Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Fréttablaðið - 30.07.2015, Side 62

Fréttablaðið - 30.07.2015, Side 62
30. júlí 2015 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 42 SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR– AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hjalti Egilsson hjalti@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Gunnhildur Geira Dan Þorláksdóttir geira@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan Atli Sveinsson jonatan@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is Þjóðhátíðarlag FM95Blö hefur líklegast ekki farið fram hjá nein- um en strákarnir í IRIS Films sáu alfarið um upptökur og leikstjórn. Þeir Andri Páll Alfreðsson, Jakob Gabríel Þórhallsson og Jónas Bragi Þórhallsson skipa framleiðsluteymið IRIS en þeir eru allir um tvítugt og nýút- skrifaðir úr Verzlunarskólanum. Þetta er ekki fyrsta stóra verk- efnið sem þeir taka að sér en þeir framleiddu einnig tónlistarmynd- bandið við Eurovision-lag Maríu Ólafsdóttur. Strákarnir, ásamt Audda, Steinda og StopWaitGo, tóku upp myndbandið og lagið auk þess að gefa það út á aðeins fimm sólar- hringum. „Auddi hafði samband við okkur á föstudegi og sagðist vera með hugmynd og vildi fá okkur með sér. Við vorum auðvitað til í þetta um leið enda eru þeir mikl- ir reynsluboltar. Við gátum ekki hist fyrr en á mánudeginum en þá settum við upp söguþráðinn og eftir það fórum við í redding- ar og þeir fóru að taka upp lagið. Við höfum aldrei gert neitt á jafn mikilli keyrslu. Við byrjuðum að taka upp seinnipartinn á miðviku- deginum fram á miðja nótt og þá sváfum við í einn til tvo klukku- tíma. Við nýttum fimmtudag- inn vel í upptökur og fórum svo til Eyja á föstudeginum að taka upp restina. Á meðan við fórum til Eyja varð einn okkar eftir í bænum og byrjaði að klippa. Við tökum okkur yfirleitt viku í að klippa svona verkefni þar sem við erum að nota mikið af brellum og laga litina en ekki tvo sólar- hringa. Til þess að bæta gráu ofan á svart þá var Gillz í útlönd- um og kom ekki heim fyrr en á laugardagskvöldið en myndband- ið var frumsýnt á sunnudeginum. Hann brunaði beint af flugvellin- um upp í stúdíó hjá StopWaitGo til að taka upp sinn part og svo til okkar þar sem við vorum með „blue screen“ og við hentum part- inum hans inn,“ segir Andri Páll. Strákarnir í IRIS Films hafa tekið að sér fjöldann allan af verkefnum og voru mikið að vinna að sínum eigin hugmynd- um í Verzló. Bræðurnir Jakob og Jónas halda út til London í kvik- myndaháskólann MET Film Scho- ol í haust. Andri Páll stefnir á iðn- aðarverkfræði í Háskóla Íslands. „Við ætlum að nýta tímann vel áður en þeir fara út og taka að okkur eitthvað meira af verk- efnum. Okkur finnst þetta ótrú- lega skemmtilegt, sérstaklega að vinna með Audda og Steinda. Það er öðruvísi að vinna með þeim þar sem þeir hafa verið svo mikið í þessu en það er stór ástæða fyrir því að það gekk svona vel að keyra verkefnið í gegn á nokkrum dögum.“ gunnhildur@365.is Gerðu tónlistarmynd- band á fi mm dögum Strákarnir í IRIS Films sáu um framleiðsluna á Þjóðhátíðarlagi FM95Blö. Þeir eru nýútskrifaðir úr menntaskóla og hafa haft í nógu að snúast síðan. IRIS FILMS Andri, Jónas og Jakob reka flott framleiðslufyrirtæki þrátt fyrir ungan aldur. MYND/AÐSEND ➜ Til þess að bæta gráu ofan á svart þá var Gillz í útlöndum og kom ekki heim fyrr en á laugardagskvöldið en mynd- bandið var frumsýnt á sunnu- deginum. Allt sem þú þarft ... Taktu þátt í bíóleik Fréttablaðsins Það eina sem þú þarft að gera til að taka þátt í laufléttum bíóleik Fréttablaðsins er að senda okkur tölvupóst á leikur@frettabladid.is með nafni, kennitölu, símanúmeri og netfangi. Glæsilegir vinningar í boði 1. Dróni 2. Armbandsúr með myndavél 3. Miðar á Mission: Impossible – Rogue Nation Dregið verður 4. ágúst Paris, Texas, það er svo ótrúlega falleg tónlist og stemning sem er ógleymanleg í henni. Þórunn Antonía Magnúsdóttir söngkona KVIKMYNDIN Retro Stefson er að klára upptökur á nýrri plötu sem ber nafnið Scand- inavian Pain. „Við erum búin að vera að taka upp síðustu mánuði og sett- um upp okkar eigið stúdíó í miðbæ Reykjavíkur,“ segir Logi Pedro Stef- ánsson, bassaleikari hljómsveitar- innar. Hann stýrir einnig upptökum á plötunni en fyrsta smáskífulagið af henni, Malaika, kom út í vor. Sveitin er skipuð fagfólki sem allt semur lög og hefur hún tekið upp fjöldann allan af lögum und- anfarna mánuði. Logi segir að það liggi að mestu fyrir hvaða lög fari á plötuna. „Við semjum öll og hver og einn meðlimur hefur verið að koma með demó á æfingar og þar sem ég stýri upptökunum þá fæ ég mikið af hálfkláruðum lögum sem ég leggst yfir og reyni að pródúsera.“ Stefnt er að því að gefa plötuna út snemma á næsta ári en sveitin fagnar þá tíu ára afmæli sínu. „Það má örugglega greina nýjan stíl eða sánd, við reynum alltaf að gera eitt- hvað nýtt en fólk mun alveg heyra að þetta sé Retro Stefson-plata.“ Retro Stefson hefur haldið sig til hlés undanfarna mánuði en gerir ráð fyrir að koma sterk inn á næstu mánuðum. „Við erum að spila á Innipúkanum og Mýrarboltanum um helgina. Svo förum við að halda fleiri tónleika þegar nær dregur útgáfu.“ Meðlimir sveitarinnar hafa haft í nógu að snúast, Logi í Young Karin og Unnsteinn í Uni Stefson. „Við erum alltaf með hliðarpródjekt en Retro Stefson heldur fyrirtækinu gangandi. Við erum búin að eyða tíu árum af ævi okkar í að búa þetta til. Retro Stefson er aðalverkefnið okkar,“ segir Logi. - glp Fagnar tíu ára afmæli sínu með nýrri plötu Hljómsveitin Retro Stefson er um þessar mundir að leggja lokahönd á upptökur á sinni fj órðu breiðskífu. NÝ PLATA Retro Stefson vinnur að nýrri plötu sem kemur út á næstunni. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR 2 9 -0 7 -2 0 1 5 2 2 :2 8 F B 0 6 4 s _ P 0 6 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 5 9 8 -B 1 7 C 1 5 9 8 -B 0 4 0 1 5 9 8 -A F 0 4 1 5 9 8 -A D C 8 2 8 0 X 4 0 0 3 A F B 0 6 4 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.