Fréttablaðið - 28.09.2015, Side 2
NÁM Í TÖLVUVIÐGERÐUM
Næstu námskeið byrja 12. og 13. október
Þetta vinsæla námskeið er fyrir þá sem vilja starfa
við tölvuviðgerðir, uppfærslur og endurbætur.
Námskeiðið er verklegur undirbúningur fyrir A+
gráðurnar frá CompTIA.
Frábært skref inn í tækniheiminn.
Veður Fjölmargir sóttu Landhelgisgæsluna heim
Suðaustan- og austanátt og fer að
rigna í dag, fyrst suðaustanlands.
Norðlægari átt vestan til um kvöldið,
en hvessir fyrir austan og bætir í
úrkomu. Hiti 6 til 11 stig. Sjá Síðu 20
RannSókniR Rannsóknir sem Nátt
úruminjasafn Íslands leiðir í sam
starfi við Jarðvísindastofnun og
Líffræðistofu Háskóla Íslands hafa
leitt í ljós að nokkrir vel tenntir
rostungshausar og stakar rostungs
tennur sem fundust í Staðarsveit á
Snæfellsnesi árið 2008 eru af dýrum
sem höfðust við á svæðinu 100 til
200 árum fyrir Kristsburð. Þetta eru
sterkustu vísbendingar sem komið
hafa fram hingað til um fast aðsetur
rostunga við Ísland fyrr á tímum.
Rannsóknasamstarfið felur m.a.
í sér að varpa ljósi á fornlíffræði
rostunga hér við land, útskýra aldur
þeirra, jarðsögulega stöðu, líffræði
og hugsanleg tengsl við rostungs
stofna annars staðar í norðanverðu
Atlantshafi. Gagnasafnið sem liggur
að hluta til til grundvallar rann
sókninni er í vörslu Náttúrufræði
stofnunar Íslands og nær til beina
leifa um 50 rostunga sem fundist
hafa hér við land á undanförnum
100 árum eða svo, og er elsta sýnið
frá árinu 1884.
Hilmar J. Malmquist, forstöðu
maður NMÍ, var ásamt sérfræð
ingum frá Háskóla Íslands og Árós
arháskóla staddur að YtriGörðum
í Staðarsveit þegar Fréttablaðið
náði af honum tali, og var þar við
mælingar og sýnatöku úr nýjasta
rostungshausnum sem fannst í
ágústlok í Garðafjöru – stórri og
heillegri hauskúpu með báðum
skögultönnum.
„Þeir hausar og skögultönn úr
fjórða dýrinu voru aldursgreind
með C14 aðferð og voru ekki ein
asta firnagömul heldur voru öll
dýrin álíka gömul, þ.e. 2.1002.200
ára. Sú staðreynd að dýrin eru þetta
gömul og svipuð að aldri og jafn
framt fundin á afmörkuðu svæði
gefur sterklega til kynna að rostung
ar hafi haft fast aðsetur hér við land
og verið með látur á staðnum löngu
fyrir landnámstíð. Afar ólíklegt er
Rostungsbeinin frá því
löngu fyrir Kristsburð
Aldursgreining rostungabeina styður kenningu um fast aðsetur rostunga hér.
Hilmar J.
Malmquist
forstöðumaður
NMÍ
Styrkir umdeilda kenn-
ingu um taflmenn
Undirliggjandi
aldursgreiningu
rostungst-
annanna
er kenning
Guðmundar G.
Þórarinssonar
um að elstu
taflmenn heims
með nútímaútlit, Lewis-taflmenn-
irnir, séu íslenskir að uppruna.
Taflmennirnir fundust árið 1831
á skosku eyjunni Lewis. Þeir eru
flestir skornir úr rostungs tönn
og taldir gerðir á árabilinu 1150
til 1200. Taflmennirnir eru taldir
meðal merkustu forngripa í eigu
Breska þjóðminjasafnsins.
Lewis-taflmaður
Árný Sveinbjörnsdóttir, jarðfræðingur frá Jarðvísindastofnun, tekur sýni með dem-
antsbor úr skögultönn rostungs sem fannst í Garðafjöru í ágústlok. Mynd/Hilmar
að þessir gömlu rostungar tengist
skipaskaða við ströndina eftir að
land byggðist, eins og ein kenningin
sagði til um,“ segir Hilmar.
„Þessar rannsóknir eru mikilvæg
ar fyrir skilning okkar á náttúrusögu
landsins og hvernig kringumstæður
voru hér fyrr á tímum og, ekki síður,
geta þær varpað nýju ljósi á menn
ingarsögu þjóðarinnar, m.a. í tengsl
um við rostungsörnefni og nýtingu
rostungsafurða á borð við tennur og
húðir.“
svavar@frettabladid.is
Hátt á þriðja þúsund manns kom við á opnu húsi í flugskýli Landhelgisgæslunnar á Reykjavíkurflugvelli í gær, að því fram kemur á vef Gæslunnar. Til
sýnis voru þyrlur, flugvél, sprengjubíll, bátar, köfunarbúnaður, sjókort, myndir og margvíslegur búnaður annar. Fréttablaðið/Stefán
TRúmál Frans páfi hitti í heimsókn
sinni til Bandaríkjanna í gær fimm
einstaklinga, þrjár konur og tvo
karla, sem í æsku voru beittir kyn
ferðisofbeldi. Ekki er vitað hversu
stór hluti þeirra var misnotaður af
prestum, en á fréttavef Breska ríkis
útvarpsins, BBC, er páfi sagður hafa
sagt þeim að kirkjufólk og biskupar
sem beittu slíku ofbeldi eða létu hjá
líða að vernda börn, þyrftu að svara
fyrir gjörðir sínar.
„Guð grætur vegna þessara þján
inga,“ sagði hann við fólkið, sem nú
er fullorðið en varð fyrir ofbeldinu á
barnsaldri. Fundur með fólkinu átti
sér stað í prestaskóla í Pennsylvaníu
í gærmorgun, en í tilkynningu sem
send var út eftir hann kemur fram
að gerendur í málum fólksins hafi
verið fjölskyldumeðlimir, kenn
arar eða prestar.
Páfi lýsti hryggð sinni yfir þeim
skiptum þegar ekki var tekið mark
á fórnarlömbum og fjölskyldum
þeirra þótt glæpir hefðu verið til
kynntir. „Verið viss um að hinn helgi
faðir bæði heyrir og trúir,“ sagði
hann við þolendur glæpanna.
Heimsókn páfa til Bandaríkjanna
lauk í gær. -kak, óká
Páfi segir
Guð gráta
þjáningar
barna
Frans páfi kom í sína fyrstu heimsókn
til Bandaríkjanna fyrir helgi, en henni
lauk í gær.
HvíTa-RúSSland Christine Lagarde,
framkvæmdastjóri Alþjóðagjald
eyrissjóðsins (AGS), fundaði um
helgina með Alexander Lúkasjenkó,
forseta HvítaRússlands. Þau fóru
yfir efnahagsástandið í landinu og
ræddu möguleikana á að koma á fót
umbótaáætlun með stuðningi AGS.
Ræða áætlun
undir hatti AGS
Talsmaður sjóðsins segir að La
garde fagni áföngum sem náðst hafi
nýlega við að styrkja umgjörð stefnu
mótunar í HvítaRússlandi, en leggi
áherslu á að víðtækari endurskipu
lagningar sé þörf, með stuðningi
á æðstu stöðum, til þess að endur
heimta stöðugleika og sjálfbæran
hagvöxt í landinu. Í þeim efnum
skipti máli tilmæli í nýlegri heimsókn
sendinefndar sjóðsins. - kak
Christine Lagarde
framkvæmdastjóri
Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins
2 8 . S e p T e m b e R 2 0 1 5 m á n u d a G u R2 f R é T T i R ∙ f R é T T a b l a ð i ð
0
2
-1
1
-2
0
1
5
1
0
:3
7
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
C
5
-2
4
A
0
1
6
C
5
-2
3
6
4
1
6
C
5
-2
2
2
8
1
6
C
5
-2
0
E
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
5
6
s
_
2
7
9
2
0
1
5
C
M
Y
K