Fréttablaðið - 06.10.2015, Blaðsíða 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —2 3 3 . t ö l u b l a ð 1 5 . á r g a n g u r þ r i ð j u d a g u r 6 . o k t ó b e r 2 0 1 5
Fréttablaðið í dag
skoðun Tryggvi Gíslason skrifar
um kynferði dómara. 12-13
sport Yfir 100 erlend mörk. 14
Menning Leikverkið Lokaæfing
fær tvær stjörnur. 21
lÍfið Hljómsveitin Simply Red
heldur tónleika í Laugardalshöll.
24-26
plús 2 sérblöð l fólk l bÍlar
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015
FÁRÁNLEGA
FLOTTUR
PAKKI
FÁÐU ÞÉR
ÁSKRIFT
á 365.is
SKEMMTIPAKKINN
Aðeins 310 kr. á dag
Með því að greiða 1.990 kr. aukalega
færðu endalaust tal og 1 GB í GSM.
365.is
Sími 1817
Kyrrð við Vífilsstaðavatn Litir haustsins spegluðu sig í Vífilsstaðavatni í gær. Samkvæmt Veðurstofunni skiptast á skin og skúrir á höfuðborgarsvæðinu næstu daga. Fréttablaðið/anton brink
landbúnaður Sauðfjárbændur þurfa
einungis að hafa 70 prósent sauðfjár
á vetrarfóðrum til að fá fullar bein-
greiðslur fyrir þau ærgildi sem þeir
eiga. Ekkert eftirlit er með því hvort
bændur gefi upp rétta tölu sauðfjár
hjá sér.
Sauðfjárræktandi með 500 ærgildi
þarf því aðeins að hafa 350 kindur á
vetrarfóðrum til að fá að fullu greitt
fyrir þau ærgildi sem hann á. Ríkið
greiðir sauðfjárbændum um 2,5
milljarða árlega fyrir að halda sauðfé.
Sigurður Ingi Jóhannsson landbún-
aðarráðherra undirritaði reglugerð
þess efnis í vikunni. Hann segir hlut-
fallið hafa haldist óbreytt milli ára.
„Ástæða þess að engin breyting er
núna á ásetningarhlutfallinu er að
það er ekki skortur á kjöti. Við hækk-
uðum hlutfallið fyrir nokkrum árum
þegar leit út fyrir skort á lambakjöti.
Hins vegar er það ekki raunin í ár
og því ákváðum við að halda þessu
óbreyttu,“ segir Sigurður Ingi.
Samkvæmt lögum um búfjárhald
eiga allir sauðfjárbændur að vera
búnir að senda skýrslu um fjölda
sauðfjár á fæti hjá sér fyrir 20. nóvem-
ber. Matvælastofnun er skylt að fara
í eftirlitsferðir til þeirra sem ekki
skila inn skýrslu til að telja sauðfé á
kostnað bænda.
Matvælastofnun er jafnframt heim-
ilt að fara í skoðun til sauðfjárbænda
til að sannreyna upplýsingagjöf
þeirra. Matvælastofnun hefur aldrei
frá því ný lög um búfjárhald tóku gildi
árið 2013 farið í þessar eftirlitsferðir
og treyst bændum fyrir þessu.
Milljarðar króna renna til sauðfjár-
bænda árlega í formi beingreiðslna
án þess að eftirlit sé með því hvort
bændur gefi upp rétta tölu sauðfjár
hjá sér.
Sverrir Þ. Sverrisson, sérfræðingur
hjá Matvælastofnun, segir stofnun-
ina fara í fjölda eftirlitsferða á hverju
ári.
„Hins vegar höfum við ekki farið í
ferðir til þeirra sem eru búnir að skila
inn búfjárskýrslu til að sannreyna
upplýsingar þeirra. Við höfum meira
verið í því að eltast við bændur sem
ekki skila inn búfjárskýrslum,“ segir
Sverrir. „Ef grunur leikur á að menn
séu ekki að fara rétt með í búfjár-
skýrslum þá skoðum við vissulega
slík mál.“ sveinn@frettabladid.is
Beingreiðslur til bænda
án eftirlits um fjölda áa
Sauðfjárbændur þurfa aðeins að halda sjötíu prósent þeirra kinda sem ríkið
borgar þeim fyrir til að fá fulla greiðslu. Skortir ekki kjöt, útskýrir landbún aðar
ráðherra. Ekkert eftirlit er með búfjárskýrslum bænda til Matvælastofnunar.
2,5 milljarðar
króna renna árlega úr ríkis-
sjóði til að greiða bændum
fyrir að halda sauðfé.
Við höfum ekki
farið í ferðir til
þeirra sem eru
búnir að skila
inn búfjár-
skýrslu til
að sann-
reyna
upplýsingar
þeirra.
Sverrir Sverrisson,
sérfræðingur hjá Matvælastofnun
lögregluMál „Skjólstæðingur
minn lýsir yfir sakleysi sínu. Hann
hefur aldrei komist í kast við lögin
og veit ekkert hverjir hinir einstak-
lingarnir eru,“ segir Hólmgeir Elías
Flosason, verjandi eins þeirra sem
grunaðir eru um að vera viðriðnir
innflutning á tugum kílóa sterkra
fíkniefna.
Fréttablaðið greindi frá því í gær
að lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
hefði lagt hald á efnin síðastliðinn
mánudag, en þau fundust í bíl sem
kom til landsins með Norrænu 22.
september síðastliðinn.
Tollverðir á Seyðisfirði leituðu
í bílnum eftir að fíkniefnahundur
tollgæslunnar sýndi honum athygli.
Engin efni fundust þó í bílnum við
leitina. Lögreglan lagði hald á efnin
viku síðar eftir að hafa fylgst með
bílnum.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins eru efnin sem um ræðir
kókaín og amfetamín.
Tveir Íslendingar og tveir Hol-
lendingar á þrítugs- og fertugsaldri
sitja í gæsluvarðhaldi vegna máls-
ins. – ngy/ sjá síðu 6
Segist saklaus af
fíkniefnasmygli
tollgæsla á Seyðisfirði. mynd/Stöð 2
0
2
-1
1
-2
0
1
5
1
0
:3
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
C
1
-F
5
F
0
1
6
C
1
-F
4
B
4
1
6
C
1
-F
3
7
8
1
6
C
1
-F
2
3
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
5
1
0
2
0
1
5
C
M
Y
K