Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Fréttablaðið - 30.07.2015, Síða 56

Fréttablaðið - 30.07.2015, Síða 56
30. júlí 2015 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 36 KRINGLUNNI AKUREYRI KEFLAVÍK EGILSHÖLLÁLFABAKKA bio. siSAM VARIETY FRÁ ÞEIM SÖMU OG FÆRÐU OKKUR AVENGERS OG GUARDIANS OF THE GALAXY EMPIRE TOTAL FILMVARIETY HITFIX THE HOLLYWOOD REPORTER VARIETY Systurnar Silja-Marie og Alex- andra Kentsdætur reka sitt eigið framleiðslufyrirtæki sem þær stofnuðu saman í Svíþjóð. Þær eiga íslenska móður og sænskan föður en þær bjuggu hér á landi til ársins 1994 þegar þær fluttu til Gautaborgar. Fram- leiðslufyrirtækið sem ber nafnið Kentsdóttir stofnuðu þær fyrir tveimur árum. Fyrst um sinn voru þær með starfsemina í Gautaborg en eftir að þær fluttu til Stokkhólms hefur reksturinn blómstrað. „Við höfum verið að gera mikið af tónlistarmyndböndum og kynn- ingarmyndböndum fyrir heima- síður hjá fyrirtækjum. Við höfum verið í samstarfi við nokkur plötu- fyrirtæki sem hafa reglulega samband við okkur og láta okkur fá verkefni. Við erum báðar lærð- ar og við gerum allt í framleiðslu- ferlinu, allt frá því að taka upp, leikstýra og klippa,“ segir Silja- Marie. Stelpurnar eru einu starfs- menn fyrirtækisins og sjá því um öll verkefni og rekstur sjálf- ar. Þær ráða til sín aðstoðarmenn og myndatökumanneskju í stærri verkefnum þegar þær þurfa að einbeita sér að leikstjórninni og fleiru. Það er ekki algengt að tvær konur stjórni alfarið framleiðslu- fyrirtækjum en þær segja að menningin sé önnur í Svíþjóð en á Íslandi. „Konur fá mun fleiri styrki í Svíþjóð en á Íslandi. Við vitum auðvitað ekki nógu mikið um iðn- aðinn á Íslandi en konur eru mun meira áberandi í kvikmynda- bransanum í Skandinavíu heldur en hér. Í Svíþjóð er hálfgerður kvóti á styrkjum og það fer meira fyrir konunum. Þrátt fyrir það mætum við oft fordómum. Fólk gerir oft óvart lítið úr okkur og spyr hvort við kunnum að taka upp og klippa alveg sjálfar. Það getur verið mjög niðrandi en við pössum upp á að hafa alltaf femínískt viðhorf í öllu sem við gerum. Þegar við gerum tónlistar- myndbönd þá erum við ekki með fáklæddar stelpur að elta strák- ana. Við viljum hafa þær venju- legar og heilsteyptar. Ég held að það fylgi því margir kostir að hafa fleiri konur í kvikmyndaiðn- aðinum og við teljum það vera eitt af því sem við höfum fram yfir aðra. Fólki finnst gott og þægi- legt að vinna með okkur,“ segir Alexandra. Kentsdætur tóku upp tónlistar- myndband hér á landi í vetur en þær langar að vinna meira á Íslandi. „Allir í Svíþjóð voru mjög hrifn- ir af fallega íslenska landslag- inu í myndbandinu sem við gerð- um. Stundum finnst okkur samt Ísland vera soldið út úr Skand- inavíu. Amma okkar býr á Ólafs- firði þannig að við höfum verið að taka upp þar enda mjög fallegur staður. Ég hef líka verið að taka upp í Dúbaí fyrir eitt fyrir tæki og við tókum saman upp tvö tón- listarmyndbönd í Kaliforníu. Við tökum mjög sjaldan upp í stúdíói en okkur finnst það oftast algjör óþarfi,“ segir Silja. Silja-Marie og Alexandra eru í sumarfríi hér á landi næstu vik- una en þær heimsækja landið að minnsta kosti einu sinni á ári og ná þannig að viðhalda íslensk- unni mjög vel. „Við náum ekki oft að fara í frí en þegar það er lítið að gera þá komum við til Íslands. Það er líka gaman að geta haldið í íslenskuna af því við tölum allt- af bara sænsku okkar á milli. Við tölum íslensku vel og getum lesið hana en við getum alls ekki skrif- að hana.“ gunnhildur@frettabladid.is Reka sitt eigið fyrirtæki Silja-Marie og Alexandra Kentsdætur eru búsettar í Stokkhólmi þar sem þær vinna hjá sjálfum sér við að taka upp og klippa myndbönd og heimildarmyndir. Þær eru hálfíslenskar og langar að taka meira upp hér á landi. STARFA HJÁ SJÁLFUM SÉR Alexandra og Silja-Marie hafa náð að koma sér vel fyrir með sitt eigið fyrirtæki í Svíþjóð. MYND/EMELIE ANDERSSON ➜ Konur fá mun fleiri styrki í Svíþjóð heldur en á Íslandi. Við vitum auðvitað ekki nógu mikið um iðnaðinn á Íslandi en konur eru mun meira áber- andi í kvikmyndabransanum í Skandinavíu heldur en hér. MISSION IMPOSSIBLE 5, 8, 10:35(P) PIXELS 5 ANT-MAN 3D 10:30 SKÓSVEINARNIR 2D 4 MINIONS 2D 6 TED 2 10:35 JURASSIC WORLD 2D 8 POWERSÝNING KL. 10:35 SÝND MEÐ ÍSL OG ENS TALI Leikkonan Christina Apple- gate sem gerði garðinn frægan í Anchor man-myndunum segir að hún sjái eftir að hafa ekki tekið að sér aðalhlutverkið í Legally Blonde en hún fékk handritið upp í hendurnar á sínum tíma. Aðalhlutverk myndarinn- ar hlaut Reese Witherspoon en myndin ýtti ferli Reese upp á annað plan. Á þessum tíma segir Applegate að hún hafi verið nýbú- in að leika í myndinni Married With Children þar sem hún lék svipaða persónu og hún hafi ekki viljað endurtaka sig. Hún segist þó ekki vera bitur yfir ákvörðun- inni í dag þar sem hún segir að það hefði enginn getað neglt hlut- verkið betur en Witherspoon. Hafnaði aðal- hlutverkinu í Legally Blonde CHRISTINA APPLEGATE Zayn Malik hætti fyrr á árinu í srákasveitinni One Direction til þess að eyða meiri tíma með unn- ustu sinni. Eftir að hann yfirgaf bandið hafa hviksögur gengið um að hann ætli að hefja sólóferil. Þetta reitti marga aðdáendur til reiði sem sögðu hann vera að svíkja gömlu félaga sína og án þeirra væri hann einskis virði. Nú hefur plötufyrir- tæki Simon Cowells sagt upp samningnum við Zayn. Hann var þó ekki lengi að finna nýtt útgáfu- fyrirtæki, en hann hefur nú skrif- að undir hjá First Turn Artists. Nú er hann með sama útgefanda og stórstjörnurnar Ellie Golding, Rita Ora og Iggy Azalea. Zayn Malik sagt upp af Simon Cowell ZAYN MALIK 2 9 -0 7 -2 0 1 5 2 2 :2 8 F B 0 6 4 s _ P 0 5 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 5 9 8 -D D E C 1 5 9 8 -D C B 0 1 5 9 8 -D B 7 4 1 5 9 8 -D A 3 8 2 8 0 X 4 0 0 7 B F B 0 6 4 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.