Fréttablaðið - 06.10.2015, Side 10
Svíþjóð Þrír vísindamenn deila með
sér Nóbelsverðlaununum í læknisfræði
í ár. Verðlaunin verða afhent í Svíþjóð í
desember.
Japanski vísindamaðurinn Tu You-
you fær verðlaunin fyrir að uppgötva lyf
sem nefnist artemisinin og er notað við
malaríu. Lyfið bjargar milljónum árlega.
Þá uppgötvuðu Japaninn Satoshi
Omura og Bandaríkjamaðurinn
William Campbell lyf sem nefnist aver-
mectin og gagnast milljónum manna
gegn tveimur erfiðum sjúkdómum;
fljótablindu og fílaveiki.
Öllum þessum þremur sjúkdómum
valda sníkjudýr, sem herja á fólk. Mal-
arían berst í menn með moskítóflugum,
sem skilja eftir sig einfrumunga sem
ráðast á rauðu blóðkornin og valda
stundum heilaskemmdum og dauða.
Fljótablindan og fílaveikin berast í
menn með hringormum. Fljótablindan
getur, eins og nafnið bendir til, valdið
blindu en fílaveikin veldur miklum
bólgum í fótum og víðar á neðri hluta
líkamans.
„Þessar tvær uppgötvanir hafa fært
mannkyninu öflug ný tæki í baráttunni
við þessa sjúkdóma, sem hafa áhrif á
hundruð milljóna manna á ári hverju,“
segir í tilkynningu frá sænsku Nóbels-
nefndinni. – gb
Lyf sem gagnast milljónum
Hans Forssberg, frá sænsku Nóbelsnefndinni, kynnir verðlaunahafa ársins í læknis-
fræði á blaðamannafundi í Stokkhólmi í gær. Fréttablaðið/EPa
www.volkswagen.is
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði
UPPFÆRSLUBÓNUS
VOLKSWAGEN
+65.000 kr.
VW Up! frá aðeins:
1.790.000 kr.
UP!ÁHALDIÐ
Litli borgarbíllinn með stóru kostina.
Komdu í reynsluakstur á nýjum Volkswagen Up! og láttu hann koma þér á óvart.
Við erum illa svikin ef hann verður ekki fljótlega í uppáhaldi hjá þér.
AfgAniStAn Bandaríski herinn segir
afganska hermenn hafi óskað loftárás-
ar á sjúkrahúsið í Kunduz um helgina.
Áður var fullyrt að bandarískir her-
menn hefðu óskað eftir árásinni.
Loftárásin kostaði 23 manns lífið.
Tíu þeirra voru sjúklingar á sjúkrahús-
inu, sem rekið er af alþjóðlegu lækna-
samtökunum Læknar án landamæra,
en 13 hinna látnu voru starfsmenn á
sjúkrahúsinu. Tugir manna særðust og
stór hluti sjúkrahússins er gjör ónýtur.
Læknasamtökin segja afgönsk
og bandarísk yfirvöld í reynd hafa
viðurkennt ábyrgð á stríðsglæp. Þau
yfirgáfu Kunduz eftir árásina.
„Læknum án landamæra býður
við nýlegum yfirlýsingum frá sumum
afgönskum embættismönnum þar
sem þeir réttlæta árásina á sjúkrahús
samtakanna í Kunduz,“ segir í yfirlýs-
ingu frá samtökunum. „Þetta jafnast á
við viðurkenningu á stríðsglæp.“
Samtökin segja ekkert geta rétt-
lætt árásina og ítreka kröfur sínar um
alþjóðlega rannsókn á henni.
„Við höfum nú komist að því að
þann 3. október hafi afganskir her-
menn látið vita af því að skotið
væri á þá frá óvinastöðum og óskað
eftir aðstoð frá bandarískum her-
þotum,” sagði John Campbell,
yfirmaður bandaríska herliðsins í
Afganistan. „Þá var efnt til loftárásar
til að útrýma hættunni, sem stafaði
af talibönum, og nokkrir saklausir
almennir borgarar urðu fyrir henni
af slysni.“
Harðir bardagar hafa geisað í
Kunduz undanfarna daga. Talib-
anar náðu borginni í síðustu viku en
afganski stjórnarherinn hefur reynt
að ná henni aftur, með aðstoð frá
Bandríkjaher.
Stjórnarherinn sagðist hafa náð
borginn eftir nokkurra daga bardaga,
en átökin héldu samt áfram og engan
veginn ljóst hvort þeim er lokið.
Kunduz er höfuðborg samnefnds
héraðs í norðvesturhluta landsins.
Íbúar eru flestir Pastúnar, sem búa
þó einkum í suðvesturhluta landsins.
Talibanar eiga mest ítök meðal Past-
úna og var Kunduz höfuðvígi þeirra
í norðvesturhluta landsins er þeir
voru við völd. gudsteinn@frettabladid.is
Bandaríkjaher biðst
afsökunar í Afganistan
Læknar án landamæra segja bandaríska herinn viðurkenna alvarlegan stríðs-
glæp í samstarfi við afganska herinn. Loftárás á spítala í Kunduz kostaði 23 lífið.
afganskir hermenn drógu á sunnudaginn afganska fánann að húni á ný í borginni
Kunduz, tæpri viku eftir að talibanar náðu borginni á sitt vald. Fréttablaðið/EPa
10 sjúklingar og 13
heilbrigðisstarfsmenn létust í
loftárás á sjúkrahús Lækna
án landamæra í Kunduz á
laugardag.
þúsund manns látast árlega
af völdum malaríu.
450
6 . o k t ó b e r 2 0 1 5 þ r i ð j U D A g U r10 f r é t t i r ∙ f r é t t A b L A ð i ð
0
2
-1
1
-2
0
1
5
1
0
:3
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
C
2
-9
8
E
0
1
6
C
2
-9
7
A
4
1
6
C
2
-9
6
6
8
1
6
C
2
-9
5
2
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
8
s
_
5
1
0
2
0
1
5
C
M
Y
K