Vegna viðhaldsvinnu geti verið truflanir á þjónustu Tímarit.is frá 18:00 og fram eftir kvöldi.

Fréttablaðið - 30.07.2015, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 30.07.2015, Blaðsíða 28
FÓLK|TÍSKA Ég elska yfirhafnir, djúsí og stórar. Ég kikna í hnjánum þegar ég sé eina slíka og yfirleitt verður hún mín. Ég á alltaf yfirhafnir fyrir hvert tækifæri en ekkert endilega réttu fötin til að vera í undir. Ég fer þá helst ekkert úr jakkanum eða kápunni nema ég nauðsynlega þurfi og er þá kannski bara í stuttermabol undir. Það getur verið vandræðalegt,“ segir Ásrún Ágústsdóttir, nýútskrif- aður fatahönnuður frá LHÍ, þegar hún er spurð út í uppáhaldsflíkina. Hún viðurkennir að yfirhafnir hvers konar taki talsvert pláss í fataskápnum hennar svo jafnvel þurfi að grípa til aðgerða. „Sláin er farin að síga talsvert, ég þarf að kaupa aðra. Ég er líka með yfirhafnir í kössum, þær taka svo mikið pláss, bosmamiklar og úr þykkur efni. Ég á nokkrar mokkakápur og jakka, pelsa og gamlar fjalladúnúlpur. Úlpurnar eru pínu sveitó en líka „urban“. Þetta fíla ég,“ segir hún sposk, enda koma yfirhafnirnar sér allar að góðum notum hér á norð- lægum slóðum. „Þetta er afar praktískt hér á Íslandi. Veturinn er góður tími, Það er eitthvað svo kósý að klæða sig vel og að yfirhöfnin verði eins og húsið manns þegar maður er úti. Ég get kúrt mig innan í henni. Ég veit hins vegar aldrei hvað ég á að fara í þegar veðrið er gott.“ Ásrún útskrifaðist í vor úr fatahönnun frá LHÍ. Það kemur líklega ekki á óvart að hún leitaði inn- blásturs til yfirhafna Sama þegar hún vann að loka- verkefninu. „Þessi þjóðflokkur gerir mjög stórar yfirhafnir og anorakka og það hentaði vel mínum persónulega stíl. Ég gæti hannað yfirhafnir allan daginn, alla daga,“ segir Ásrún. Er þá lína yfirhafna undir eigin merki jafnvel á döfinni? „Mig langar til að vinna í bransanum úti og kynna mér hvernig hlutirnir ganga fyrir sig fyrst. Þegar ég verð komin með reynslu gæti ég snúið mér að mínu eigin. Mig langar að komast út í starfs- nám, til Hollands eða til Parísar, og stefni á að kom- ast út þegar líður á veturinn.“ VILL HELST KÚRA INNI Í KÁPUNNI UPPÁHALDSFLÍKIN Ásrún Ágústsdóttir kiknar í hnjánum þegar hún sér vold- uga yfirhöfn. Veturinn er hennar uppáhaldsárstíð og helst vildi hún búa í káp- unum sínum. Af þeim á hún marga kassa og þyrfti að kaupa sér aukaslá. John Varvatos hefur hannað fyrir marga þekkta rokkara í gegnum tíðina. Frægastur þeirra er þó Bítillinn Ringo Starr. Alice Cooper er til dæmis góður vinur Varvatos. Vor- og sumarlína hans þótti bæði frjáls- leg og smart. Mik- ið var um rendur í herrafötunum og má líta aftur til 1970 til að sjá svipaðan herra- fatnað. Buxurnar voru þröngar og gjarnan jakkar með þeim. Flest módelin voru síðhærð. John Varvatos ólst upp í Detroit í Banda- ríkjunum en á ættir að rekja til Grikklands. Hann er vel þekktur vestan hafs en hefur nýlega rutt sér leið á Evrópumarkaði. Ilmvötn frá John Varv- atos hafa verið mjög vinsæl. Þá hefur hann hannað strigaskó fyrir Converse sem eru afar vinsælir. Í ANDA ÞEKKTRA ROKKARA Bandaríski hönnuðurinn, John Varvatos, vakti mikla athygli fyrir frumleika á tískuvikunni í New York á dögunum. Þar sýndu helstu hönnuðir heimsins herrafatatísku fyrir vor og sumar 2016. YFRIRHAFNASAFNARI Ásrún Ágústsdóttir á yfirhafnir í kassa vís og vill helst ekki fara úr þeim nema hún nauðsynlega þurfi. MYND/VILHELM Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is Verslunin Belladonna Stærðir 38-58 ÚTSALAN Í FULLUM GANGI 30-50% afsláttur af öllum útsöluvörum Flott föt, fyrir flottar konur 40.000 fréttaþyrstir notendur Smelltu þér á Fréttablaðsappið og lestu blaðið hvar sem er og hvenær sem er. Nálgastu appið á visir.is/fbl eða beint í gegnum: 2 9 -0 7 -2 0 1 5 2 2 :2 8 F B 0 6 4 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 5 9 8 -C F 1 C 1 5 9 8 -C D E 0 1 5 9 8 -C C A 4 1 5 9 8 -C B 6 8 2 8 0 X 4 0 0 6 A F B 0 6 4 s C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.