Fréttablaðið - 28.09.2015, Qupperneq 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —2 2 6 . t ö l u b l a ð 1 5 . á r g a n g u r M á n u d a g u r 2 8 . s e p t e M b e r 2 0 1 5
Sími
512 4900
landmark.is
Kvikmyndasýning í lauginni Ævintýri Múmínálfanna, Halastjarnan, var sýnt við góðar undirtektir gesta í Sundlaug Kópavogs í gærdag. Sýningin er
hluti af kvikmyndaveislu Riff, alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í Reykjavík, sem hófst síðasta fimmtudag og lýkur 4. október. Fréttablaðið/Stefán
OrkuMál Greiðslur Orkuveitu
Reykjavíkur til Frumherja vegna
mælaleigu frá árinu 2001 til 2015
námu 5,7 milljörðum króna að
núvirði, eða 360 til 420 milljónum
króna árlega. Orkuveitan hefur nú
að fullu eignast mælasafnið að nýju
og 15 ára viðskiptasambandi fyrir-
tækjanna er lokið.
Orkuveitan greindi frá kaupum
dótturfélags síns, Veitna ohf., á mæla-
safni Frumherja í vikunni. Kaupverð-
ið var 1,6 milljarðar króna, en Frum-
herji keypti mælana á 590 milljónir
króna (að núvirði) af OR árið 2001.
Greiðslurnar þessi 15 ár voru
vegna alls rekstrar mælasafnsins, svo
sem launa og annar rekstrarkostnað-
ar, fjárfestinga í nýjum mælum vegna
stækkunar veitusvæðis og endur-
nýjana, prófana á mælum, þjónustu
við þá og útskipta ásamt ábyrgð á
mælum sem bila, segir í skriflegu
svari til Fréttablaðsins frá OR.
Þar segir jafnframt að stjórn-
endum Veitna og OR sé „ekki kunn-
ugt um þær forsendur sem lágu til
grundvallar ákvörðun um sölu á
sínum tíma og hafa ekki lagt mat
á hagkvæmni þeirrar ákvörðunar“,
við spurningunni um hversu hag-
stæð einkavæðingin hafi verið
Orkuveitunni þegar upp er staðið.
Rök fyrir endurkaupum á mæla-
safninu segir OR vera góða fjár-
hagslega stöðu fyrirtækisins en ekki
síður tæknilega uppbyggingu sem
best sé að annast án milliliða. „Til
lengri tíma stuðli ákvörðunin svo
að hagræðingu og sparnaði í rekstri,
viðskiptavinum Orkuveitunnar til
hagsbóta.“ - shá / sjá síðu 6
Leigðu mælana aftur
fyrir 5,7 milljarða
Forsvarsmenn OR geta ekki svarað hverju einkavæðing mælareksturs hafi skilað.
Ekki var um frekari
framlengingar að ræða
2001 - Frumherji hf. keypti mæla-
safn OR í kjölfar útboðs og leigði
OR til afnota. Frumherji hefur
síðan átt og rekið mælasafnið.
2007 - Eignarhaldsfélag í eigu
Finns Ingólfssonar og fleiri
fjárfesta kaupir allt hlutafé í fyrir-
tækinu. Annar samningur OR og
Frumherja var gerður eftir útboð.
2014 – Samningur Frumherja og
OR rann út og var þá framlengdur
til eins árs eða til maíloka 2015.
Ekki voru frekari möguleikar á
framlengingu í samningnum.
stjórnsýsla Fyrirtækið LC Ráð-
gjöf, í eigu Guðfinnu Bjarnadóttur,
fyrrverandi þingmanns Sjálfstæðis-
flokks, sem vann að læsisverkefni
mennta- og menningarmálaráð-
herra, vann á sama tíma verkefni
fyrir atvinnuvegaráðuneyti um
stefnumótun í ferðaþjónustu.
Fyrirtækið fékk 17,2 milljónir
króna fyrir vinnu að ferðamála-
stefnu og tæpar tólf milljónir vegna
læsisverkefnisins.
„Það getur vel verið að þetta sé
innan allra reglna en það er svo-
lítið pólitískt svell að semja svona
við fyrrverandi liðsfélaga án þess
að leita tilboða,“ segir Grétar Þór
Eyþórsson, prófessor í stjórnmála-
fræði, um málið. „Menn ættu í ríkara
mæli að leita tilboða við sem flest-
um verkum.“
Birgitta Jónsdóttir, þingmaður
Pírata, vill að stjórnskipunar- og
eftirlitsnefnd þingsins fjalli um
málið. - sa / sjá síðu 4
Vann bæði
fyrir ráðuneyti
menntamála-
og atvinnuvega
Fréttablaðið í dag
skOðun Guðmundur Andri um
umræðu um góða fólkið. 12-13
spOrt FH Íslandsmeistarar í sjö-
unda sinn í sögu félagsins. 14
tÍMaMót Vill femínískari nem-
endafélög í framhaldsskóla. 16
lÍfið Jóhannes Haukur Jóhannes-
son hárprúður og skeggjaður. 26
2 sérblöð l fólk l fasteignir
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015
0
2
-1
1
-2
0
1
5
1
0
:3
7
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
C
5
-0
B
F
0
1
6
C
5
-0
A
B
4
1
6
C
5
-0
9
7
8
1
6
C
5
-0
8
3
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
5
6
s
_
2
7
9
2
0
1
5
C
M
Y
K