Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Fréttablaðið - 30.07.2015, Side 8

Fréttablaðið - 30.07.2015, Side 8
30. júlí 2015 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 8 10.000 fara með Herjólfi til Vestmannaeyja um verslunar- mannahelgina. BANDARÍKIN Öldungadeild Banda- ríkjaþings mun í ágúst kjósa um hvort ríkisstjórnin eigi að hætta að styrkja einkareknu heilbrigðis- stofnunina Planned Parenthood um 500 milljónir Bandaríkjadala á ári. Frumvarpið kemur frá fjór- um repúblikönum. Planned Parenthood veitir konum ýmiss konar heilbrigðis- þjónustu á borð við leit að brjósta- krabbameini, getnaðarvarnir og fóstureyðingar. Stofnunin fram- kvæmir fleiri fóstureyðing- ar í Bandaríkjunum en nokkur önnur. Talið er að ef ríkið hætti að styrkja hana fari hún á hausinn. Frumvarpið kemur í kjölfar leka þriggja myndskeiða þar sem háttsettir stjórnendur Planned Parenthood ræða ólöglega sölu fósturvefs. Flutningsmenn frum- varpsins segja að ríkisstjórnin geti ekki stutt slíka starfsemi. Stofnunin hefur þó lýst því yfir að ekkert misjafnt hafi átt sér stað. Repúblikanar hafa nauman meirihluta í öldungadeildinni, 54 þingmenn af 100, og eru flest- ir þeirra andvígir fóstureyðing- um. 60 þingmenn þarf til að ríkið hætti stuðningnum. Nokkrir demókratar eru andvígir fóstur- eyðingum en spurning er hvort það dugi til. „Gangi ykkur vel. Við erum að fást við heilsu bandarískra kvenna en þau eru að fást við geð- bilun,“ sagði Harry Reid, leiðtogi demókrata á þinginu. - þea Repúblikanar berjast gegn kvenheilbrigðisstofnun: Vilja skera á stuðning STUÐNINGUR Þetta fólk krefst þess að ríkið hætti að styðja kvenheilbrigðisstofn- unina Planned Parenthood. NORDICPHOTOS/AFP STJÓRNMÁL „Ég gef ekkert fyrir það sem Árni Páll Árnason segir, hann talar svo rosalega mikið,“ segir Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra en formaður Samfylkingarinn- ar gagnrýndi í Fréttablaðinu í gær að ríkisstjórnin stæði ekki við eigin Evrópustefnu sem sett var fram í mars í fyrra. Innleið- ingar halli EES-tilskipana væri tvö prósent en átti að vera kom- inn undir eitt prósent á fyrri hluta þessa árs. Á sama tíma ættu engin dómsmál að vera rekin gegn Íslandi fyrir EFTA- dómstólnum vegna seinagangs við innleiðingar. Nú standa þrjú slík dómsmál yfir gegn Íslandi. „Við erum að sýna ákveðinn árangur en við mættum klárlega gera betur,“ segir Gunnar Bragi og bendir á að innleiðingarhall- inn hafi verið 3,1 prósent haustið 2014. „Auðvitað er vont að vera með mál fyrir EFTA-dómstólnum. Við stefnum engu að síður að því að fækka þeim en það tekur einfaldlega lengri tíma,“ segir Gunnar Bragi. Utanríkisráðherra segir Ísland eiga í mjög góðu sam- starfi við önnur Evrópuríki og nefnir sem dæmi heimsókn Ségolène Royal, orkumálaráð- herra Frakklands, til landsins í vikunni. - ih Utanríkisráðherra segir taka lengri tíma en til hafi staðið að draga úr innleiðingarhalla EES-tilskipana: Gefur lítið fyrir gagnrýni á Evrópustefnu GUNNAR BRAGI Utanríkisráðherra gefur lítið fyrir ásakanir um stefnuleysi í Evrópumálum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Dell mælir með Windows advania.is/skoli Guðrúnartúni 10, Reykjavík og Tryggvabraut 10, Akureyri Opið mánudaga til föstudaga frá 8 til 17 í skólanum an Heitasta Skoðaðu úrvalið af floum DELL tölvum á vefnum okkar, verð frá 69.990 kr. VIÐSKIPTI Íslensk olíufélög eru treg til að lækka eldsneytisverð og bíða yfirleitt þar til eitthvert þeirra tekur af skarið og lækkar olíuverð þó fullt tilefni geti hafa verið til verðlækkana um nokkra hríð. Þetta segir Runólfur Ólafs- son, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda. „Aðhaldið virðist ekki alveg koma sem skyldi í innbyrðis bar- áttu milli félaganna. Þetta er auðvi- tað fákeppnismarkaður svo aðhald- ið þarf stundum að koma utan frá,“ segir Runólfur og bendir á að fyrir hverja krónu sem álagning hækki fáist 350 milljónir króna úr vasa neytenda. Í gær hafði verð á bensíni hald- ist óbreytt frá 9. júní en á sama tímabili hafði verð á Brent-hráol- íu lækkað um 8,5 prósent. Þá hafði verð á dísilolíu haldist óbreytt frá 20. júní. Eftir að Fréttablaðið fór að spyrjast fyrir um hvort tilefni væri til verðlækkana hjá Skeljungi rétt fyrir hádegi í gær lækkaði olíu- félagið verð á bensíni um fjórar krónur og dísilolíu um sex krónur. Verð á bensíni hafði verið óbreytt hjá Skeljungi frá 6. júní og verð á dísilolíu frá 16. júlí. Hin olíufélögin fylgdu í kjölfarið og lækkuðu elds- neytisverð til jafns við Skeljung. „Ég var akkúrat að vinna í lækk- un þegar þú hringdir,“ sagði Heiðar Örn Gunnlaugsson, innkaupastjóri eldsneytis hjá Skeljungi, síðdegis í gær en hann hafði lítið viljað gefa upp um mögulegar verðlækkanir fyrr um daginn. „Það var byrjað að skoða þetta í gær, svo var ég bara að reikna þetta út í morgun,“ segir Heiðar spurður út í hvort verðlækkunin hafi haft langan aðdraganda. Þau svör fengust frá hinum olíu- félögunum að ástæða lækkunarinn- ar væri lækkun eldsneytisverðs hjá Skeljungi. Runólfur segir að svigrúm hafi verið til verðlækkunar um tals- verða hríð enda hafði verð á dísil- olíu í Danmörku lækkað um ríflega 9 krónur í júlí og verð á bensíni um annað eins. Heiðar segir að Skeljungur vilji helst ekki breyta verði of oft. „Sveiflurnar geta verið miklar milli daga svo maður reynir aðeins að sjá, hvort sem það er hækkun eða lækkun,“ segir hann. Runólfur segir að á Íslandi ætti markaðsumhverfið að vera líkt því sem gerist í Danmörku en þar fylgi eldsneytisverð breytingum á heimsmarkaðsverði mun betur en hér á landi. „Í sjálfu sér ættu að gilda alveg sömu lögmál hér af því að íslensku olíufélögin eru að kaupa stærstan hluta af sínu eldsneyti frá erlendum olíufélögum sem eiga birgðirnar hér heima og er því keypt á gengi hvers dags,“ segir Runólfur. ingvar@frettabladid.is Talsmaður FÍB segir olíufélögin of treg til að elta eldsneytislækkanir Framkvæmdastjóri FÍB segir íslensku olíufélögin bíða í lengstu lög með að lækka eldsneytisverð. Skeljungur lækkaði verð á bensíni og dísil- olíu eftir að Fréttablaðið spurðist fyrir um svigrúm til verðlækkana. Hin olíufélögin eltu. Segja sveiflur geta verið miklar milli daga. LÍTRINN LÆKKAÐUR Skeljungur lækkaði eldsneytisverð í gær eftir að Fréttablaðið spurðist fyrir um hvort tilefni hefði verið til verðlækkana. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Aðhald- ið virðist ekki alveg koma sem skyldi í innbyrðis baráttu milli félaganna. Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda. Sveiflurnar geta verið miklar milli daga svo maður reynir aðeins að sjá, hvort sem það er hækkun eða lækkun. Heiðar Örn Gunnlaugsson, innkaupa- stjóri eldsneytis hjá Skeljungi. SVONA ERUM VIÐ 2 9 -0 7 -2 0 1 5 2 2 :2 8 F B 0 6 4 s _ P 0 5 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 5 9 8 -D D E C 1 5 9 8 -D C B 0 1 5 9 8 -D B 7 4 1 5 9 8 -D A 3 8 2 8 0 X 4 0 0 7 B F B 0 6 4 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.