Fréttablaðið - 28.09.2015, Page 12
Frá degi til dags
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis
á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871
fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is og Viktoría Hermannsdóttir viktoria@frettabladid.is
menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is ljóSmyndir: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚtlitShönnun: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
Halldór
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
MIÐASALA ER
HAFIN Á TIX.IS
EYÞÓR INGI · MAGNI · VALDIMAR · SALKA SÓL
ÁSAMT SÉRSVALINNI ROKKSVEIT
UNDIR STJÓRN JÓNS ÓLAFSSONAR
HÁSKÓLABÍÓ
31. OKTÓBER
Í REYKJAVÍK VEGNA FJÖLDA ÁSKORANNA!
Engum dylst að nýsköpun, sem nýtur aukins ríkis-stuðnings, hefur verið og er einn af leiðarvísunum við endurreisn samfélagsins eftir 2008. Stór hluti nýsköp-
unar snýst um tæki og tól.
Skoði menn vél frá Marel, gólf úr umhverfisvænstu
steypu heims (Ecocrete) eða tækjasamstæðu úr stáli í Hellis-
heiðarvirkjun, sem minnir á litla geimstöð, má spyrja: Hver
leggur, hver smíðar? Og áfram: Hverjir leggja íslenskan raf-
búnað, í nýtt, erlent iðjuver? Hverjir fá verðlaun í erlendri
samkeppni um matarrétti og hárgreiðslu – eða hljóta
verðlaun fyrir prentgripi unna á Íslandi? Það eru íslenskir
iðnaðarmenn. Sú fagmennska sem einkennir 30-40 iðn-
greinar hefur orðið til og þróast allt frá því danskir, þýskir
og íslenskir iðnaðarmenn komu á nútíma vinnubrögðum
við þær flestar.
Fagmennska innifelur margt: Endingargóða vöru, trausta
þjónustu, sanngjarnt verð, öryggi og ábyrgð vegna löggild-
ingar iðngreina og loks færslu á þekkingu og vinnubrögðum
frá einni kynslóð til annarrar. Tækni getur gert að verkum að
mörk milli greina hverfa að hluta og ófaglært fólk freistast
til að vinna fyrir greiðslu við ýmislegt sem áður var of flókið.
Hitt verður þá að muna: Samfélagið á skilið að sem mest
fagmennska standi undir þjónustu, smíðum, viðgerðum og
öðru því sem greiða þarf fyrir og gerir lífið léttara og betra.
Hvað þá með iðnmenntunina sem mikið er í tísku að hvetja
til og óska eftir? Hún hlýtur að eiga að endurspegla kröfur
um fyrsta flokks iðnaðarmenn - konur og karla.
Nú er stefnt hröðum og hljóðum skrefum að því að
einkavæða iðnnám að stórum hluta, stytta námið, minnka
starfsþjálfun, snarfækka löggiltum greinum, semja náms-
skrár á skrifstofum, grafa undan slípuðu meistarakerfi
með því að hætta samfelldri handleiðslu og koma ábyrgð
á nemum á herðar fyrirtækja og skóla. Þarna er víða rangt
að farið. Það verður að kynna stöðu iðnmenntunar og
fyrirhugaðar breytingar á henni, efna til umræðu á mörgum
stöðum, að Alþingi meðtöldu, og sjá til þess að góð staða
iðna á Íslandi breytist ekki í afturför.
Nýsköpun – fagmennska
– iðnmenntun
Stór hluti
nýsköpunar
snýst um
tæki og tól.
Ari Trausti
Guðmundsson
rithöfundur og
jarðvísindamaður
Samkvæmt fjárlögum 2016 er gert ráð fyrir all-nokkurri hækkun á fjárframlögum til Þjóð-kirkjunnar og verður heildarupphæðin 5.848,4 milljónir króna. Það eru miklir peningar. Pen-ingar sem koma úr vösum skattgreiðenda alveg óháð því með hvaða fótboltaliði viðkomandi
heldur, hvort hann er ljóðelskur, rauðhærður eða hvað
þá hver kynhneigð viðkomandi er. Slíkt væri auðvitað
forkastanlegt þar sem það er öllum sem tilheyra þessari
þjóð velkomið að vera innan Þjóðkirkjunnar. Þannig að
Þjóðkirkjan tekur við þessum peningum af fordómaleysi
og með opnum huga og nýtir þá til fjölbreyttrar og öflugar
starfsemi víða um land.
Reyndar er það svo að þeir sem tilheyra Þjóðkirkjunni
og taka af og til upp á að nýta sér þjónustu hennar þurfa þá
að borga fyrir það sérstaklega. Borga fyrir að skíra og ferma,
borga fyrir að ganga í hjónaband, borga fyrir að hætta við
og skilja, að ógleymdri greiðslu fyrir það að láta syngja yfir
sér svo maður komist nú í himnasæluna. Allt kostar sitt og
allt fá þjónar kirkjunnar aukasporslu fyrir.
Það er þó bæði ljúft og skylt að taka fram að innan
vébanda Þjóðkirkjunnar starfar fullt af góðu fólki sem
vinnur oft erfið störf af ósérhlífni og með náungakærleik
að leiðarljósi og það er ekki gert peninganna vegna. Þessir
þjónar kirkjunnar eiga allt gott skilið.
Vegna þess að þetta fólk skilur að það er þjónar. Þjónar
kirkju sem hefur þá skyldu að þjónusta söfnuði sem inni-
halda manneskjur sem eiga að sjálfsögðu skýlausan rétt á
þeirri þjónustu sem Þjóðkirkjan fær greitt fyrir að inna af
hendi. Persónuleg trúarsannfæring viðkomandi þjóns, sem
verða eiginlega að kallast persónulegir fordómar, veitir við-
komandi auðvitað ekki nokkurn rétt til þess að hafna því að
vinna ákveðin verk sem meðlimur safnaðarins óskar eftir.
Barnaskólakennari sem hefur þá persónulegu sannfær-
ingu að ekki sé rétt að kenna rauðhærðum að lesa því það
leiði kannski til þess að viðkomandi gerist skáld og fylli-
bytta, getur ekki látið eftir sér slíka dellu. Það er ekki nóg
að flytja rauðhærðu börnin í annan skóla. Kennarinn þarf
að finna sér eitthvað annað að gera eða reyna að komast yfir
sína persónulegu fordóma.
Að prestur geri sér þá grillu að prestsstarfið lúti einhverj-
um öðrum lögmálum og það sé þannig í lagi að hafna því
prestsverki að gefa saman tvo einstaklinga af sama kyni er
á engu minni villigötum en barnaskólakennarinn sem er illa
við rauðhærðu krakkana.
Þjónn sem neitar að vinna vinnuna sína þarf að finna sér
aðra vinnu. Innanríkisráðherra þarf strax að taka af allan
vafa með þetta og biskup má ekki láta sitt eftir liggja vilji
hún vera tekin alvarlega sem leiðtogi Þjóðkirkjunnar sem
þiggur milljarða árlega úr vösum safnaðarmeðlima sinna.
Öll umræða um samviskufrelsi presta er móðgandi og lítils-
virðandi fyrir alla einstaklinga sem elska manneskju af sama
kyni og reyndar líka fyrir alla þá sem standa í þeirri mein-
ingu að Þjóðkirkjan standi öllum kristnum einstaklingum
opin og til þjónustu reiðubúin. Líka fyrir rauðhærða.
Líka fyrir
rauðhærða
Að prestur
geri sér þá
grillu að
prestsstarfið
lúti einhverj-
um öðrum
lögmálum
og það sé
þannig í lagi
að hafna
því prests-
verki að gefa
saman tvo
einstaklinga
af sama kyni
er á engu
minni villi-
götum en
barnaskóla-
kennarinn
sem er illa
við rauð-
hærðu
krakkana.
SDG lofar SDG
Þó að Sigmundur Davíð Gunnlaugs-
son sé duglegur við að lofa eigin
verk er hér um að ræða góða lof-
ræðu hans um sjálfbær þróunar-
markmið Sameinuðu þjóðanna
(Sustainable development goals).
Ánægjulegt er að Sigmundur skuli
hafa lagt mikla áherslu á um-
hverfismál í ræðu sinni. Þar sagði
Sigmundur að stefnt væri á að
draga úr gróðurhúsalofttegundum
um 40 prósent. Árni Finnsson,
formaður Náttúruverndarsamtaka
Íslands, fagnaði ræðu Sigmundar
og sagði að hún væri afdráttar-
lausari en fyrri yfirlýsingar. Þó hefur
nokkuð verið dregið í land með
þetta en Sigmundur átti þar við
að Ísland tæki þátt í sameiginlegu
markmiði Evrópusambandsins um
að draga úr losun gróðurhúsaloft-
tegunda um 40 prósent. Enn á eftir
að semja um hlut Íslands.
En hvað með olíuna?
Þó er það jákvætt að forsætisráð-
herra skuli leggja áherslu á þennan
málaflokk og gaman verður að sjá
hve metnaðarfull markmið stjórn-
valda verða. Spurning er hvort að
markmiðin muni setja mark sitt á
stefnu ríkisstjórnarinnar en hugsan-
lega þarf að endurskoða eftirfarandi
klausu úr stjórnarsáttmálanum:
„Ríkisstjórnin mun eins og kostur
er stuðla að því að nýting hugsan-
legra olíu- og gasauðlinda geti hafist
sem fyrst, finnist þær í vinnanlegu
magni.“ stefanrafn@frettabladid.is
2 8 . s e p t e m b e r 2 0 1 5 m Á N U D A G U r12 s k o ð U N ∙ F r É t t A b L A ð i ð
SKOÐUN
0
2
-1
1
-2
0
1
5
1
0
:3
7
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
C
6
-5
6
C
0
1
6
C
6
-5
5
8
4
1
6
C
6
-5
4
4
8
1
6
C
6
-5
3
0
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
5
6
s
_
2
7
9
2
0
1
5
C
M
Y
K