Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Fréttablaðið - 30.07.2015, Síða 6

Fréttablaðið - 30.07.2015, Síða 6
30. júlí 2015 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 6 1. Hvað getur það varðað löngu fang- elsi fyrir fangavörð að stunda kynlíf með fanga? 2. Hvar á að reisa stærstu kalkþör- ungaverksmiðju landsins? 3. Hvert er vinnuheiti kvikmyndar sem Birgir Örn Steinarsson og Baldvin Z eru að skrifa handrit að? SVÖR: ATVINNUMÁL Engin lög hafa verið sett um daggæslu barna í heimahúsum. Ein reglugerð um málaflokkinn hefur verið sett samkvæmt ákvæði í lögum um félagsþjónustu sveitarfé- laga. Þetta kemur fram í skýrslu starfshóps á vegum menntamálaráðherra um leikskóla að loknu fæðingarorlofi. Í skýrslunni kemur fram að í reglugerð um daggæslu í heimahúsi sé ekki getið um hámarksaldur til að starfa sem dagforeldri en við 65 ára aldur er leyfi aðeins veitt til eins árs í senn. Barnavist, félag dagforeldra, hefur áhyggjur af því að í hópi dagforeldra eru ein- staklingar komnir yfir sjötugt og telur að setja ætti í lög eða reglugerð ákvæði um hámarks- aldur dagforeldra. Guðný Ólafsdóttir, talsmaður Barnavistar félags dagsforeldra, telur að það séu á bilinu fimm til tíu dagforeldrar starfandi í Reykjavík sem eru komnir yfir sjötugt. „En það eru fleiri sem eru komnir yfir 65. Þá hækkar talan eitt- hvað,“ segir hún. Guðný segir að reglugerðin um dagfor- eldra hafi verið endurnýjuð fyrir um það bil tíu árum og það sé virkilega kominn tími á endurbætur á henni, meðal annars um starfs- aldur og til að árétta ýmis önnur ákvæði. „Það eru til reglur um að þú þurfir að vera orðinn tvítugur til þess að mega starfa sem dagforeldri. Og okkur finnst ekkert rangt við það að hafa reglur hinum megin líka,“ segir Guðný og bætir því við að það sé ekki sjálf- gefið að dagforeldri komið yfir sjötugt geti starfað eitt síns liðs. „Ég veit að þeir eru mis- jafnir og sumir geta verið eldhressir. En það aukast líkurnar á því að eitthvað gerist eftir því sem við eldumst. Það er bara alveg eins og í öðrum störfum.“ Guðný segir að á höfuð- borgarsvæðinu vanti dagforeldra miðsvæðis og í Vesturbænum. Ekki í úthverfunum. Í skýrslu starfshópsins kemur einnig fram að í tólf sveitarfélögum á landinu sé eftir- liti með dagforeldrum ekki sinnt. Það eru smá sveitarfélög. „Þetta sló okkur svolítið,“ segir Björk Óttarsdóttir, formaður starfshóps- ins. Hún tekur þó fram að í sumum þessara sveitar félaga séu ekki starfandi dagforeldrar og börnin fari því beint á leikskóla eftir fæð- ingarorlof. Í skýrslunni kemur líka fram að starfs- hópurinn lét gera könnun um skipulag og kostnað sveitarfélaga vegna dagforeldra sem lögð var fyrir sveitarfélög haustið 2014. Þar kemur fram að 81% landsmanna býr í þeim 15 sveitar félögum sem sinna eftirliti þrisvar á ári eða oftar. Einungis 3% landsmanna búa í þeim 12 sveitarfélögum sem segjast aldrei sinna þessu eftirliti. Umsjón með daggæslu í heima- húsi heyrir undir fræðslusvið í þeim sveitar- félögum þar sem langflestir íbúar landsins eru búsettir. Í öðrum sveitarfélögum sér félags- þjónustan um þennan málaflokk. jonhakon@frettabladid.is Áhyggjur af dagforeldrum sem komnir eru yfir sjötugt Ekkert aldurshámark er sett á starfandi dagforeldra og eru nokkrir þeirra komnir yfir sjötugt. Félag dagfor- eldra hefur áhyggjur af þessu og vill breyttar reglur. Í tólf sveitarfélögum er ekkert eftirlit með dagforeldrum. 1. Allt að fjögurra ára fangelsi. 2. Súðavík. 3. Contalgin-börnin. Á RÓLÓVELLI Tals- maður Félags dagfor- eldra segir að á bilinu fimm til tíu dagfor- eldrar í Reykjavík séu yfir sjötugu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI MARÍNÓ Ég veit að þeir eru misjafnir og sumir geta verið eldhressir. En það aukast líkurnar á því að eitthvað gerist eftir því sem við eldumst. Guðný Ólafsdóttir, talsmaður Barnavistar. SAMFÉLAG Tvær stórar gasblöðrur birtust í aðflugsstefnu flugvélar sem var að koma inn til lendingar á Reykjavíkurflugvelli um hádegis- bil í gær. Lögreglan á höfuðborgarsvæð- inu rannsakar nú málið og óskaði eftir aðstoð almennings á Face- book-síðu sinni. Ekki varð árekst- ur við atvikið. Í tilkynningu frá lögreglunni segir að litlu hafi munað að illa færi og mátti ekki miklu muna að úr yrði alvarlegt slys. Talið er líklegt að blöðrunum hafi verið sleppt í Hljómskálagarð- inum. Þá segir í tilkynningunni að aðflug sé yfir Hljómskálagarðinn og að flugvélar fljúgi ansi lágt þar yfir, eins og oft hafi verið gagnrýnt af andstæðingum flugvallarins. „Maður á ekki að gera sér neitt í hugarlund en það fær þó ekkert okkur til að ætla að þetta hafi verið viljaverk,“ segir Þórir Ingvarsson, upplýsingafulltrúi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. - ngy Tvær gasblöðrur birtust í aðflugsstefnu flugvélar á Reykjavíkurflugvelli í gær: Blöðrur ollu næstum því flugslysi STJÓRNMÁL Ragnheiður Elín Árna- dóttir iðnaðar- og viðskiptaráð- herra lagði fram sextán lagafrum- vörp og eina þingsályktunartillögu á liðnu þingi. Þetta segir í tilkynn- ingu frá atvinnuvega- og nýsköp- unarráðuneytinu. Alls samþykkti þingið 13 frum- varpanna og þingsályktunartillög- una. Eitt þeirra frumvarpa sem ekki náðu fram að ganga verður lagt aftur fram á næsta þingi sem hluti af heildarendurskoðun laga um gististaði. - ngy Iðnaðar- og viðskiptaráðherra: Frumvarp um gististaði í haust SAMGÖNGUR Strætóferðir um helgina Á frídegi verslunarmanna, mánu- daginn 3. ágúst, mun Strætó keyra á sunnudagsáætlun. Hefðbundinn akstur verður aðra daga um verslunarmanna- helgina. Sérstakar aukaferðir verða milli Mjóddarinnar og Landeyjahafnar frá deginum í dag og fram á mánudag. Fargjaldið í þær ferðir er 4.000 krónur en ekki er hægt að panta sæti. ORKUMÁL Ségolène Royal, orku- og umhverfisráðherra Frakklands, heimsótti í gær verksmiðju Carbon Recycling International í Svarts- engi, í fylgd Ragnheiðar Elínar Árnadóttur, iðnaðar- og viðskipta- ráðherra, og föruneytis þeirra. Royal hefur undanfarna daga kynnt sér starfsemi fyrirtækja á Íslandi sem vinna að hagnýtingu jarðhita og annarra hreinna orku- gjafa, í boði utanríkis- og iðnaðar- ráðherra. Verksmiðjan er sú fyrsta sinnar tegundar í heiminum þar sem kol- tvísýringur er hagnýttur til fram- leiðslu á fljótandi eldsneyti. - ngy Orkuráðherra Frakklands á Íslandi: Skoðaði Carbon Recycling í gær SÉGOLÈNE ROYAL Kynnti sér starfsemi jarðfyrirtækja á Íslandi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN REYKJAVÍKURFLUGVÖLLUR Talið er líklegt að blöðrunum hafi verið sleppt í Hljómskálagarðinum. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR FRAKKLAND Franska lögreglan sendi liðsauka að Ermarsunds- göngunum í gær til að stemma stigu við fjölda flóttamanna sem reyna að komast til Bretlands um göngin. Níu flóttamenn sem hafa reynt að komast til Bretlands gegnum Ermarsundsgöngin hafa látist það sem af er ári. Síðasti flóttamaður- inn sem bættist í hóp hinna látnu var súdanskur maður á þrítugs- aldri sem varð fyrir flutningabíl þegar hann reyndi að komast inn í göngin. Talið er að allt að 37.000 flóttamenn hafi gert tilraun til þess að komast yfir til Bretlands á árinu. „Þetta ótrúlega flóttamanna- ástand hefur dramatískar afleið- ingar. Ástandið í Calais endur- speglar ágreininginn og kreppuna sem eru nú að slíta í sundur sam- félög sums staðar í heiminum,“ sagði Bernard Cazeneuve, innan- ríkisráðherra Frakklands, við blaðamenn í gær. Flóttamenn sem breska ríkis- útvarpið, BBC, náði tali af sögðu það líklegast til árangurs að ráð- ast að göngunum í stórum hópum, allt að 400 í einu. Öryggisgæsla við göngin hefur verið stórefld upp á síðkastið. Girð- ingar hafa verið reistar og eftir- lit með bílum sem ætla um göngin verið eflt. Eftirlitið hefur valdið því að biðraðir með allt að 3.600 bílum hafa myndast. Þá hafa flóttamenn klippt göt á girðingarnar. - þea Flóttamenn reyna að komast til Bretlands í gegnum Ermarsundsgöngin: Níu hafa látist það sem af er ári UMFERÐARTEPPA Langar biðraðir myndast nú við Ermarsundsgöng vegna mikils eftirlits. NORDICPHOTOS/AFP VEISTU SVARIÐ? Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is Jarðvegsþjappa og steinsög Stærð plötu: 400 x 550 mm Þyngd: 80 kg Mótor: Honda bensín 5,5 hö Miðflóttaafl á plötu: 1400 kg Mesti hraði áfram: 26 m/mín Víbratíðni: 93 Hz (fleiri stærðir á lager) Kletthálsi 7, Reykjavík Fuglavík 18, Reykjanesbæ Mac 16” Steinsög 5HP 149.900 m. VSK Oleo PC 1442 Shatal jarðvegsþjappa 210.900 m. VSK Vagn fáanlegur sér kr. 129.900 með vsk. 2 9 -0 7 -2 0 1 5 2 2 :2 8 F B 0 6 4 s _ P 0 5 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 5 9 8 -C A 2 C 1 5 9 8 -C 8 F 0 1 5 9 8 -C 7 B 4 1 5 9 8 -C 6 7 8 2 8 0 X 4 0 0 5 B F B 0 6 4 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.