Fréttablaðið - 25.07.2015, Síða 28
FÓLK|HELGIN
ótrúleg forréttindi að sjá svona
marga nýja staði og hitta fólk
sem ég hefði annars ekki gert,“
segir Gréta.
EIGINHANDARÁRITANIR OG
MYNDATÖKUR
Á hverja sýningu mæta tæplega
eitt þúsund manns og fylgjast
með Grétu. Hún segir að „show-
ið“ sé farið að rúlla léttilega og
það gefur henni tækifæri til að
halda áfram í vetur án þess að
vera stöðugt um borð. „Ég get
flogið út þangað sem skipið er
statt og síðan heim aftur.“
Eftir hverja sýningu er gestum
boðið upp á myndatöku með
Grétu og að fá eiginhandar-
áritun. „Flestir nýta sér það eftir
sýninguna en síðan er líka boðið
upp á myndatökur í lok hverrar
siglingar,“ segir hún. Gréta hefur
því mikið verið ljósmynduð síð-
asta árið.
SVEIFLAÐIST Í LOFTINU
Svo geta óvæntir atburðir gerst,
eins í síðustu viku. „Í lokalaginu
flýg ég í vírum í blálokin en það
klikkaði eitthvað þetta kvöld og
ég byrja að fljúga í byrjuninni
á sex mínútna lokalaginu. Það
var mikill veltingur þetta kvöld
þannig að ég endaði á að hanga
átta metra uppi í lofti allar sex
mínúturnar og sveiflast fram
og til baka með skipinu. Mjög
skemmtilegt,“ segir Gréta og
hlær en bætir við að hún njóti
þess mjög að vera um borð.
„Þetta er svolítið eins og að búa
á fimm stjörnu hóteli,“ segir hún
en þar sem Gréta er svokölluð
„Guest Entertainer“ fær hún að
njóta alls þess sem farþegum er
boðið upp á.
NÝ PLATA
Starfsmenn skipsins í þjónustu-
störfum vinna hins vegar langan
vinnudag og geta ekki skemmt
sér með farþegum. „Staða mín er
allt önnur en þjónustufólksins og
ég þekki ekki vel reglur hjá þeim.
Hins vegar er Disney frábrugðið
öðrum skipafélögum og ég er
ekki viss um að mig hefði langað
til að vinna hjá öðrum. Það eru
margar dyr sem opnast þegar
maður starfar fyrir Disney. Svo er
maturinn um borð alveg meiri-
háttar svo það er betra að passa
sig,“ segir hún og viðurkennir
að stundum fái hún auðvitað
bullandi heimþrá. „En þetta er
líka búinn að vera langur tími og
styttist í heimkomu eftir tvær
vikur. Þegar ég kem heim mun
ég einbeita mér að nýju plötunni
minni. Ég er að vinna hana með
Daða Birgissyni og annað lagið
af henni kemur út þegar ég kem
heim. Svo er ég að undirbúa
tónleika með Sinfóníuhljómsveit
Norðurlands í janúar þar sem
ég flyt Disney-sjóið mitt að hluta
og efni af nýju plötunni. Það eru
skemmtilegir tímar fram undan
og mörg gigg heima sem mig
langar til að gera,“ segir Gréta
Salóme. ■ elin365.is
FLOTT SÝNING Hér eru myndir úr sýningunni þar sem Gréta sveiflast um loftin,
syngur og spilar.
AÐDÁENDUR
Flestir vilja mynd af sér
með söngkonunni eftir
sjóið og fá eiginhandar-
áritun.
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður
auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í
formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig
hefðbundið
ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson
Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429
Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
KAUPTÚNI 3 | SÍMI 564 4400 | VEFVERSLUN Á WWW.TEKK.IS
Opið
mánudaga–laugardaga kl. 11-18
sunnudaga kl. 13-18
20–60%
AFSLÁTTUR
AF ÖLLUM
VÖRUM
ÚTSALA!
ÚTSALA!
af öllu frá
ETHNICRAFT
20 -40
af öllum vörum frá
UMBRA
20 -40
af öllum vörum frá
HABITAT
20 -60
af öllu frá
HOUSEDOCTOR
20 -40
2
4
-0
7
-2
0
1
5
2
1
:5
6
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
5
8
F
-C
2
3
0
1
5
8
F
-C
0
F
4
1
5
8
F
-B
F
B
8
1
5
8
F
-B
E
7
C
2
8
0
X
4
0
0
1
B
F
B
0
7
2
s
C
M
Y
K