Fréttablaðið - 25.07.2015, Page 54

Fréttablaðið - 25.07.2015, Page 54
25. júlí 2015 LAUGARDAGUR| HELGIN KRAKKAR | 26 Að venju efna Borgarbókasafnið, Bókmenntaborgin og Forlagið til sumarlesturs meðal barna. Fyrir hverja lesna bók skrá lesendur nafn sitt og titil bókarinnar á þar til gerða miða, búa til úr þeim skutlur og skutla þeim í net sem eru í öllum söfnum Borgarbóka- safns. Vikulega er einn þátttakenda útnefndur Lestrarhestur vikunnar og sá eða sú hlýtur bók að launum frá Forlaginu. Lestrarhestur vikunnar Bragi Halldórsson 158 Það er rétt, á neðri myndina vantar fimm hluti. Getur þú séð hvaða hlutir það eru? Hvað ert þú gömul Embla? Ég er fimm ára og tíu mánaða. Ert þú spennt að byrja í skól- anum í haust? Ég er alveg geggjað spennt fyrir að fara að læra stærðfræði. Mér finnst gaman að læra stærðfræði. Hvað ertu búin að gera skemmtilegt í sumar? Ég er búin að fara í sveitina, leika mér, fara á línuskauta og æfa mig í því að hjóla án hjálpar- dekkja. Hvernig gekk að læra að hjóla án hjálpardekkja? Bara fínt, ég er búin að læra það. Hvað finnst þér skemmti- legast að gera? Mér finnst skemmtilegast að fara í Klifur- húsið, í sund og fara á hest- bak. Fórstu á hestanámskeið í sumar? Já. Hesturinn minn hét Stjarna. Hún var svona gullin- brún. En hún Stjarna hún steig á mig, það var rosa vont. En ég sagði bara: Allt í lagi Stjarna. Hver er uppáhaldsmaturinn þinn? Það er sushi, ég borðaði það líka þegar ég var fimm ára. Hver eru uppáhaldsdýrin þín? Hestur og kettlingur, kettling- ar eru svo sætir og hestar eru líka svo sætir. Ertu búin að fara eitthvað til útlanda í sumar? Já, ég fór til Grikklands. Það var rosa- lega gaman, ég fór að synda í djúpu lauginni og fór í stórar rennibrautir. Það var rosalega gaman í sveppnum. Það var skemmtilegast í rennibrautun- um sem fóru hraðast. Hver á þetta flotta píanó sem þú situr við á myndinni? Ég fékk það þegar Eiríkur vinur minn var að fara til Svíþjóðar og ég er að passa það fyrir hann. Það er rosalega gaman að spila á það. Finnst skemmtilegast að fara í Klifurhúsið Embla Gísladóttir er fi mm að verða sex ára, henni fi nnst gaman að fara í Klifurhúsið, er nýbúin að læra að hjóla án hjálpardekkja og uppáhaldsmaturinn hennar er sushi. Hvað er skemmtilegast við bækur? Að lifa sig inn í ævintýraheim bókanna. Hvaða bók lastu síðast og um hvað var hún? Risa- eðlur í Reykjavík. Hún er um risaeðlur sem rústa Reykjavík. Manstu eftir fyrstu bókinni sem var í uppáhaldi hjá þér? Þegar ég var lítill voru Lúllabækurnar í miklu uppáhaldi. Hvers lags bækur þykir þér skemmtilegastar? Þjóðsögur. Í hvaða skóla gengur þú? Vesturbæjarskóla. Ferðu oft á bókasafnið? Já, stundum. Núna um daginn var ég í ritsmiðju hjá Ævari vísindamanni á bókasafninu. Hver eru þín helstu áhugamál? Að fara á hestbak og í ferðalög– og leika við Spora, hundinn hennar ömmu á Heiðarbæ. Oddur Auðunsson 10 ára PASSAR PÍANÓ Embla er að passa þetta píanó fyrir vin sinn sem er í útlöndum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Hesturinn minn hét Stjarna. Hún var svona gullinbrún. En hún Stjarna hún steig á mig, það var rosa vont. En ég sagði bara: Allt í lagi Stjarna. Veldu nýtt krydd í tilveruna Maggi býður nú þrjár nýjar kryddblöndur sem gefa uppáhaldsréttum fjölskyldunnar ómótstæðilegt bragð. Töfraðu fram einfalda og gómsæta rétti á augabragði. Þátttakendur raða sér upp við hús- vegg, nema einn sem „er hann“, stendur fyrir framan hina og heldur á bolta. Hann velur orð í huganum og segir hinum hvort það sé dýraheiti, nafn á tónlistar manni/konu, bíl eða hverju sem er, kastar boltanum til þess fyrsta í röðinni og segir fyrsta staf- inn í orðinu. Sá kast- ar boltanum til baka og giskar, ef tilgátan er ekki rétt fær næsti tækifæri. Ef enginn getur rétt eru tveir fyrstu stafir orðsins gefnir upp í næstu umferð. Þegar einhver giskar rétt kastar sá sem „er hann“ boltanum í jörð- ina, kallar „hollý!“ og hleypur þar til sá sem giskaði á orðið nær boltanum og kallar „hú!“ Þá stoppar sá sem „er hann“ og myndar körfu með handleggjunum. Sá sem er með boltann má taka fimm risa skref og reyna að hitta í körfuna. Ef hann hittir fær hann að „vera hann“ næst, og hinn fer aftast í röðina. Hollý hú Útileikuril i 2 4 -0 7 -2 0 1 5 2 1 :5 6 F B 0 7 2 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 5 8 F -6 E 4 0 1 5 8 F -6 D 0 4 1 5 8 F -6 B C 8 1 5 8 F -6 A 8 C 2 8 0 X 4 0 0 2 A F B 0 7 2 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.