnrýnandi hjá Morgunblaðinu Frábær skemmtun fyrir alla ölskylduna „Það er greinilega algjört litabókaæði á landinu núna, allt fullt af litabókahóp­ unum á Facebook, þar sem fólk skiptist á að sýna afraksturinn sinn, og sumir hengja myndirnar sínar upp á vegg, svo þetta er skemmtilegt listform,“ segir Elsa Nielsen, konan á bak við fyrstu íslensku litabókina, Íslensk litadýrð, sem væntanleg er í hillur bókabúða eftir um tvær vikur. Litabókin, sem er fyrir fullorðna, er stútfull af myndum sem Elísa hefur teiknað. Myndavalið er innblásið af íslenskri náttúru, dýr­ unum sem hér finnast og plöntunum. „Ég er ekkert endilega að fara að hertaka hillurnar í lundabúðum miðborgarinnar, þetta er ekkert síður hugsað fyrir íslenska lita­ bókaaðdáendur, því greinilega er eftirspurnin til staðar,“ útskýrir listakonan. Spurð um hvernig henni hafi komið til hugar að fara út í lita­ bókaframleiðslu skellir Elsa upp úr og segir svo: „Eftir að hafa verið dugleg með átakið Ein á dag, þar sem ég teiknaði eina mynd upp á hvern einasta dag og birti á Insta­ graminu mínu, kom vinkona mín færandi hendi frá útlöndum, og gaf mér svona litabók fyrir fullorðna og ég heillaðist. Verandi með litina endalaust í kringum mig, fékk ég þá flugu í höfuðið að gaman væri að gera svona alíslenska bók. Það er svo einhvern veginn þannig að ef ég fæ hugmynd, þá hjóla ég í hana. Áður en ég vissi var ég komin til Maríu hjá Eddu, og hún stökk á vagninn,“ útskýrir Elsa. Sjálf er Elsa grafískur hönnuður, svo hún er teiknandi lungann úr sólar hringnum. „Nei, ég fæ ekki leiða á þessu, í vinnunni teikna ég í tölv­ una, en hitt teikna ég með litum og blýanti,“ segir hún og bætir við: „ég er reyndar komin með dágott sigg­ safn á fingurna,“ og skellir rækilega upp úr. „Ég finn fyrir mikilli hugarró og slökun þegar ég lita svona og teikna, og ég held það sé einmitt það sem fólk heillast svona af, og orsakar þetta litabókaæði,“ bendir hún á, enda streituvaldar í öllum hornum í hröðu nútímasamfélagi. „Ég bíð bara spennt eftir að koma bókinni frá mér, svo fleiri geti notið. Hún er þessi neonlitaða, svo hún fer líklega ekki fram hjá neinum,“ skýtur þessi hressa listakona að í lokin. – ga Elsa teiknar meira og minna allan sólarhringinn, annars vegar á tölvur og hins vegar með litum. Hún þvertekur fyrir að fá ógeð. Fréttablaðið/Vilhelm Bókin sem eflaust á eftir að fá allnokkra til að slaka rækilega á, en bókin er sextíu og fjórar blaðsíður. Þessi hópur kinda myndi sannarlega sóma sér vel á veggjum þeirra sem gefa sér tíma til að lita hann. Litaglaðir munu geta litað Hvítserk eftir eigin hugmyndum. Hlúir að litabókasjúkum samlöndum Fyrsta alíslenska litabókin er rétt handan við hornið, innblásin af náttúru og dýrum, sem veitir sérlega hugarró. 1 1 . s e p t e m b e r 2 0 1 5 F Ö s t U D A G U r40 l í F i ð ∙ F r É t t A b l A ð i ð 1 1 -0 9 -2 0 1 5 0 6 :2 3 F B 0 6 4 s _ P 0 6 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 6 0 F -C 8 1 4 1 6 0 F -C 6 D 8 1 6 0 F -C 5 9 C 1 6 0 F -C 4 6 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 6 4 s _ 1 0 _ 9 _ 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.