Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Fréttablaðið - 30.07.2015, Side 24

Fréttablaðið - 30.07.2015, Side 24
FÓLK|TÍSKA FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýs- endum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434 Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429 Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Manolo Blahnik er einn þekktasti skóhönn-uður samtímans. Í fjörutíu ár hafa skór eftir hann verið meðal eftirsóknarverðasta tískuvarningi heimsins og keppa sjónvarpsþátta- höfundar og stílistar stjarnanna um eintök af skóm eftir hann, sem yfirleitt eru aðeins framleiddir í takmörkuðu magni. Nú hefur Blahnik fært út kví- arnar með fallegum sparitöskum sem hann hannar í minningu frænku sinnar sem sagði hamingjuna felast í því að eiga „fullkomna handtösku í öllum heimsins litum“. Manolo Blahnik er fæddur og uppalinn á Kanaríeyjum og hafði frá unga aldri mikinn áhuga á skóm. Hann eltist við eðlur eins og jafnaldrar hans á eynni en hans aðaláhugamál var að hanna á þær skó úr skærlitum sælgætisbréfum. Þar mátti einnig greina ást hans á náttúrunni og gróðri sem má sjá merki um í allri hönnun hans. Móðir hans hafði mikinn áhuga á skóm og hún átti til að hanna og gera sína eigin skó ef henni fannst úrvalið ekki nóg í nærliggjandi verslunum. Hún hreifst af fín- legum og kvenlegum skóm með áberandi spennum og skrauti sem er nokkuð sem má sjá merki um í hönnum sonar hennar. Manolo var sendur til Genfar í Sviss í nám í stjórnmálafræði og lögum en skipti fljótlega um námsgrein og útskrifaðist með próf í bókmenntum og arkitektúr. Þá lá leiðin til Parísar þar sem hann lagði stund á nám í listum og leikmyndahönnun meðfram starfi í „vintage“-fatabúð. Þaðan lá leiðin til London þar sem hann vann hjá tískufyrirtæk- inu Zapata og skrifaði um karlmannatísku fyrir Vouge. Árið 1970 fékk hann tækifæri til að sýna hinni þekktu tískudívu Dianne Vreeland teikningar af hönnun sinni. Hún á að hafa sagt við hann í stuttu máli: „Ungi maður, gerðu skó.“ Manolo tók hana á orð- inu og brátt urðu skór eftir hann mjög eftirsóttir. Blahnik er skóskáld af öllu hjarta. Ekki bara teiknar hann skóna heldur smíðar hann frum- gerðirnar með eigin hendi. Þegar kemur að fjöldaframleiðslu fylgist hann grannt með til að tryggja að hver skór sé nákvæm eftirlíking af sköpunar- verki hans. Hann geymir allar frum- gerðirnar í tveimur samliggjandi húsum í heimabæ sínum, Bath á Englandi. Skór frá Manolo Blahnik hafa verið þekktir hjá tískuáhugafólki áratugum saman en nafnið varð hins vegar ekki á allra vörum fyrr en sjónvarpsþættirnir Sex and the City hófu göngu sína, en sem kunnugt er var Carrie Brad shaw, aðalsöguhetja þáttanna, með alvarlegt og að því er virtist óseðj- andi Blahnik-blæti. Í einu atriði er hún rænd og þjófurinn fer fram á að fá „Manolo“-ana hennar, en þarna er vörumerkið orðið svo þekkt að það þarf ekki að vísa nánar til þess sem um er rætt. Manolo Blahnik hefur verið búsettur í Bretlandi í hálfa öld og hefur hlotið heiðursorðu breska heimsveldisins. Hann hefur enn fremur hlotið margvísleg önnur verðlaun og viðurkenningar fyrir hönnun sína. Og nú hefur Blahnik snúið sér að töskugerð. Hann segir innblásturinn koma frá fallegum konum í fortíð og nútíð og vildi gera kvöldtöskur fyrir konur dags- ins í dag. „Ég elska skreytingarnar á skónum mínum svo af hverju ekki að setja þær á töskur?“ segir hann og bendir á að spennurnar á töskunum eru hannað- ar í stíl við sylgjur sem aðdáendur Blahn iks þekkja af vinsælustu skónum hans. „Töskurnar eru eins konar framlenging á uppáhaldsskónum mínum.“ SKÓSKÁLD BÝR TIL EÐALTÖSKUR VINSÆLL Manolo Blahnik bjó til skó fyrir eðlurnar í garðinum þegar hann var lítill en skór hans eru nú með eftirsóttasta varningi samtímans. Nú hefur hann hannað töskur í sama anda og skóna. MANOLO BLAHNIK Blahnik er mikill Breti í sér þótt hann sé fæddur á Kanaríeyjum. Hér er hann að fagna setningu Wimbeldon-tennismótsins á dögunum í látlausum, en gulum, jakkafötum. SKART Í HENDI Blahnik finnst fátt eins fallegt og kvenleg hönd sem heldur á dýrgrip. DRAUMUR FRÆNKUNNAR Frænka Blahniks sagðist óska sér þess mest af öllu að eiga hina fullkomnu handtösku í öllum mögulegum litum. Töskurnar eru af sex gerðum og fæst hver gerð í alls konar litum. Þær eru úr satíni og settar Swar- owski-kristölum. Blahnik segist fátt geta hugsað sér fallegra en „kvenlega hönd sem heldur á dýrgrip“. Töskurnar koma á markaðinn í lok júlí og eflaust margir úti í hinum stóra tískuheimi sem bíða með óþreyju. NÝBÝLAVEGI 20 SÍMI 554-5022 8 rétta hlaðborð í hádeginu TILBOÐ KR. 1.590.- OPIÐ KL. 11:00-14:00 Hlaðborðið er alla virka daga. ekki um helgar. kinahofid.is Laugavegi 178 | Sími 555 1516 Kíkið á myndir og verð á Facebook Opið virka daga kl . 11–18 Lokað laugardagin n 1. ágúst 2 9 -0 7 -2 0 1 5 2 2 :2 8 F B 0 6 4 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 5 9 8 -E 7 C C 1 5 9 8 -E 6 9 0 1 5 9 8 -E 5 5 4 1 5 9 8 -E 4 1 8 2 8 0 X 4 0 0 8 B F B 0 6 4 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.