Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Fréttablaðið - 30.07.2015, Side 4

Fréttablaðið - 30.07.2015, Side 4
30. júlí 2015 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 4 Hilmar, á fólk að taka gullna bunu fyrir Gullna hringinn? Já, það er gulls ígildi að gera það. Hilmar J. Malmquist, forstöðumaður Nátt- úruminjasafns Íslands, vill að þeir sem ferðast um Gullna hringinn pissi áður en lagt er af stað. Hann segir skólpvatn sytra úr þróm Þingvalla og á vatnasvið þjóðgarðsins. UTANRÍKISMÁL Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sendi í gær forseta Indlands, Pranab Mukherjee, samúðarkveðjur frá sér og íslensku þjóðinni vegna and- láts fyrrverandi forseta Indlands, Abduls Kalam. Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsetaembættinu. Í kveðjunni minnist Ólafur Ragnar á heimsókn Kalams til Íslands árið 2005, sem var fyrsta heimsókn indversks þjóðhöfðingja til Íslands og reyndar til Norður- landa, og þakkaði þá vináttu og stuðning sem hinn látni forseti hefði sýnt Íslendingum og sam- vinnu Íslendinga og Indverja. - jhh Minntist heimsóknar Kalams: Samúðarkveðja til Indlands NEYTENDUR Verð á litaðri bátaolíu heldur áfram að lækka, samkvæmt mánaðarlegri athugun Landssam- bands smábátaeigenda. N1 er áfram með lægsta verðið og býður nú lítrann á 137,80 krónur. Það er 4,8 prósenta lækkun frá síð- ustu verðkönnun. Þá kemur fram í frétt sambands- ins að munur á hæsta og lægsta verði sé 2,75 prósent. Frá síðustu könnun hefur verð lækkað mest hjá N1, eða um 7 krónur. Sambandið mun halda áfram verðathugun og hvetur félagsmenn til að vera á verði varðandi afslætti sem fyrirtækin bjóða frá því verði sem hér er birt. - ngy N1 er með lægsta verðið: Bátaolía heldur áfram að lækka SMÁBÁTUR Frá síðustu könnun hefur verð lækkað mest hjá N1. SPURNING DAGSINS www.netto.is Kræsingar & kostakjör RE ÆFINGASETT 7.998 MIT NÁTTÚRUVERND „Það sem Hilm- ar Malmquist setur fram í grein sinni og í viðtali við Fréttablaðið í gær er þvættingur,“ segir Ólafur Örn Haraldsson, þjóðgarðsvörður á Þingvöllum. Ólafur vísar þar til aðsendrar greinar Hilmars, forstöðumanns Náttúruminjastofnunar Íslands, sem birtist í Fréttablaðinu í gær, þar sem hann segir að ráða þurfi bót á fráveitu skólps við Þing- vallavatn. Þar sytri skólpvatn úr þróm út í umhverfið og í Þing- vallavatn. Niturmagn aukist þannig í vatninu sem kunni að hafa alvarlegar afleiðingar fyrir allt lífríki vatnsins og hrein- og tærleika þess. „Vísbendingar um þessa þróun í Þingvallavatni eru því miður nú þegar fyrir hendi,“ skrifaði Hilmar. Hilmar lagði til að gestir sem heimsækja garðinn verði hvattir til að létta á sér heima, á hóteli eða í skipi áður en þeir mæta. Ólafur segir málflutning Hilm- ars spilla ásýnd þjóðgarðsins. „Hann hefur ekkert fyrir sér í þessu og engar upplýsingar til að styðja sitt mál. Það sem er rétt er að öllu skólpi og frárennsli er ekið í burtu og fer ekki út í jarðveginn. Einu staðirnir sem það gerist er á tjaldsvæðunum þar sem jarðveg- urinn er fimm metra þykkur og þar er fullgildur viðtakari þannig að það leitar ekkert út í Þingvalla- vatn,“ segir Ólafur. Þjóðgarðsvörður bætir við að allt annað frárennsli í þjóðgarð- inum sé keyrt í burtu sem kosti magar milljónir króna. Ólafur segir þær upplýsingar sem Hilmar byggi grein sína á séu margra ára gamlar og ekk- ert til í þeim. „Hann hefur engar mælingar hjá sér og veit ekkert hversu mikið kemur inn eða fer út.“ Ólafur segir að þjóðgarðurinn hafi verið í forystu um að bæta frárennslismál við Þingvallavatn. „Ekki bara hjá okkur heldur við allt vatnið. Við höfum hvatt til þess að það væri allt lagfært og haft forystu um að fá sveitarfé- lögin til að taka á þessum málum hjá sumarbústöðum.“ Ólafur segir tillögu Hilm- ars um að ferðamenn létti á sér fyrir komu í garðinn aulabrand- ara. „Maður segir ekki fólki að fara á klósettið áður en það fer í ferðalag. Hilmar er vís- indamaður sem við höfum stutt mjög rækilega við bakið á og svona aulabrandarar um jafn alvarlegt mál eru mjög óviðeig- andi,“ segir Ólafur að lokum. fanney@frettabladid.is Rangt að skólpvatn leki í Þingvallavatn Þjóðgarðsvörður á Þingvöllum segir skrif forstöðumanns Náttúruminjastofnunar Íslands, þar sem hann segir frárennslismál í þjóðgarðinum í ólagi, þvætting. Ekk- ert skólpvatn leki út í Þingvallavatn, allt frárennsli sé keyrt í burtu úr garðinum. STJÓNSÝSLA Höfuðstöðvar Fiski- stofu munu flytjast til Akureyr- ar um næstu áramót. Eyþór Björnsson fiskistofu- stjóri mun flytjast til Akureyrar og starfa þar ásamt starfsmönn- um sem þar eru fyrir, öðrum sem óska eftir flutningi norð- ur á Akureyri og nýjum starfs- mönnum sem ráðnir verða. Í til- kynningu frá ráðuneytinu segir að starfsmenn Fiskistofu sem nú starfa í Hafnarfirði muni hafa val um starfsstöð, á Akureyri eða í Hafnarfirði. Eyþór segir að starfsmenn Fiskistofu muni þurfa að fara í gegnum verkferla hjá sér. „Hvernig starfsstöðin getur gengið best í þessari dreifðu starfsemi. Og líka hvernig sam- skiptum innan stofnunarinnar verður háttað miðað við þessa nýju sviðsmynd.“ Eyþór býst ekki við stórkostleg- um breytingum á starfsmanna- hópnum. „Ég á ekki von á öðru en að það verði sami venjulegi stöðug leikinn og verið hefur. Eðli- leg starfsmannavelta hefur verið 6-11 prósent og ég á bara von á að það verði í þeim takti. Við erum núna komin í þá stöðu að það er enginn sem á það á hættu að þurfa að flytja norður eða hætta. Nú geta allir starfað hjá Fiski- stofu áfram,“ segir hann. Eyþór segir að það muni þurfa að ráða inn töluverðan fjölda á Fiskistofu á næstunni, því það hafi fækkað í hópnum. Eðlilegur starfsmanna- fjöldi, miðað við fulla mönnun, sé 73 til 74. - jhh Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur ákveðið að Fiskistofa starfi á Akureyri frá 1. janúar: Ráða hóp nýrra starfsmanna á Akureyri FERÐAMENN HALDI Í SÉR Ólafur Örn Haraldsson þjóðgarðsvörður á Þingvöllum segir það aulabrandara að leggja til að gestir Þingvalla létti á sér áður en þeir koma. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Hilmar er vísindamaður sem við höfum stutt mjög rækilega við bakið á og svona aulabrandarar um jafn alvarlegt mál eru mjög óviðeigandi. Ólafur Örn Haraldsson þjóðgarðsvörður á Þingvöllum. FISKISTOFA Ákvörðun ráðherra um að flytja stofnunina sætti harðri gagnrýni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI STJÓRNSÝSLA Svo kann að fara að boða þurfi til sérstaks hluthafa- fundar í Landsbankanum vegna áforma innan bankans um að byggja nýjar höfuðstöðvar. Að því er sagði í kvöldfréttum ríkissjón- varpsins í gær íhugar Bankasýsla ríkisins nú alvarlega að óska eftir slíkum hluthafafundi. Banka- sýslan fer með 98 prósenta hlut í Landsbankanum þannig að boðað verður til hluthafafundar óski Bankasýslan þess. Vestmanna- eyjabær hefur þegar óskað eftir slíkum fundi en á ekki nema 0,15 prósent í bankanum. Minnst 5 prósent eign þarf til að geta kraf- ist hluthafafundar. - gar Umdeildar höfuðstöðvar: Bankasýsla vill boða til fundar NEYTENDUR Matvælastofnun hefur innkallað sex tegundir af fæðubótarefnum tafarlaust, að kröfu heilbrigðisyfirvalda. Efnin eru ýmist með lyfjavirkni eða B-flokkaðar af Lyfjastofnun. Þau geti því fallið undir lyfjalög. Samkvæmt eiganda Dedicated hafa vörurnar verið teknar úr sölu í verslunum en ekki hefur enn borist dreifingarlisti frá fyrirtæk- inu. Það var eftir ábendingu frá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur til kollega sinna á Suðurlandi sem MAST greip til þessara ráða. - ngy Vörurnar teknar úr sölu: Innkalla sex fæðubótarefni AFGANISTAN Óljóst er hvaða áhrif fregnir af andláti Mohammeds Omar, leiðtoga talíbana í Afgan- istan, hafi á starfsemi talíbana. Í tilkynningu afgönsku ríkis- stjórnarinnar frá því í gær er greint frá andláti hans. Afgan- ar segja reyndar að Omar hafi verið látinn í rúmlega tvö ár en það hafi loks fengist staðfest núna. Mohammed Omar var leiðtogi talíbana í borgarastríðinu sem hófst eftir brotthvarf sveita Sovétríkjanna frá Afganistan árið 1989. Í kjölfar stríðsins tóku talíbanar völdin í landinu. Þá var Omar einnig náinn bandamaður Osama Bin Laden, fyrrverandi leiðtoga al-Kaída. Bandalag þeirra leiddi til inn- rásar Bandaríkjanna og banda- manna þeirra í Afganistan árið 2001 en í kjölfar innrásarinnar fór Omar í felur. Philip Mudd, háttsettur starfs- maður leyniþjónustu Bandaríkj- anna á árunum í kjölfar árásanna á Tvíburaturnana 11. september 2001, sagði það að elta Omar hafa verið líkt og að elta draug. Lítið er vitað um stjórn Omars yfir talíbönum. Frá því honum var steypt af stóli hefur hann aldrei birst opinberlega og öll ummæli eignuð honum hafa aðeins birst í rituðu formi, ekki með myndskeiði. Því er erfitt að segja til um hvaða áhrif andlát hans hafi á starfsemi talíbana. - þea Afganar tilkynntu í gær um dauða Mohammeds Omar, leiðtoga talíbana: Áhrif andláts Omars eru óljós LANDSBANKINN Höfuðstöðvar við höfnina vekja deilur. LÚMSKUR Einungis tvær myndir eru til af Mohammed Omar. Þó er ekki fullvíst að þær séu af honum. NORDICPHOTOS/GETTY 2 9 -0 7 -2 0 1 5 2 2 :2 8 F B 0 6 4 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 5 9 8 -B 6 6 C 1 5 9 8 -B 5 3 0 1 5 9 8 -B 3 F 4 1 5 9 8 -B 2 B 8 2 8 0 X 4 0 0 3 B F B 0 6 4 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.