Vegna viðhaldsvinnu geti verið truflanir á þjónustu Tímarit.is frá 18:00 og fram eftir kvöldi.

Fréttablaðið - 30.07.2015, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 30.07.2015, Blaðsíða 32
Maraþon FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 20154 Þetta er í fyrsta skipti sem Silja þjálfar hlaupahóp Ís-landsbanka en hún þjálf- aði Pétur Jóhann Sigfússon þegar hann hljóp sitt fyrsta hálfmaraþon í Reykjavíkurmaraþoninu 2013. En hver er tilgangurinn með því að fá þekkta einstaklinga til að þjálfa sig upp í hlaupaform? „Það er fyrst og fremst til að undirstrika það að allir geti verið með, en allt hefur þetta verið fólk sem hefur lítið sem ekk- ert hlaupið áður,“ útskýrir Silja. Það á við í tilfelli mæðgnanna og voru þær að sögn Silju ansi hikandi í fyrstu. „Dóra sagðist bara alls ekki geta hlaupið og hafði litla trú á sjálfri sér þegar við hófumst handa í byrj- un júní. Það hefur aldeilis breyst og við höfum engar áhyggjur af þessu. Hún mun ekki eiga í nein- um vandræðum með þetta og nú erum við farnar að vinna í því að auka hraðann,” segir Silja. Hall- dóra ætlar að hlaupa tíu kílómetra en Steiney hálft maraþon og hvetur Silja áhugasama til að fylgja þeim á Snapchat og Twitt er undir hlaupa- mæðgur, enda með eindæmum skemmtilegar. Aðspurð segir Silja ekki of seint að skrá sig til leiks þótt aðeins séu rúmar þrjár vikur til stefnu. „Það geta flest allir verið með í tíu. Ætli menn í hálft eða heilt maraþon veltur það meira á grunninum og þá skiptir undirbúningurinn miklu máli.” Hlaupahópur Íslandsbanka hittist á þriðjudögum klukkan 17.15 og í hádeginu á fimmtudög- um og hvetur hún alla til að vera með og fylgjast með æfingaplan- inu á samnefndri Face booksíðu hópsins. „Þarna er fólk með alls konar markmið; bæði byrjendur og lengra komnir og það eru enn nýliðar að mæta, enda góð stemn- ing í hópnum. Á fimmtudögum erum við oftast á Laugardalsvell- inum og fólk fer þetta bara á sínum hraða.“ Silja leggur ekki bara áherslu á hlaup heldur líka styrktaræfingar, hraðaleiki og styttri æfingalotur með hléum eða svokallaðar „Int- erval-æfingar.“ „Það er ekkert sem segir að þú þurfir að hlaupa fjórum sinnum í viku þó þú ætlir í hlaup. Sjálfri finnst mér fjölbreyttar æf- ingar skemmtilegri. Aðalatriðið er að byrja að hreyfa sig og er vel hægt að skiptast á að hlaupa, hjóla og synda, svo dæmi séu nefnd. Svo er mjög mikilvægt að hlauparar hugi líka að því að gera teygjur og styrktaræfingar til að fyrirbyggja meiðsli en allt leggur þetta grunn að góðu hlaupi.“ Silja segir jafnframt mikil- vægan lið í undirbúningnum að huga að góðum skóm. „Það stuðl- ar að vellíðan og dregur úr líkum á meiðslum. Uppáhalds skórn- ir mínir eru Boost-skórnir frá Adi- das, en það er misjafnt hvað hentar hverjum og einum.“ Ekki of seint að hefja æfingar Einkaþjálfarinn og spretthlauparinn fyrrverandi, Silja Úlfarsdóttir, þjálfar hlaupahóp Íslandsbanka fyrir Reykjavíkurmaraþonið í ár. Hópurinn æfir tvisvar í viku en auk þess býr Silja til plön fyrir hópinn. Hún sér jafnframt um að þjálfa hlaupamæðgurnar Halldóru Geirharðsdóttur og Steineyju Skúladóttur sem báðar taka þátt í Reykjavíkurmaraþoninu í fyrsta skipti og eru andlit hlaupsins í ár. Silja þjálfar mæðgurnar Halldóru Geirharðsdóttur og Steineyju Skúladóttur sem báðar taka þátt í Reykjavíkurmaraþoninu í fyrsta skipti og eru andlit hlaupsins í ár. Hún segir þær á góðu róli og hvetur fólk til að fylgjast með undirbúningi þeirra á Snapchat og Twitter undir leitarorðinu hlaupamæðgur. MYND/ANDRI MARÍNÓ Áttu þér hlaupadraum? Margir láta sig dreyma um að gera hlaup að lífsstíl en finna ekki almennilega hvatann til að láta til skarar skríða. Þá er þjóðráð að setja sér markmið, eins og til dæmis að taka þátt í skipulögðu hlaupi eftir skil- greindan tíma og þjálfa sig út frá því. Hér eru nokkrar ráðleggingar til þeirra frumhlaupara sem vita ekki í hvorn fót- inn þeir eiga að stíga fyrstu skrefin á hlaupabrautinni. ● Fjárfestu í réttu skónum. Fáðu ráð- leggingar frá fagfólki, kannski þarft þú stuðning við fótinn á ákveðnum stöðum, við ökklann eða ilina sem ein- hver annar þarf ekki. Það eru réttir skór þarna úti fyrir þig, þú þarft bara að fi nna þá. ● Ekki hafa samviskubit dagana sem þú hleypur ekki. Mundu að hvíldin er líka hluti af leiðinni að markinu. ● Finndu hlaupafélaga en hlauptu samt stundum ein/n. Hlaup geta verið mjög góð íhugun sem betra er að stunda í einrúmi en félagarnir hvetja þig áfram með heilbrigðri samkeppni. Passaðu bara að velja a.m.k. einn sem er á svipuðu getustigi og þú. ● Gerðu hlaupin að góðum vana. Þótt þú hafir bara nokkrar mínútur einhvern hlaupadag- inn skaltu samt reima á þig skóna og halda af stað. Þannig býrðu til vana sem er auðveldara að viðhalda en að byrja alltaf upp á nýtt. Finndu þér slagorð, gildi eða hvata- möntru sem þú getur þulið þegar þér fi nnst þú vera að gefast upp. ● Ekki óttast göngukaflana á hlaupa- leiðinni. Að hægja á sér getur í raun byggt styrk og þol sem gagnast þér á hlaupunum. ● Haltu hlaupadagbók. Settu þér lítil og viðráðanleg markmið og auktu við þau smám saman. Það hleypur enginn maraþon í fyrsta. ● Hugsaðu í metrum, ekki mínútum. Farðu eins hægt og þú þarft, sýndu þol- inmæði og ekki hafa áhyggjur af hraðanum. Hann kemur. ● Mundu að þú ert hlaupari. Við erum öll hlauparar þó að sumir hlaupi hraðar en aðrir. Frumhlauparar: af stað! METRAR, EKKI MÍNÚTUR Sígur þó seint fari. RÉTTU SKÓRNIR Það skiptir höfuðmáli að fjárfesta í réttu skónum sem eru bæði þægilegir og passa nákvæmlega á þinn fót. 2 9 -0 7 -2 0 1 5 2 2 :2 8 F B 0 6 4 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 5 9 8 -A 7 9 C 1 5 9 8 -A 6 6 0 1 5 9 8 -A 5 2 4 1 5 9 8 -A 3 E 8 2 8 0 X 4 0 0 2 A F B 0 6 4 s C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.