Fréttablaðið - 01.08.2015, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 01.08.2015, Blaðsíða 48
1. ágúst 2015 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT | 28TÍMAMÓT Útfararþjónusta síðan 1996 Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÚN G. FJELDSTED Austurströnd 4, áður Veghúsastíg 1, lést fimmtudaginn 23. júlí. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni mánudaginn 10. ágúst kl. 13.00. Vigdís Fjeldsted Óttar Snædal Guðmundsson Margrét Fjeldsted Sigrún Fjeldsted Geirarður Geirarðsson Anna Fjeldsted Arnaldur Indriðason barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, MAGNÚS ÞORSTEINSSON skipstjóri, Hæðargarði 29, Reykjavík, lést þann 26. júlí 2015 á hjúkrunarheimilinu Skjóli. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík, mánudaginn 10. ágúst klukkan 13.00. Helga Guðbjörnsdóttir Guðbjörn Magnússon Elín Birna Sigurgeirsdóttir Þorsteinn Helgi Magnússon Guðrún M. Jóhannsdóttir Birna Guðfinna Magnúsdóttir Magnús Sigmundur Magnússon Guðrún Jóna Óskarsdóttir Gunnlaugur Magnússon Margrét Aðalsteinsdóttir barnabörn og barnabarnbörn. Okkar ástkæra systir, MARIA GLEN ANINON MAGLANGIT Hafnarfirði, lést 27. júní í faðmi fjölskyldu og vina á Filippseyjum. Minningarathöfn verður haldin í St. Jósefskirkju í Hafnarfirði 5. ágúst kl. 17.30. Leny Maglangit, Garðar Björgvinsson og vinkonur. Okkar ástkæri GUÐMUNDUR GUNNARSSON Víkurgötu 6, Stykkishólmi, sem lést þriðjudaginn 28. júlí verður jarð- sunginn frá Stykkishólmskirkju þriðjudaginn 4. ágúst kl. 14.00. F.h. aðstandenda, Matthildur Guðmundsdóttir Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærs eiginmanns míns, föður, stjúpföður, tengdaföður, afa og langafa, GYLFA GUNNARSSONAR Guð veri með ykkur. Ásdís Hannibalsdóttir Ásta Sigrún Gylfadóttir Jón Stefánsson Gísli Gylfason Anna Bjarnadóttir Hrafnhildur Geirsdóttir Viðar Héðinsson Heimir Snær Gylfason Úrsúla Manda Ármannsdóttir Unnar Þór Gylfason Heiðrún Björgvinsdóttir Okkar elskulegi faðir, tengdafaðir, afi og langafi, EMIL GUÐMUNDUR GUÐMUNDSSON sjómaður og bóndi, sem lést 22. júlí, verður jarðsunginn frá Seljakirkju, miðvikudaginn 5. ágúst, kl. 13.00. Pálína Guðný Emilsdóttir Guðlaugur Fr. Sigmundsson Kristín Aðalheiður Emilsdóttir Ólafur Vilhjálmsson Margrét Sigríðardóttir Helgi Pétur Guðjónsson Guðmundur Jóhann Emilsson Mária Kamál Gordonsdóttir Sigurður Freyr Emilsson Hanna Rut Jónasdóttir Magnúsína Ósk Eggertsdóttir og barnabörn. Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur vináttu, samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar okkar elskulega eiginmanns, föður, tengdaföður og afa, HALLDÓRS EINARSSONAR Setbergi. Unnur I. Jónsdóttir Þórdís Halldórsdóttir Guðbjartur Magnússon Halldór Magnús Guðbjartsson Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, VICTOR JACOBSEN leigubifreiðastjóri, varð bráðkvaddur þann 26. júlí sl. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík, mánudaginn 10. ágúst kl. 15.00. Aðalheiður Jacobsen Sigurður Örn Sigurðsson Jón Kr. Jacobsen Katrín Ingvadóttir barnabörn og barnabarnabarn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MARÍA KRISTÍN TÓMASDÓTTIR Aflagranda 40, sem lést laugardaginn 25. júlí, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni föstudaginn 7. ágúst kl. 13.00. Sirrý Gröndal Göran Selldén Halldóra Gröndal Jón Ingvar Jónasson Benedikt Gröndal Hrafnhildur Halldórsdóttir barnabörn og langömmubörn. Ástkæra móðir okkar, tengdamóðir og amma, SIGFRÍÐ ÞORVALDSDÓTTIR lést þann 22. júlí. Útförin fer fram í Háteigs- kirkju miðvikudaginn 5. ágúst kl. 13.00. Þorvaldur Gunnlaugsson Katrín Guðjónsdóttir Helgi M. Gunnlaugsson Laufey Hrönn Jónsdóttir Heiða Björk Gunnlaugsdóttir og barnabörn. „Það er skemmtilegt að setja upp sýningu sem er frá sjónarhóli listunn- anda,“ segir Erlendur Sveinsson kvik- myndagerðarmaður sem er að hengja upp málverk í Sveinssafni í Krýsu- vík fyrir sýningu sem verður opnuð á morgun. Þau eru úr stórri listaverka- gjöf til safnsins frá Knúti Björnssyni lýtalækni sem lést í ágúst í fyrra á 85. aldursári. Flestar myndirnar eru eftir Svein Björnsson, bróður Knúts og föður Erlends. Þar eru olíumálverk í meirihluta en líka vatnslitamynd og klippimynd. Auk þess eru verk eftir aðra listamenn eins og Veturliða Gunn- arsson, Valtý Pétursson, Steingrím Sig- urðsson og Júlíönu Sveinsdóttur. „Knútur var listinni þarfur,“ segir Erlendur. „Hann keypti fjölda verka og styrkti líka Sveinssafn með margvís- legum hætti. Á heimili hans og í húsi sem hann átti á Stokkseyri voru vegg- irnir þaktir myndum. Það er nauðsyn- legt fyrir myndlistarheiminn að áhorf- endur séu næmir.“ Sjálfur gerði Knútur rýjateppi. „Hann var náttúrlega í því að sauma saman fólk og var flinkur með nál- ina,“ segir Erlendur. „Það þýðir ekki að vera lýtalæknir og hafa ekki fagur- fræðilega tilfinningu,“ sagði hann eitt sinn við mig.“ Erlendur vonar að sýningin veki athygli fólks á að láta aðstandend- ur Sveinssafns vita ef það á myndir í fórum sínum eftir Svein Björnsson, því safnið þurfi að eiga skrá yfir þær, hvar sem þær séu niðurkomnar. Sveinshús er blátt að lit. Það stendur við Geststaðavatn, upp af Grænavatni í Krýsuvík. „Húsið er að mestu eins og Sveinn skildi við það, nema hvað við höfum útbúið tvö lítil galleríherbergi á fyrstu hæðinni þar sem svona smá- sýningar njóta sín. Þetta er náttúrlega ekki stórt pláss en við tökum vel á móti fólki og veitum því leiðsögn,“ segir Erlendur. Sveinshús er opið á morgun, sunnu- dag, milli klukkan 13 og og 17.30 en formleg opnun sýningarinnar Knútur bróðir er klukkan 15. Öllum er heim- ill ókeypis aðgangur meðan húsrúm leyfir. gun@frettabladid.is Læknir sem var þarfur listinni með söfnun sinni Sýningin Knútur bróðir verður opnuð í Sveinssafni í Krýsuvík á morgun. Myndirnar eru úr listaverkagjöf frá Knúti Björnssyni lækni, bróður Sveins sem safnið er kennt við. UNDIRBÚNINGUR „Við tökum vel á móti fólki og veitum því leiðsögn,“ segir Erlendur sem hér er að hengja upp mynd af Knúti í Sveinssafni. MYND/ÚR EINKASAFNI Það þýðir ekki að vera lýtalæknir og hafa ekki fagur fræðilega tilfinningu. Knútur bróðir 3 1 -0 7 -2 0 1 5 2 0 :4 9 F B 0 6 4 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 5 9 E -E 2 6 C 1 5 9 E -E 1 3 0 1 5 9 E -D F F 4 1 5 9 E -D E B 8 2 8 0 X 4 0 0 2 A F B 0 6 4 s C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.