Fréttablaðið - 28.09.2015, Síða 6

Fréttablaðið - 28.09.2015, Síða 6
Inniheldur 11,6 mg af díklófenaktvíetýlamíni. Ábendingar: Staðbundnir bólgukvillar. Skammtar og lyfjagjöf Fullorðnir og börn 14 ára og eldri: 2-4 g af hlaupi borið á aumt svæði 3-4 sinnum á sólarhring. Mælt er með handþvotti eftir notkun, nema verið sé að meðhöndla hendur. Ef meðhöndla á bráð, minniháttar meiðsli í stoðkerfi skal ekki nota Voltaren lengur en 7 daga án samráðs við lækni. Hafið samband við lækninn ef einkenni eru viðvarandi eða versna eftir meðferð í 7 sólarhringa. Frábendingar: Ofnæmi fyrir einhverju innihaldsefnanna, asetýlsalisýlsýru og öðrum bólgueyðandi gigtarlyfjum (NSAID). Sjúklingar sem hafa fengið astma, ofsakláða eða bráða nefslímubólgu af völdum asetýlsalisýlsýru eða annarra bólgueyðandi gigtarlyfja (NSAID) eiga ekki að nota lyfið. Má ekki nota á síðustu 3 mánuðum meðgöngu. Má ekki nota handa börnum og unglingum 14 ára og yngri. Sérstök varnaðarorð: Má eingöngu bera á heila og heilbrigða húð og alls ekki á slímhúðir, augu, sár, exem, vessandi húðbólgu. Getur valdið húðertingu. Varast skal mikið sólarljós, notkun samhliða bólgueyðandi lyfjum eða að hylja notkunarsvæðið með loftþéttum umbúðum. Gæta skal sérstakrar varúðar hjá öldruðum eða astma-/ofnæmis-sjúklingum (hefur valdið berkjukrampa). Hætta á meðferð ef útbrot koma fram eftir notkun. Við notkun á stór húðsvæði eykst hættan á altækum aukaverkunum, t.d. á nýru. Við brjóstagjöf eða meðgöngu má eingöngu nota lyfið í samráði við lækni. Getur dregið úr frjósemi en þau áhrif ganga til baka. Lesið leiðbeiningar á umbúðum og í fylgiseðli fyrir notkun. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Markaðsleyfis hafi: Novartis Healthcare A/S. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ. Viltu meðhöndla liðverkinn án þess að taka töflur? 150g50% meira m ag n! Prófaðu að meðhöndla liðverkina með Voltaren geli. Lyaauglýsing Voltaren-Gel-NEW-5x10 copy.pdf 1 13/05/15 16:53 Viðskipti Forsvarsmenn Orkuveitu Reykjavíkur (OR) og Veitna, dóttur- félags OR, treysta sér ekki til að meta hvort ákvörðun fyrirtækisins um að selja allt mælasafn fyrirtækisins árið 2001 og að leigja það aftur til afnota hafi verið fyrirtækinu hag- felld. Á tímabilinu fram til miðs árs 2015 greiddi fyrirtækið Frumherja 5,7 milljarða króna að núvirði í leigu fyrir mælasafnið. Samningar tókust nýlega á milli Veitna ohf., og Frumherja um að Veitur keypti til baka alla mæla fyrir rafmagn og heitt og kalt vatn á þjónustusvæði sínu. Mælarnir eru um 150.000 talsins og er kaupverðið tæpir 1,6 milljarðar króna. Eins og áður segir greiddi OR Frum- herja 5,7 milljarða í leigu frá 2001. Voru greiðslur núvirtar á bilinu 360 til 420 milljónir á ári. Greiðslurnar voru vegna alls rekstrar mælasafnsins, svo sem launa og annars rekstrarkostnað- ar, fjárfestinga í nýjum mælum vegna stækkunar veitusvæðis og endur- nýjana, prófana á mælum, þjónustu við þá og útskipta ásamt ábyrgð á mælum sem bila, segir í skriflegu svari til Fréttablaðsins frá OR. Þar segir jafnframt að stjórn- endum Veitna og OR sé „ekki kunn- ugt um þær forsendur sem lágu til grundvallar ákvörðun um sölu á sínum tíma og hafa ekki lagt mat á hagkvæmni þeirrar ákvörð- unar“, við spurningunni um hversu hagstæð viðskiptin hafi verið Orkuveitunni þegar upp er staðið. Að öðru leyti vísar Orku- veitan í fréttatilkynningar sínar um upplýsingar um söluna en ákvörðunin um að taka við mælasafninu á ný er einkum byggð á því að mælarnir eru hluti af dreifi- kerfinu sem er kjarnastarf- semi fyrirtækisins. Megininn- tak í stefnuyfirlýsingu OR og eigenda hennar sé einmitt að hlúa beri sem mest og best að kjarna- starfseminni. Þá sé ör tækniþróun á sviði mælabúnaðar og fyrirtækið þurfi að stýra þeirri uppbyggingu og þróun án milliliða milli fyrirtækis- ins og viðskiptavina. Ein meginástæðan er eins að OR telur sig hafa góða fjárhagslega burði til að taka mælana í hús til sín að nýju, „enda hefur viðsnúningur í rekstri hennar tekist betur en áætlað var. Til lengri tíma stuðlar ákvörðunin svo að hagræðingu og sparnaði í rekstri, viðskiptavinum til hagsbóta.“ svavar@frettabladid.is OR veit ekki hverju einkavæðing skilaði Hvorki forsvarsmenn Orkuveitu Reykjavíkur né dótturfélagsins Veitna treysta sér til að meta hvort einkavæðing á hluta starfsemi OR árið 2001 hafi verið góð hugmynd. OR hefur keypt mælana aftur. Borgaði Frumherja 5,7 milljarða króna í leigu. stjórnmál Þingmenn úr fimm stjórnmálaflokkum hafa lagt fram frumvarp til laga um breytingar á lögum um brottnám líffæra. Með breytingartillögunni vilja þingmenn koma á svokölluðu „ætl- uðu samþykki“ sem þýðir að ekki sé ástæða til að áætla að látinn ein- staklingur hafi verið mótfallinn því að leyfa nýtingu líffæra sinna nema annað sé tilgreint. Líffæragjafakerfi sem innihalda „ætlað samþykki“ þykja töluvert skilvirkari. Í Austurríki er til dæmis nýst við kerfið og þar er ætlað sam- þykki um 99 prósent á meðal hugs- anlegra líffæragjafa. Í Þýskalandi er nýst við kerfi sem byggir á fyrirfram- gefnu samþykki en þar í landi hlýst samþykki um 12 prósent hugsan- legra líffæragjafa. - srs Þarf ekki samþykki fyrir líffæragjöf Bíllausi dagurinn haldinn hátíðlegur í París Fólk nýtti sér tækifærið til útivistar við Sigurbogann í París í gær á Avenue des Champs-Élysées, þegar borgin hélt „bíllausan“ dag. Miðborgin var víða lokuð bílum og fjöldi gangandi og hjólandi á ferðinni. Fréttablaðið/EPa Stjórnendum Veitna og OR er ekki kunn- ugt um þær forsendur sem lágu til grundvallar ákvörð- un um sölu á sínum tíma og hafa ekki lagt mat á hag- kvæmni þeirrar ákvörðunar. Úr skriflegu svari OR til Fréttablaðsins 150.000 mæla kaupir OR á 1,6 milljarða króna. 2 8 . s e p t e m b e r 2 0 1 5 m á n U D A G U r6 f r é t t i r ∙ f r é t t A b l A ð i ð 0 2 -1 1 -2 0 1 5 1 0 :3 7 F B 0 5 6 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 6 C 6 -8 3 3 0 1 6 C 6 -8 1 F 4 1 6 C 6 -8 0 B 8 1 6 C 6 -7 F 7 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 5 6 s _ 2 7 9 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.