Fréttablaðið - 06.10.2015, Side 24

Fréttablaðið - 06.10.2015, Side 24
Volkswagen golf TgI finnur Thorlacius Reynsluakstur L angódýrasta gerð Volkswagen Golf er metanútgáfa hans, Golf TGI, en hann kostar aðeins 3.090.000 kr. Ég trúði reyndar vart eigin augum þegar ég sá Heklu aug- lýsa þennan bíl fyrsta skipti og sá verðmiða hans. Ha, er virki- lega hægt að fá Golf á rétt ríf- lega 3 milljónir króna? Þetta varð náttúrulega til þess að ég varð að prófa bílinn og finna út hvort hann væri eins góður og allar þær aðrar gerðir Golf sem ég hef áður reynt. Skýr- ingin á þessu lága verði er að hann brennir bæði metangasi og bensíni og fellur í 0% vöru- gjaldsflokk líkt og um raf- magnsbíl væri að ræða. Mun- urinn á þessum bíl og t.d. raf- magnsútgáfu Golf, þ.e. e-Golf, er sá að miklu ódýrara er að framleiða Metan-Golfinn en e- Golf og innkaupsverðið er miklu lægra sem skilar sér beint til kaupandans. Raunar ættu kaup- endur að hafa í huga að þeir þurfa ekkert endilega að nýta sér metangasið sem bíllinn getur brennt, heldur geta ekið einungis á bensíninu með bros á vör bara vegna verðsins. Það eykur samt enn á ánægjuna að spara sér eldsneytiskostnað þar sem metangasið er enn talsvert ódýrara en bensín og vegna þess að bíllinn er bæði með eldsneyt- istank fyrir það og 50 lítra bens- íntank er drægi bílsins mjög mikið. Með 1.300 km drægi Vélin í Golf TGI er 1,4 lítra TGI sem skilar 110 hestöfl- um. Hestaflatalan er ekki með þeim hærri, en upplifunin við akstur hans bendir til allt ann- ars því hann togar jafn mikið og 122 hestafla 1,4 TSI-vél- in. Það kom mér verulega á óvart hvað bíllinn var snarpur og í reynsluakstrinum var að- eins ekið á metangasi, því aka hefði þurft æði langt til að klára það, en þá skiptir bíllinn yfir í bruna bensíns. Ekki fannst fyrir því að ekið væri á metangasi og hann er fullt eins aflmik- ill þannig. Heildardrægi Golf TGI er hreint með ólíkindum, eða 1.300 km og því má næstum aka heilan hring um landið án þess að fylla. Við reynsluakst- ur bílsins var ég í raun alltaf að bíða eftir því að finna hvort þessi nýja útgáfa Golf væri frá- brugðin eða verri öðrum gríð- argóðum útgáfum hans. En það bara fannst aldrei fyrir því, hann er bara alveg jafn góður, með sömu góðu aksturseigin- leikana og alveg eins að innan. Það eina sem er frábrugðið er að það eru tveir eldsneytis- mælar. Svo er enginn munur á búnaði og í „venjulegum“ Golf og sömu valmöguleikar á auka- hlutum. Talandi um aðrar gerð- ir Golf þá eru þær nánast ótelj- andi, með bensín- og dísilvél- um, sem tvinnbíll, rafmagnsbíll og nú metanbíll. Auk þess fæst hann sem aflmikill GTI-bíll og nánast sem ofurbíll í R-útgáf- unni. Útgáfurnar á Golf í verð- lista Heklu eru 28 og ekki dæmi um annað eins. Hljóðlát og þýðgeng vél Golf TGI er nú fyrsta skipti fáan legur af þessari sjöundu kynslóð Golf og var hann fyrst kynntur á bílasýningunni í Frankfurt, sem nú er nýafstað- in. Engu að síður er bíllinn kom- inn til Íslands. Áður framleiddi Volkswagen Passat í metan-út- færslu, en er nú hætt því og hefur snúið sér að Golf. Undir Volkswagen-regnhlífinni eru reyndar tveir aðrir bílar með sömu tækni, Audi A3 G-Tron og Skoda Octavia G-Tec og er Oct- avian líka fáanleg hjá Heklu. Athygli vekur hvað vélin í Golf TGI er hljóðlát og þýðgeng og talsverður munur á henni og dísil vélunum og einskis titrings gætir í bílnum. Þar sem bíllinn er 170 kílóum þyngri en í Golf með hefðbundnu 1,4 l TSI-bens- ínvélinni er hann þyngri í upp- taki og er þrátt fyrir sitt ágæta tog yfir 10 sekúndur í hundrað- ið, en samt finnst manni aldr- ei skorta afl við inngjöf. Merki- lega lítið finnst hins vegar fyrir þyngdinni í akstri og virðist sem þyngdardreifingin í bíln- um bjargi því og rásfesta hans er mjög góð og leggja má tals- vert mikið á bílinn áður en hann missir grip. Allt er mjög traust í bílnum og þétt og veghljóð lítið og hreint merkilegt að aka svo góðum bíl sem ekki kostar meira en þetta. Það er vafalaust að þakka hve mikið hefur verið lagt í þróun Golf í öllum sínum gerð- um, enda ástæða til fyrir bíl sem selst í meira en milljón eintök- um á ári um allan heim. frábær Dsg-sjálfskipting Hægt er að fá Golf TGI bæði með 6 gíra beinskiptingu og 7 gíra DSG sjálfskiptingu með tveimur kúplingum og þannig var reynsluakstursbíllinn. Þessi DSG-skipting er alveg frábær og þó svo gaman sé að fá ekki stærri bíl en þetta beinskiptan þá er DSG-sjálfskiptingin svo Mögnuð ódýrasta útfærsla golf brennir Metangasi Hver hefði trúað því að hægt væri að fá svo góðan bíl á ríflega 3 milljónir króna, en hér er kominn jafningi annarra útgáfna Volkswagen Golf sem bæði gengur fyrir metani og bensíni og er með 1.300 km drægi. JEPPADEKK fyrir íslenskar aðstæður Kletthálsi 3 | 110 Reykjavík | 540 4900 | www.arctictrucks.is f rir ísl s r st r Kletthálsi 3 | 110 Reykjavík | 540 4900 | .arctictrucks.is bílar Fréttablaðið 6 6. október 2015 ÞRIÐJUDAGUR 0 2 -1 1 -2 0 1 5 1 0 :3 1 F B 0 4 8 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 6 C 2 -5 3 C 0 1 6 C 2 -5 2 8 4 1 6 C 2 -5 1 4 8 1 6 C 2 -5 0 0 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 4 8 s _ 5 1 0 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.