Fréttablaðið - 25.07.2015, Page 58
25. júlí 2015 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT | 30TÍMAMÓT
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@365.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi,
ÞÓRÓLFUR INGVARSSON
rennismiður og vélstjóri,
frá Birtingaholti, Vestmannaeyjum,
til heimilis að Skuggagili 6 á Akureyri,
lést þann 20. júlí sl. á Sjúkrahúsinu
á Akureyri. Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju
þriðjudaginn 28. júlí kl. 13.30. Þeim sem vilja minnast hans
er bent á Minningarsjóð Heimahlynningar á Akureyri.
Jónheiður Pálmey Þorsteinsdóttir
Ingunn Þórólfsdóttir
A. Júlíana Þórólfsdóttir G. Rúnar Guðnason
Elva Eir Þórólfsdóttir Björn Gestsson
afa-, langafa- og langalangafabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
GUÐRÚN ÞÓRUNN ÁRNADÓTTIR
ljósmóðir,
frá Hyrningsstöðum, Reykhólasveit,
lést á dvalarheimilinu Höfða, Akranesi,
þriðjudaginn 21. júlí. Útförin fer fram frá
Reykhólakirkju fimmtudaginn 30. júlí kl. 14.00.
Jóhannes Páll Halldórsson
Margrét Jóhannesdóttir Bryon Rowlinson
Þorsteinn Jóhannesson
Nína Erna Jóhannesdóttir
Bryndís Jóhannesdóttir Hörður Sigurharðarson
Halldór Jóhannesson Jóhanna Katrín Eggertsdóttir
Heiðar G. Jóhannesson Hrafnhildur Konný Hákonardóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Útfararþjónusta síðan 1996
Elskulegur eiginmaður minn,
faðir, tengdafaðir og afi,
HALLDÓR EINARSSON
Setbergi,
andaðist laugardaginn 18. júlí.
Útförin mun fara fram frá Víðistaðakirkju
þriðjudaginn 28. júlí kl. 13.00.
Unnur I. Jónsdóttir
Þórdís Halldórsdóttir Guðbjartur Magnússon
Halldór Magnús Guðbjartsson
Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi, langafi og langalangafi,
ÓLAFUR BJÖRNSSON
útgerðarmaður,
Kirkjuvegi 1, Keflavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 20. júlí
sl. Jarðarförin fer fram frá Keflavíkurkirkju
þriðjudaginn 28. júlí kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hans
er bent á að styrkja Velferðarsjóð Keflavíkurkirkju,
kt. 680169-5789, banki: 0121-05-1151.
Hrefna Ólafsdóttir
Þórir Jóhann
Borgar Unnbjörn
Elín Inga
Sigrún Birna
Björn Guðbrands
og fjölskyldan.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
dóttir, systir og tengdadóttir,
KATRÍN ÓLÖF BÖÐVARSDÓTTIR
læknir,
lést á Landspítalanum miðvikudaginn
22. júlí. Útförin fer fram frá Lindakirkju
fimmtudaginn 30. júlí kl. 15.00. Blóm og
kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast
hennar er bent á Minningarsjóð krabbameinsdeildar Landspítala.
Þórólfur Heiðar Þorsteinsson
Matthías Örn Þórólfsson Benedikt Arnór Þórólfsson
Böðvar Örn Sigurjónsson Gestný K. Kolbeinsdóttir
Sigurjón Örn Böðvarsson
Þorsteinn H. Gunnarsson Inga Þórunn Halldórsdóttir
Ástkær móðir okkar,
HAFDÍS INGVARSDÓTTIR
Hábergi 5, Reykjavík,
(lengst af í Kópavogi),
lést þann 18. júlí sl. á líknardeild
Landspítalans umvafin fjölskyldu
og vinum. Útförin fer fram frá Háteigskirkju,
þriðjudaginn 28. júlí kl. 13.00.
Ingvar Örn Hilmarsson
Svana Fjóla Hilmarsdóttir
Birna Svanhvít Hilmarsdóttir
Elskuleg eiginkona, móðir,
tengdamóðir og amma,
GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR
matreiðslumeistari,
Hjallabraut 25, Hafnarfirði,
lést á Landspítalanum við Hringbraut
miðvikudaginn 22. júlí. Útförin mun fara fram
frá Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 28. júlí kl. 13.00.
Guðmundur Hlöðversson
Jón Ingi Þorvaldsson Unnur Erlendsdóttir
Birta Guðrún Jónsdóttir
Hákon Jaki Jónsson
Elskuleg eiginkona, móðir og dóttir,
LILJA JÓHANNA BRAGADÓTTIR
Birkiholti 10, Álftanesi,
lést þriðjudaginn 21. júlí síðastliðinn.
Útförin fer fram frá Bessastaðakirkju
fimmtudaginn 30. júlí kl. 15.00.
Sigurður Reginn Ingimundarson
Sylvía Rós Sigurðardóttir
Bríet Eva Sigurðardóttir
Bragi Guðmundsson
Elsku móðir okkar,
tengdamóðir, amma og systir,
JÓHANNA JÓHANNSDÓTTIR
Snælandi 7,
lést í faðmi fjölskyldunnar þriðjudaginn
21. júlí. Útförin fer fram frá Áskirkju
föstudaginn 31. júlí kl. 11.00.
Jóhann Kristos Lapas Jóna Björk Helgadóttir
María Lapas Vilhjálmur Þór Arnarsson
Alexander Lapas Margrét Guðmundsdóttir
Kristín Jóhannsdóttir
Áslaug Jóhannsdóttir Sigurður Sigurðsson
og barnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
INGIBJÖRG JÓHANNSDÓTTIR
frá Vörum,
Garði,
lést á Landspítalanum v/Fossvog, miðviku-
daginn 22. júlí. Útförin fer fram frá Útskála-
kirkju, miðvikudaginn 29. júlí kl. 14.00.
Valgerður Þorvaldsdóttir Bragi Guðmundsson
Halldór Kr. Þorvaldsson Kolbrún Valdimarsdóttir
Ingimar J. Þorvaldsson Elín Kjartansdóttir
Vilberg J. Þorvaldsson Helena Rafnsdóttir
Þorvaldur Þorvaldsson Mikkalína Þ. K. Finnbjörnsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur sambýlismaður minn,
faðir okkar, afi og langafi,
BJARNI ÓLAFSSON
Skerjabraut 9, Seltjarnarnesi,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans þann
20. júlí síðastliðinn. Útförin fer fram frá
Fossvogskirkju þriðjudaginn 28. júlí kl. 13.00.
Kristín Þórarinsdóttir
Ingibjörg Elísabet Bjarnadóttir Trond Haave
Anna Bettý Bjarnadóttir Trond Ingebrigtsen
Runólfur Bjarnason Ragnheiður Helgadóttir
Guðleif Þ. Stefánsdóttir Kristján Kristjánsson
Ólafur Guðmundsson Lára M. Jónsdóttir
Þórarinn Guðmundsson Hrefna Ingvarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir mín, amma og langamma,
SIGURBJÖRG ELÍSABET
GUÐLAUGSDÓTTIR
Melgerði 17, Kópavogi,
lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð
mánudaginn 20. júlí. Útför hennar verður
gerð frá Kópavogskirkju, fimmtudaginn 30. júlí, kl. 15.00. Þeim
sem vilja minnast hennar er bent á hjúkrunarheimilið Sunnuhlíð.
Grétar Halldórsson
Arnaldur Grétarsson
Auður Ástráðsdóttir
Röskva Arnaldardóttir
Urður Arnaldardóttir
Okkar ástkæri
SIGURÐUR JÓHANN HELGASON
Birkihæð 6, Garðabæ,
sem lést mánudaginn 20. júlí, verður
jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík
föstudaginn 31. júlí kl. 13.00.
Birna Benjamínsdóttir
María Sigurðardóttir
Helga Sigurðardóttir Maríus Ólafsson
Jóhann Þór Sigurðsson Júlíana Gunnarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
„Sonur minn er að keppa á Íslands-
meistaramótinu í golfi og ég ætla
að vera uppi á Skaga að fylgjast
með því á sjálfan afmælisdaginn
og svo ætla ég að halda stóra veislu
í næstu viku,“ segir Sigríður Arnar-
dóttir, sem flestir þekkja sem Sirrý,
fjölmiðlakona og stjórnandi þátt-
anna Fólk með Sirrý og Lífsins list
sem sýndir eru á Hringbraut.
Sirrý segir fögnuðinn helst koma
til vegna þess að hún hafi mörgu að
fagna á árinu og því kjörið að efna
til einnar stórrar veislu.
„Ég verð fimmtug á sunnudaginn
og á þrjátíu ára starfsafmæli í fjöl-
miðlum og silfurbrúðkaupsafmæli
á næstunni,“ segir hún létt í lund
og bætir við: „Ef einhvern tímann
er ástæða til að halda veislu þá er
það núna.“
Það er nóg um að vera hjá Sirrý
en hún segist þó gæta þess að slaka
á með góðan kaffibolla úti í garði og
horfa á rósirnar blómstra.
Sirrý er ekki upptekin af
afmælis gjöfum en man vel eftir
ákveðinni afmælisgjöf úr æsku,
fyrsta dúkkuvagninum sem hún
eignaðist. „Þegar ég fékk dúkku-
vagninn varð ég svo hamingjusöm
og ég finn þessa hamingju þegar
ég rifja það upp, það er eitthvað
minni í frumunum,“ segir hún glöð
í bragði og bætir að lokum hlæjandi
við: „Ég verð að hugsa um þennan
dúkkuvagn oftar greinilega.“
gydaloa@frettabladid.is
Fagnar ýmsum tímamótum
Sirrý fagnar fi mmtugsafmæli á morgun og heldur rækilega upp á það með stórri veislu í
næstu viku þar sem hún fagnar stórafmælinu, 30 árum í fj ölmiðlum og silfurbrúðkaupi.
ÁNÆGÐ Það er nóg um að vera hjá Sirrý þessa
dagana sem er snúin aftur í sjónvarp, skrifar bækur
og kennir en gætir þess líka að gefa sér tíma til að
njóta líðandi stundar með kaffibolla við hönd.
MYND/HELMAÞORSTEINSDÓTTIR
2
4
-0
7
-2
0
1
5
2
1
:5
6
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
5
8
F
-9
0
D
0
1
5
8
F
-8
F
9
4
1
5
8
F
-8
E
5
8
1
5
8
F
-8
D
1
C
2
8
0
X
4
0
0
5
B
F
B
0
7
2
s
C
M
Y
K