Fréttablaðið - 01.08.2015, Blaðsíða 20
1. ágúst 2015 LAUGARDAGUR| HELGIN | 20
ALVARLEG SLYS Í UMFERÐINNI
Mánudaginn 7. ágúst árið 2000 hrapaði flugvél í sjóinn í Skerjafirði, þrír lét-ust og þrennt slasað-ist lífshættulega, og
létust öll innan árs.
Flugvélin var í farþegaflugi
að ferja gesti þjóðhátíðar heim
eftir helgina. Vélin var við það
að snerta flugbrautina og lenda
þegar flugmaðurinn fékk skip-
un frá flugturni um að hætta við
þar sem önnur flugvél var á flug-
brautinni. Flugmaðurinn hækk-
aði þá flugið og ætlaði að taka
annan hring. Örstuttu síðar skall
vélin í sjóinn, brotnaði og sökk.
Rannsókn á slysinu leiddi í ljós að
líkur væru á að bensínþurrð hefði
orsakað slysið. Aðstandendur
gagnrýndu rannsóknina og í kjöl-
farið skapaðist bæði umræða og
þrýstingur sem leiddi til umbóta
í flugöryggismálum. Í níu ár eftir
Skerjafjarðarflug slysið varð ekk-
ert banaslys í flugi á Íslandi en
áratuginn fyrir slysið varð slys
næstum því á hverju ári.
Alltaf uggur í brjósti þessa helgi
Friðrik Þór Guðmundsson, faðir
ungs manns sem lét lífið í kjöl-
far slyssins, var einn þeirra sem
gagnrýndu rannsóknina og barð-
ist fyrir því að sannleikurinn
fengi að líta dagsins ljós.
„Ég er ekki í vafa um að barátta
aðstandenda á sínum tíma, ofan á
einlægan umbótavilja fjölda ann-
arra, flugmanna ekki síst, hafi
skilað sér í auknu flugöryggi.
Þótt flugmálayfirvöld hafi verið
treg í taumi og tekið gagnrýni
óstinnt upp þá var ýmsum lögum
og reglum breytt, eftirlit aukið og
án efa varð um leið jákvæð hugar-
farsbreyting í „bransanum“.
Síðustu sex ár hafa orðið sex
flugslys. Þar af flugslysið á Akur-
eyri sem varð verslunarmanna-
helgina árið 2013. „Þrátt fyrir að
allt bendi til þess að lærdómurinn
hafi skilað sér er fyllsta ástæða
til að staldra ögn við. Banaslysin
eru farin að skjóta upp kollinum á
ný. Hið minnsta í tveimur þessara
tilvika virðist einhvers konar fífl-
dirfska hafa spilað inn í.“
Friðrik segist finnast það
hið besta mál að fólk ferðist og
skemmti sér hraustlega þessa
miklu ferðahelgi en þó setjist
ávallt uggur í brjóst hans fyrir
verslunarmannahelgina. „Í mörg
ár núna hefur feginleiki fylgt í
kjölfarið og ég vona að svo verði
áfram. Að allir komist heim heilu
og höldnu.“
Merki um slaka
Ragnar Guðmundsson, rannsak-
andi flugslysasviðs, segir að reglu-
gerðarbreyting árið 2004 hafi lík-
lega haft sitt að segja með langt
slysalaust tímabil eftir Skerja-
fjarðarslysið en einnig vitundar-
vakning. „Ég held að menn hafi
farið að horfa aðeins í eigin barm,
hvernig þeir væru að stunda þenn-
an rekstur í kringum þjóðhátíð, og
almennt líka.“
Frá árinu 2009 hafa orðið þrjú
banaslys þannig að slysalausa
tímabilinu er lokið. Eru menn
hættir að vanda sig? „Við erum
að sjá merki um að það sé verið
að slaka á undanfarin ár. Eflaust
er það ástæðan fyrir því að Sam-
göngustofa hefur aukið eftirlit.“
Skiptar skoðanir um
takmörkun umferðar
Samkvæmt upplýsingum frá Isavia
er starfsmönnum fjölgað á Vest-
mannaeyjaflugvelli yfir verslun-
armannahelgina til að bregðast
við aukinni flugumferð. Í ár hefur
afgreiðslutímum einnig verið úthlut-
að með hliðsjón af áætluðu umferð-
armagni en miðað er við að flug-
tök og lendingar verði ekki fleiri
en átta á hverjum hálftíma. Það er
gert til þess að tryggja að ekki séu
of margar flugvélar í einu í loftrým-
inu og vegna þess að stæði á flug-
vellinum eru takmörkuð. Ekki eru
allir á eitt sáttir við þessa úthlutun,
til að mynda hafa háværar mótmæl-
araddir heyrst á lokaðri síðu „flug-
nörda“ á Facebook en samkvæmt
Isavia ættu allir að komast leið-
ar sinnar. „En mögulega gæti fólk
þurft að hliðra tímum til að dreifa
álaginu á flugvöllinn betur. Þess
má geta að algengt er á flugvöllum
að afgreiðslutímum sé úthlutað á
álagstímum,“ segir í svari Isavia við
fyrir spurn frá Fréttablaðinu.
Fimmtán ár frá flug-
slysinu í Skerjafirði
Mikil umræða um flugöryggi skapaðist eftir slysið í Skerjafirði og í níu ár
urðu engin banaslys í flugi. Menn sjá nú merki um aukið kæruleysi en
flugyfirvöld gefa engan slaka og úthluta afgreiðslutímum um helgina.
Pössum upp á hvert annað
Njáll Pálsson
bráðatæknir og sjúkraflutningamaður
Bana-
slysin eru
farin að
skjóta upp
kollinum á ný.
Hið minnsta í
tveimur
þessara tilvika virðist
einhvers konar fífldirfska
hafa spilað inn í.
Friðrik Þór Guðmundsson
Njáll segir verslunarmannahelgina frábrugðna öðrum helgum á vaktinni. „Það eru svo margir á
faraldsfæti og svo er þessi skuggahlið,
fólk er að neyta áfengis og vímugjafa í
óhóflegu magni og þá verða stundum
ofbeldisverk, slys, veikindi í kringum
það. Svo eru það bílslysin sem hafa
alltaf sett sitt mark á ferðahelgar, þegar
ég lít svona til baka,“ útskýrir Njáll.
Hann segir átakanlegt og gríðarlega
erfitt á köflum að starfa við það að
koma að slysum. „Sérstaklega ef um
ungt fólk eða börn er að ræða. En þetta
er auðvitað bara svona, hluti af starf-
inu. Við köllum þetta verkefni sem þarf
að leysa hverju sinni og þar er einna
mikilvægast að vera í góðu sambandi
við alla viðbragðsaðila og samstarfið
er mjög gott. Það er náttúrulega aldrei
gaman að horfa upp á það þegar sam-
borgarar manns lenda í nauðung, en
maður sinnir því sem þarf að sinna.“
Aðspurður segir hann hegðun fólks
um verslunarmannahelgi hafa breyst
á undanförnum árum. „Ég er ekki frá
því að fólk sé farið að vera heilt yfir
meira afslappað í umferðinni. Mér
finnst ég finna það. En það er auðvitað
slæmt þegar fólk er að keyra í misjöfnu
ástandi, þá skapast hætta. Það er oftast
á heimleiðinni og ég biðla til fólks að
setjast ekki undir stýri nema að vel
athuguðu máli,“ segir Njáll, en bætir
við að nú sé mikið af erlendum ferða-
mönnum á ferðinni og þeir séu ekki
jafn öruggir í umferðinni.
Síðustu fimm verslunarmannahelgar
hefur Njáll verið að vinna í sjúkragæslu
á Þjóðhátíð í Eyjum.
„Ég hef skynjað breytingu til hins
betra í Eyjum líka. Það er því að þakka
að það er búið að vinna markvisst í
öryggismálum í dalnum, þjóðhátíðar-
nefnd hefur aukið öryggi gestanna. Það
er búið að auka við gæslu, koma upp
myndavélakerfi og svo er líka búið að
vinna í brekkunni sjálfri, hreinsa hana
vel af grjóti og binda grjótið fyrir ofan
með neti. Þegar ég var að byrja þá var
grjótið mikið á ferðinni, að rúlla niður
og hitta fólk illa, það var að detta um
þetta, og svo voru menn svo ófor-
skammaðir að grýta því og maður sá
marga áverka tengda því.“
Njáll biðlar til fólks að ganga hægt
um gleðinnar dyr. „Pössum hvert
annað, ég held að það sé númer eitt,
tvö og þrjú á svona stórum manna-
mótum þar sem fólk er undir áhrifum
og kannski misindismenn sem leynast í
fjöldanum. Svo náttúrulega þetta með
að vera ekki að hreyfa við ökutækjum
nema vera í ástandi til þess.“
fólk er að neyta
áfengis og vímugjafa í
óhóflegu magni og þá
verða stundum ofbeldis-
verk, slys, veikindi
BANASLYS Í FLUGI
Það er jafn mikill viðbúnaður og um aðrar helgar. Við í lög-reglunni í bænum leggjum
svo meiri áherslu á innbrotseftirlit
og slíkt, það eru auðvitað margir
sem fara úr bænum og þá eru meiri
líkur á að eitthvað gerist heima
hjá fólki. Við erum að fylgjast
með eigum fólks. Annars eru oft
rosalega margir niðri í bæ og það
þarf að sinna því fólki líka,“ segir
Dóra Birna, en hún hefur verið í
lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu
síðan 2002 og unnið yfir margar
verslunarmannahelgar.
„Það hefur verið þannig að ef það
hefur verið hundleiðinlegt veður á
útihátíðum hafa hátíðirnar færst á
Lækjartorg. En það eru nú einhver
ár síðan það gerðist síðast.”
Hún segir eldra fólk meira í
bænum um verslunarmannahelgar.
„Þá er yngra liðið farið á útihá-
tíðirnar. Það getur verið öðruvísi
stemming í bænum, meiri rólegheit
yfir þessu. En svo er auðvitað allur
gangur á því. Það er líka fullt af túr-
istum í bænum um þessar mundir,
en það er ekkert vesen á þeim. Það
er eitthvað svona sem fylgir, það
er verið að stela af þeim og svo er
alltaf svolítið fyllerí í bænum. Svo
finnst manni eins og það séu oft
meiri slagsmál þegar er leiðinlegt
veður, fólk virðist vera glaðara í sól
og blíðu.“
Hún man eftir að hafa komið
að erfiðum slysum í kringum
ferðahelgarnar. „Erfiðustu slysin eru
þau þegar unga fólkið og börnin
meiðast. Það er mjög átakanlegt að
horfa upp á slíkt. En ég vil endilega
biðla til fólks þessa helgi að flýta
sér ekki um of, fara varlega og
ganga hægt um gleðinnar dyr með
gleði í hjarta.“
Meiri áhersla á innbrotseftirlit
Dóra Birna Kristinsdóttir
lögreglumaður
Ef það hefur verið
hundleiðinlegt veður á
útihátíðum hafa hátíðirn-
ar færst á Lækjartorg.
19
99
20
00
20
01
20
02
20
03
20
04
20
05
20
06
20
07
20
08
20
09
20
10
20
11
20
12
20
13
20
14
1995
1996
1997
1998
1999
2000
2001
2002
2003
2004
2005
2006
2007
2008
2009
2010
2011
2012
2013
21
32
24
29
23 23 19
31
15 12 1
7
8
12 9
15
4
22
2
16
9
15
8 16
4
14
5
11
5
12
9
15
3
19
5 20
0
17
0
20
5
15
4
13
6
17
7
17
7
Látnir
Alvarlega slasaðir
Banaslys
Látnir
1
1
3
5
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
2
3
1
1
2
1
2
6
➜ Engin banaslys urðu á
íslenskum skráðum loft-
förum frá árinu 2001 til og
með árinu 2008.
FLUGSLYSIÐ Í SKERJAFIRÐI Sex létust af völdum slyssins. Allt ungt fólk í blóma lífsins og var þjóðin gjörsamlega slegin.
3
1
-0
7
-2
0
1
5
2
0
:4
9
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
5
9
E
-F
B
1
C
1
5
9
E
-F
9
E
0
1
5
9
E
-F
8
A
4
1
5
9
E
-F
7
6
8
2
8
0
X
4
0
0
4
B
F
B
0
6
4
s
C
M
Y
K