Fréttablaðið - 30.07.2015, Page 2
30. júlí 2015 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 2
SAMFÉLAG „Við erum afskaplega
ánægð með áhugann sem aðilar
sýna Hveragerði og höfum beðið
eftir því að einhver sjái möguleika
á frekari uppbyggingu á staðnum,“
segir Aldís Hafsteinsdóttir, bæjar-
stjóri í Hveragerðisbæ, um nýsam-
þykkta beiðni frá félaginu First
ehf. um sex mánaða forgang að
byggingar lóð í Ölfusdal til bygg-
ingar heilsulindar.
„Hugmyndin samrýmist vel
stefnu bæjarfélagsins um uppbygg-
ingu heilsutengdrar ferðaþjónustu,“
segir Aldís. Bæjarráð Hvergerðis
samþykkti beiðnina á fundi sínum
á dögunum.
„Það er frábært að einstakling-
ar vilji nýta sér þá sérstöðu sem
Hveragerði hefur,“ segir Aldís sem
vonast til þess að verkefnið verði að
veruleika.
„Svæðið er í beinni sjónlínu frá
Kömbunum og þarna er rosalega
fallegt. Það er búið að gróðursetja
tugþúsundir trjáa og það stefnir allt
í að þetta verði ferðaparadís.“
Ólafur Sigurðsson, markaðs- og
þróunarstjóri First ehf., segir að
félagið hafi um nokkurt skeið unnið
að skoðun á þeim möguleika að setja
upp heilsulind á Íslandi.
„Ölfusdalur þótti álitlegur kost-
ur til að staðsetja slíka starfsemi
og eru margar ástæður fyrir því,“
segir Ólafur og nefnir góða stað-
setningu dalsins sem dæmi.
„Hveragerði er í leiðinni á marga
ferðamannastaði og svo er mikið af
fallegum gönguleiðum þarna.“
Nánar ganga hugmyndir First
ehf. út á byggingu 65 herbergja
host els auk fjölbreyttrar aðstöðu
fyrir náttúruböð.
„Á hostelinu verður gisting ódýr
og þarna verða
baðlón með heitu
vatni, leirböð
og gufuböð auk
aðstöðu fyrir við-
eigandi slökunar-
meðferðir,“ segir
hann.
Undirbún-
ingsvinna verk-
efnisins er langt
komin og að sögn Ólafs er unnið að
verkefninu í samstarfi við Emblu
verkfræðistofu og nokkra arki-
tekta.
Ólafur segir að bankar og aðrir
fjármögnunaraðilar hafi tekið vel
í hugmyndirnar og að heildarfjár-
festing sé áætluð um það bil einn og
hálfur milljarður.
„Í dag heimsækja 150.000 gestir
dalinn á ári og við reiknum með því
að fá 225.000 gesti á ári til okkar,“
segir Ólafur og bætir við að mark-
hópurinn sé einstaklingar á aldr-
inum átján til tuttugu og fimm ára.
„Þetta verður unnið í þremur
áföngum. Fyrsti áfanginn snýr að
bílastæðum og þjónustuhúsi sem
mun rísa á svæðinu. Annar áfangi
er böðin og sá þriðji er að byggja
hostelið,“ segir Ólafur sem stefnir
að því að svæðið verði tilbúið í maí
árið 2017. nadine@frettabladid.is
VEÐUR
SJÁ SÍÐU 24
Austan gola eða kaldi á landinu, bjart
með köflum og skúrir á stöku stað
síðdegis. Þeir sem verða snemma í því
og fara til Vestmannaeyja á morgun fá
óblíðar móttökur því þar verður allhvass
vindur og rigning af og til.
Skógarhlíð 18 • Sími 595 1000
www.heimsferdir.is t
B
irt
m
eð
f
m
eð
m
e
yr
irv
y
ar
a
u
p
re
m
p
re
nt
vi
l
nt
vi
l
n
lu
r.
lu
H
ei
m
s
H
ei
m
sf
er
ði
skás
k
r á
sk
iii
ðr
ét
ðr
ét
ð
érðrðrðrðððððð
a
g
aaaa
g
a
ggggggggg
tin
g
tin
gg
tin
á
sl
á
sl
á
sl
á
sl
á
s
ls
á
á
u.
u.
u.u.uuu
ík
u
ík
u
íkíkíí
h.
. h.
h.
h.
h.
h.hhhhhh
A
thhhhhthhhththhhhtht
A
tttttt
A
t
A
t
A
t
A
t
A
t
A
t
A
t
A
t
AAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAA
að
v
ee
að
v
e
að
v
e
að
v
e
að
aðaaaaaaa
eee
ð
g
e
rð
g
e
g
ee
g
e
g
eee
g
ee
g
e
g
eeee
rð
g
e
ð
g
e
rð
g
rð
tu
r bb
tu
r b
tu
r b
tu
rbbb
tu
r bb
tu
rbr b
tuuutuuutut
ys
t
re
ys
t
y
reer
án
f
á
n
ffffffy
rir
v
yr
iri
ar
a.
ar
a
ja
a a a a a jljiljili
rrr rr rrrrrrr rrrr rrr rr rér
rrrrrrérsésés
ttt tttt tttt
ét
t tt
ét
tttét
t
ét
ttttttét
t
ét
tttétététététététététéététééééééééééééééééééééééééé
leleel illil l ili
ððððððiððið
Kanarí
30. október í 18 nætur
Frá kr. 139.900
Haustferð fyrir eldri borgara til
Kr. 139.900
Netverð á mann m.v. 2 í íbúð með einu svefnherbergi á Don Diego.
SAMFÉLAG Fimmtíu og átta
manna hópur frá Íslandi er
staddur í Los Angeles í Banda-
ríkjunum þessa dagana í tilefni
af Special Olympics. Í íslenska
hópnum er 41 keppandi í níu
greinum. Special Olympics eru
íþróttaleikar fyrir fólk með
þroskahömlun.
Anna Karólína Vilhjálmsdótt-
ir, framkvæmdastjóri Speci-
al Olympics á Íslandi, segir að
keppnin hafi byrjað í fyrra-
dag og hafi haldið áfram í gær.
„Sumir eru að fá gullverðlaun
í fyrsta sinn á ævinni af því að
þeir eru að keppa við jafninga
sína,“ segir hún.
Anna Karólína segir þetta gott
dæmi um það hversu vel mótið
er skipulagt. „Það eru mörg
börn sem fara í gegnum grunn-
skóla og fá aldrei gullverðlaun.
Það eru mörg tilefni til að fagna
þarna úti,“ segir hún.
Að sögn Önnu Karólínu er
meginmarkmið Íslendinganna
að fagna.
„Þau fá verðlaun fyrir fyrsta
til þriðja sætið og svo borða fyrir
4., 5., 6., 7. og 8. og við fögnum
alveg eins mikið þeim sem koma
heim með áttunda sætið,“ segir
Anna Karólína en bætir því við
að gullið sé alltaf vinsælast.
„Þetta er sigurför, ekki síst
fyrir sjálfsmyndina,“ segir Anna
Karólína um ferð Íslendinganna.
- jhh
Á sjötta tug Íslendinga eru í Los Angeles þar sem Special Olympics fara fram:
Sigurför fyrir sjálfsmyndina
Fá forgang til að reisa
heilsulind í Reykjadal
Bæjarráð Hveragerðisbæjar samþykkti beiðni First ehf. um forgang að byggingarlóð
til byggingar heilsulindar í Ölfusdal. Hugmyndirnar ganga út á byggingu host els
auk fjölbreyttrar aðstöðu fyrir náttúruböð. Undirbúningur er kominn vel á veg.
SAMFÉLAG „Furðuleg afstaða. Þögn
og þöggun um samfélagsmein
kann ekki góðri lukku að stýra,“
segir Óli Kristján Ármannsson,
varaformaður Blaðamannafélags
Íslands, um bréf Páleyjar Borg-
þórsdóttur, lögreglustjóra í Vest-
mannaeyjum, sem hún sendi til
allra viðbragðsaðila.
Í bréfinu brýnir hún fyrir þeim
að upplýsa fjölmiðla ekki um
hugsanleg kynferðisbrot á Þjóðhá-
tíð í Vestmannaeyjum. Páley
leggur til að allir gæslumenn,
starfsmenn neyðarmóttöku, heil-
brigðisstarfsmenn, sjúkraflutn-
ingsmenn og allir sem komi að
þessum brotum svari fjölmiðlum
á þá leið að engin heimild sé til
þess að veita slíkar upplýsingar.
„Fjölmiðlar hafa mikilvægu
hlutverki að gegna í almennri
þjóðfélagsumræðu og við að þoka
hlutunum til betri vegar. Afstaða
sem þessi lýsir algjöru skilnings-
leysi á því hlutverki,“ segir Óli
Kristján. Hann er blaðamaður á
Fréttablaðinu.
Páley segir í bréfinu að fjöl-
miðlar vilji helst fjalla um kyn-
ferðisbrot og það sé þungbært
fyrir aðila kynferðisbrots að
málið sé á forsíðum blaðanna.
Jafnframt kemur fram í bréfi
Páleyjar að hún hafi ákveðið, í
samráði við áfallateymi Þjóðhá-
tíðar og félagsþjónustu Vest-
mannaeyjabæjar að lögreglan
muni ekki veita upplýsingar um
kynferðisbrot til fjölmiðla þessa
helgi frekar en gert er á öðrum
tímum. - ngy
FRAKKLAND Allt að fimm metra hátt eldhaf leikur um skóga í Suður-
Frakklandi nærri borgunum Cannes og Nice. Skógareldarnir eru
afleiðing mikillar hitabylgju, vinda og þurrka sem hafa leikið skóga
á svæðinu grátt. Einnig hafa skógareldar geisað á Spáni sem og víðar
í Suður-Evrópu. Slökkvilið á svæðinu segir í tilkynningu að ástandið
valdi áhyggjum og erfitt sé að koma í veg fyrir fleiri elda.
Þúsundir ferðamanna hafa þurft að yfirgefa sumarhús á svæðinu
sem hefur verið rýmt. - þea
Eldhaf ógnar lífi ferðamanna, heimamanna og skógardýra:
Skógareldar í Suður-Frakklandi
SLÖKKVISTARF Þessi flugvél slökkviliðsins varpar eldvarnarefni á bálið.
NORDICPHOTOS/AFP
ÓLAFUR
SIGURÐSSON
Í LOS ANG-
ELES Hluti
íslenska
hópsins sem
tekur þátt í
mótinu í Borg
englanna.
AÐSEND MYND
PÁLEY BORGÞÓRSDÓTTIR Í bréfi lög-
reglustjóra segir hún að fjölmiðlar vilji
helst fjalla um kynferðisbrot. MYND/AÐSEND
BANDARÍKIN Lögreglan í Minne-
sota í Bandaríkjunum rannsakar
nú líflátshótun sem barst tann-
lækninum Walter Palmer. Frá
þessu greindi Reuters í gær.
Tannlæknirinn vakti reiði
alþjóðasamfélagsins þegar hann
drap Cecil, vinsælt ljón í þjóð-
garði í Simbabve, á þriðjudag.
Drápið var ólöglegt en Palmer
segist hafa haldið það löglegt þar
sem hann greiddi þjóðgarðsvörð-
um fyrir leyfið. Palmer hefur
áður veitt dýr í útrýmingarhættu.
Fjöldi hefur mótmælt drápinu
og þá hafa margir lagt tuskudýr í
ljónslíki við innganginn að tann-
læknastofu Palmers. - þea
Ljónaveiðar í Afríku:
Tannlækni
hótað lífláti
Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum krafðist þagnar um kynferðisbrot á Þjóðhátíð í bréfi til viðbragðsaðila:
Segir afstöðuna þöggun um samfélagsmein
REYKJADALUR „Svæðið er í beinni sjónlínu frá Kömbunum og þarna er rosalega
fallegt,“ segir Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri Hveragerðisbæjar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Það er
frábært að
einstaklingar
vilji nýta sér
þá sérstöðu
sem Hvera-
gerði hefur.
Aldís Hafsteinsdóttir,
bæjarstjóri í Hveragerði
BANDARÍKIN „Ég gerði ekki einu
sinni neitt,“ voru lokaorð Banda-
ríkjamannsins Samuel DuBose,
sem lögreglumaður skaut til bana
í Cincinnati nítjánda júlí.
Myndband, tekið úr myndavél
sem var föst við brjóst lögreglu-
manns, var birt á vefnum í gær.
Þar sést lögreglumaður stöðva
bifreið DuBose og biðja hann um
að koma sér út úr bílnum. Því
næst heyrist í lögreglumanninum
skjóta DuBose, sem lést við skot-
ið. Lögreglumaðurinn sagði yfir-
mönnum sínum að hann hafi skot-
ið því DuBose hafi ekið af stað og
dregið hann með sér en í mynd-
bandinu sést að það er rangt. - þea
Lögreglumál vekur deilur:
Óvopnaður
skotinn í bíl
2
9
-0
7
-2
0
1
5
2
2
:2
8
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
5
9
8
-A
2
A
C
1
5
9
8
-A
1
7
0
1
5
9
8
-A
0
3
4
1
5
9
8
-9
E
F
8
2
8
0
X
4
0
0
1
B
F
B
0
6
4
s
C
M
Y
K