Fréttablaðið - 25.07.2015, Page 4
25. júlí 2015 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 4
19.07.2015 ➜ 25.07.2015
atvinnuleysi mældist
á Íslandi í júní.
3,2%
105
ÞÚSUND
komu með skemmtiferða-
skipum til Reykjavíkur í fyrra.
50
FLÓTTA-
MENN
koma til Íslands á næstu
tveimur árum.
gætu falið gull í vinnanlegu
magni á Íslandi að mati
Iceland Resources.
8 STAÐIR
var í sveitarstjórnar-
kosningum í Norður-Kóreu.
99,97%
KJÖRSÓKN7 ALBANSKIR
hælisleitendur
voru sendir úr
landi.
Við elskum íslenska tónlist
FJÓRAR SÍGILDAR
ÍSLENSKAR PLÖTUR
LOKSINS FÁANLEGAR AFTUR Á VÍNYL
... í næstu plötuverslun
DÓMSMÁL Nágrannar nígeríska karl-
mannsins sem grunaður er um að
hafa haft óvarin kynmök við konur
á Íslandi vitandi að hann væri smit-
aður af HIV-veirunni hafa margir
orðið varir við mikinn umgang um
íbúð hans síðustu mánuði. Að sögn
nágrannanna sést oft til ungra
kvenna fara inn í íbúðina.
Maðurinn var úrskurðaður
í gæsluvarðhald til 20. ágúst í
Héraðs dómi Reykjavíkur á fimmtu-
daginn. Þeim úrskurði hefur verið
áfrýjað til Hæstaréttar.
Maðurinn er hælisleitandi og
hefur verið hér á landi í um eitt ár.
Hann er búsettur ásamt sambýlis-
manni í fjölbýlishúsi í eigu Reykja-
víkurborgar í Hlíðunum og hefur
búið þar í um sjö mánuði.
Lögreglan rannsakar nú málið
og voru rannsóknarlögreglumenn
við störf að heimili mannsins um
miðjan dag í gær. Lögreglan fór inn
í íbúðina um stund og tók skýrslu af
sambýlismanninum.
Lögreglan segir rannsóknina
snúa meðal annars að því að skoða
hvort fleiri konur kunni að hafa átt
samneyti við manninn og hvort þær
séu smitaðar.
Á annan tug kvenna eru á lista
yfir þá sem verið er að reyna að
hafa samband við vegna málsins.
Samkvæmt heimildum Fréttablaðs-
ins er að minnsta kosti ein kona
smituð.
Sambýlismaður hins grunaða
vissi ekki að maðurinn væri smit-
aður af HIV-veirunni. Hann seg-
ist ekki hafa þekkt manninn vel en
staðfestir að ungar konur hafi verið
tíðir gestir og að hann neyti fíkni-
efna.
Upp komst um málið eftir að
erlend kona, fyrrverandi kærasta
mannsins, hafði
samband við
íslenska stúlku
sem hún vissi að
hann hefði átt
kynferðislegt
samneyti við.
Stúlkan leitaði til
læknis þann 13.
júlí síðastliðinn
sem tilkynnti um
málið til embættis sóttvarnalækn-
is. „Eftir það fóru hlutirnir af stað.
Það er algjörlega eðlilegt að svona
hlutir taki tíma og það hefur verið
unnið hratt í málinu,“ segir Har-
aldur Briem, fráfarandi sóttvarna-
læknir, og bætir við að samkvæmt
lögum sé skylda á mönnum að til-
kynna lækni ef grunur vaknar um
að einstaklingur sé haldinn alvar-
legum sjúkdómi. „Nú gengur þetta
út á að ná til allra sem geta hafa
smitast,“ segir Haraldur.
„Við hjónin kvörtuðum nokkr-
um sinnum vegna hans. Það var
stanslaus umgangur þarna og allt-
af mjög mikil læti,“ segir Malsor
Tafa, nágranni mannsins. Malsor
er hælis leitandi frá Kósóvó og býr
ásamt fjölskyldu sinni í íbúð við
hliðina á íbúð mannsins.
„Það hefur verið ömurlegt að búa
hérna með börn. Ég vissi alltaf að
það væri eitthvað skrítið í gangi.“
Að sögn Malsors var umgangur
um íbúðina á hverjum degi.
Guðmundína Ragnarsdóttir, lög-
maður mannsins, segir að hann
haldi því fram að hafa ekki vitað
að hann væri með veiruna.
nadine@frettabladid.is
Rannsóknarlögreglan enn
við störf í íbúð hins grunaða
Karlmaður er grunaður um að hafa haft óvarin kynmök við konur á Íslandi vitandi að hann væri smitaður af HIV-
veirunni. Maðurinn býr í Hlíðunum í Reykjavík. Nágrannar hafa kvartað undan miklum umgangi og látum.
LEIÐRÉTTING
Rangt var farið með nafn leikara
í myndinni Mara í Fréttablaðinu í
gær. Annar aðalleikara myndarinnar,
Gunnar Kristinsson, var þar sagður
vera Kristjánsson sem er rangt.
Þá vantaði millinafn leikkonunnar
Vivian Didriksen Ólafsdóttur í
greinina.
Beðist er velvirðingar á þessum mis-
tökum.
RANNSÓKN Rannsóknarlögreglumenn við störf að heimili mannsins um miðjan dag í gær. Lögreglan fór inn í íbúðina um stund
og tók skýrslu af sambýlismanninum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
MALSOR TAFA
Nágranni
BANDARÍKIN Tvær konur létu
lífið í skotárás í kvikmyndahúsi
í bænum Lafayette í Lousiana í
Bandaríkjunum á fimmtudag.
Árásarmaðurinn, John Russel
Houser, hafði keypt miða á grín-
myndina Trainwreck. Þegar um
20 mínútur voru liðnar af mynd-
inni hóf hann skothríð í salnum
með þeim afleiðingum að tvær
konur létust.
Ef ekki hefði verið fyrir einn
áhorfandanna sem setti bruna-
bjöllu í gang hefði Houser eflaust
getað valdið meiri skaða. Lög-
regla var afar fljót að bregðast
við en fyrstu lögregluþjónar voru
mættir á staðinn einungis mínútu
eftir að brunabjallan fór af stað.
Þegar Houser sá að honum yrði
ekki undankomu auðið beindi
hann byssunni að sjálfum sér og
svipti sig lífi. - srs
Þrír látnir eftir skotárás:
Hóf skothríð í
kvikmyndahúsi
JOHN RUSSEL HOUSER Árásarmaður-
inn framdi sjálfsmorð. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
BRETLAND Dimitry Kovtun, mað-
urinn sem sakaður er um að hafa
myrt fyrrverandi leyniþjónustu-
manninn Alexander Litvinenko
árið 2006, er hættur við að gefa
vitnisburð fyrir breskri rann-
sóknar nefnd.
Kovtun og Andrei Lugovoi, sem nú
er þingmaður á rússneska þinginu,
eru grunaðir um að hafa laumað
póloni út í te Litvinenkos í nóvem-
ber árið 2006 sem dregið hafi hann
til dauða.
The Guardian greinir frá því
að þegar rannsóknarnefndin hafi
verið við það að ljúka störfum í
mars hafi Kovtun sagt að hann
vildi gefa vitnisburð í gegnum vef-
myndavél frá Mosku. Vegna þessa
fékk Kovtun aðgang að fimmtán
þúsund blaðsíðum af sönnunar-
gögnum í málinu.
Kovtun átti að bera vitni frá
næsta mánudegi og fram á mið-
vikudag en er nú hættur við. Á
föstudaginn sagðist vitni, sem
kallað er D3 í málaskjölum, hafa
hitt Kovtun þann 30. október 2006.
Þar á Kovtun að hafa sagt frá
fyrir ætlunum sínum um að myrða
Litvinenko. - ih
Rannsókn á dauða Alexanders Litvinenko árið 2006 dregst enn á langinn:
Sá grunaði hættur við að mæta
FYRIR DAUÐANUM Litvinenko lést af völdum pólon-eitrunar.
MYND/LITVINENKO-RANNSÓKNARNEFNDIN
2
4
-0
7
-2
0
1
5
2
1
:5
6
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
5
8
F
-7
D
1
0
1
5
8
F
-7
B
D
4
1
5
8
F
-7
A
9
8
1
5
8
F
-7
9
5
C
2
8
0
X
4
0
0
3
B
F
B
0
7
2
s
C
M
Y
K