Fréttablaðið - 25.07.2015, Page 10
25. júlí 2015 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 10
-Toppurinn
á ísnum
með karamellufyllingu og
ristuðum möndlum
TYRKLAND Lögregluyfirvöld og
tyrkneski herinn hrintu af stað
umfangsmikilli lögregluaðgerð
gegn flugumönnum ISIS í Tyrk-
landi og liðsmönnum herskárra
Kúrda í gær. Alls voru 297 hand-
teknir í aðgerðunum en um 5.000
lögreglumenn tóku þátt í þeim og
leitað var í 150 híbýlum víða um
Tyrkland.
Aðgerðinni var hrint af stað eftir
að grunur vaknaði um að liðsmaður
ISIS hefði myrt 32 í sjálfsvígsspreng-
juárás í Suruc á mánudag og vegna
morða herskárra Kúrda á tveimur
lögregluþjónum á miðvikudaginn.
Það er hinn herskái vængur kúr-
díska Verkamannaflokksins sem
ber ábyrgð á morðunum á lögreglu-
þjónunum en meðlimir flokksins og
ungliðahreyfingar hans voru hand-
teknir auk meðlima úr öfga vinstri-
flokki byltingarsinnaðra marxista.
Enn fremur sprengdu þrjár F-16
orrustuþotur tyrkneska hersins
þrjú skotmörk í Sýrlandi á yfir-
ráðasvæði Íslamska ríkisins í gær.
Að sögn Ahmets Davutoglu, for-
sætisráðherra Tyrklands, munu
þoturnar hafa gereyðilagt skot-
mörk sín en þetta er í fyrsta sinn
sem Tyrkir beita loftárásum gegn
ISIS síðan uppgangur samtakanna
hófst árið 2013.
Davutoglu segir að Tyrkland
muni ráðast gegn hverjum þeim
sem vegur gegn tyrkneskum hags-
munum og að Tyrkland sé tilbúið að
gera innrás í Sýrland sé þess þörf.
Tyrkir og Bandaríkjamenn
komust að samkomulagi um afnot
Bandaríkjahers af herstöðinni í
Incirlik en með þeim hætti getur
bandaríski flugherinn aukið umsvif
sín gegn ISIS.
Aðgerðir Tyrklandshers þykja
stefnubreyting hjá stjórnvöldum
en hingað til hefur Tyrkland ekki
viljað beita beinum aðgerðum gegn
ISIS. stefanrafn@frettabladid.is
Tilbúin til að
gera innrás
Forsætisráðherra Tyrklands segir landið tilbúið til að
senda landgöngulið til Sýrlands til að verja tyrkneska
hagsmuni. Um 300 handteknir í aðgerðum í gær.
SYRGJA
FALLNA
FÉLAGA Yfir-
völd í Tyrk-
landi stefna á
hefndir fyrir
árásir undan-
farna daga.
FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
Minnstu
aðför að Tyrk-
landi verður
svarað af
fullum mætti.
Ahmet Davutoglu.
EFNAHAGSMÁL Í ársskýrslu mats-
fyrirtækisins Moody‘s um Ísland
kemur fram að fyrirtækið telji upp-
gang Pírata ekki ógn við efnahags-
stöðugleika á Íslandi.
Skýrslan var gefin út í kjölfar
heimsóknar sérfræðinga Moody‘s
til landsins í júní.
Í skýrslunni er það rekið að
Íslendingar eru almennt miðjusækn-
ari en nágrannar þeirra á hinum
Norðurlöndunum þegar kemur að
kosningum en að Pírataflokkurinn
hafi óvænt tekið stökk í könnun-
um. Fyrirtækið leggur mat á ræður
þingmanna Pírata og ummæli þeirra
um afnám gjaldeyris hafta, ríkisfjár-
málin og málefni þrotabúa föllnu
bankanna og fleira.
Með þeim hætti meta skýrslu-
höfundar það þannig að Píratar séu
ekki ógn við efnahagslegan stöðug-
leika á Íslandi.
Þá skilgreinir fyrirtækið Pírata
ögn vinstri sinnaðri flokk en Sam-
fylkinguna sem skýrsluhöfundar
meta sem rökrétt stjórnarsamstarf
ef spá skoðanakannana rætist. - srs
Sérfræðingar matsfyrirtækisins Moody‘s telja orðræðu Pírata ekki til vansa:
Píratar ekki ógn við stöðugleika
EKKI HÆTTULEG Moody‘s gefur Píröt-
um grænt ljós. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
2
4
-0
7
-2
0
1
5
2
1
:5
6
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
5
8
F
-B
8
5
0
1
5
8
F
-B
7
1
4
1
5
8
F
-B
5
D
8
1
5
8
F
-B
4
9
C
2
8
0
X
4
0
0
9
B
F
B
0
7
2
s
C
M
Y
K