Fréttablaðið - 06.10.2015, Qupperneq 24
Volkswagen golf TgI
finnur Thorlacius Reynsluakstur
L
angódýrasta gerð
Volkswagen Golf
er metanútgáfa
hans, Golf TGI, en
hann kostar aðeins
3.090.000 kr. Ég trúði
reyndar vart eigin
augum þegar ég sá Heklu aug-
lýsa þennan bíl fyrsta skipti og
sá verðmiða hans. Ha, er virki-
lega hægt að fá Golf á rétt ríf-
lega 3 milljónir króna? Þetta
varð náttúrulega til þess að ég
varð að prófa bílinn og finna
út hvort hann væri eins góður
og allar þær aðrar gerðir Golf
sem ég hef áður reynt. Skýr-
ingin á þessu lága verði er að
hann brennir bæði metangasi
og bensíni og fellur í 0% vöru-
gjaldsflokk líkt og um raf-
magnsbíl væri að ræða. Mun-
urinn á þessum bíl og t.d. raf-
magnsútgáfu Golf, þ.e. e-Golf,
er sá að miklu ódýrara er að
framleiða Metan-Golfinn en e-
Golf og innkaupsverðið er miklu
lægra sem skilar sér beint til
kaupandans. Raunar ættu kaup-
endur að hafa í huga að þeir
þurfa ekkert endilega að nýta
sér metangasið sem bíllinn
getur brennt, heldur geta ekið
einungis á bensíninu með bros
á vör bara vegna verðsins. Það
eykur samt enn á ánægjuna að
spara sér eldsneytiskostnað þar
sem metangasið er enn talsvert
ódýrara en bensín og vegna þess
að bíllinn er bæði með eldsneyt-
istank fyrir það og 50 lítra bens-
íntank er drægi bílsins mjög
mikið.
Með 1.300 km drægi
Vélin í Golf TGI er 1,4 lítra
TGI sem skilar 110 hestöfl-
um. Hestaflatalan er ekki með
þeim hærri, en upplifunin við
akstur hans bendir til allt ann-
ars því hann togar jafn mikið
og 122 hestafla 1,4 TSI-vél-
in. Það kom mér verulega á
óvart hvað bíllinn var snarpur
og í reynsluakstrinum var að-
eins ekið á metangasi, því aka
hefði þurft æði langt til að klára
það, en þá skiptir bíllinn yfir í
bruna bensíns. Ekki fannst fyrir
því að ekið væri á metangasi
og hann er fullt eins aflmik-
ill þannig. Heildardrægi Golf
TGI er hreint með ólíkindum,
eða 1.300 km og því má næstum
aka heilan hring um landið án
þess að fylla. Við reynsluakst-
ur bílsins var ég í raun alltaf
að bíða eftir því að finna hvort
þessi nýja útgáfa Golf væri frá-
brugðin eða verri öðrum gríð-
argóðum útgáfum hans. En það
bara fannst aldrei fyrir því,
hann er bara alveg jafn góður,
með sömu góðu aksturseigin-
leikana og alveg eins að innan.
Það eina sem er frábrugðið er
að það eru tveir eldsneytis-
mælar. Svo er enginn munur á
búnaði og í „venjulegum“ Golf
og sömu valmöguleikar á auka-
hlutum. Talandi um aðrar gerð-
ir Golf þá eru þær nánast ótelj-
andi, með bensín- og dísilvél-
um, sem tvinnbíll, rafmagnsbíll
og nú metanbíll. Auk þess fæst
hann sem aflmikill GTI-bíll og
nánast sem ofurbíll í R-útgáf-
unni. Útgáfurnar á Golf í verð-
lista Heklu eru 28 og ekki dæmi
um annað eins.
Hljóðlát og þýðgeng vél
Golf TGI er nú fyrsta skipti
fáan legur af þessari sjöundu
kynslóð Golf og var hann fyrst
kynntur á bílasýningunni í
Frankfurt, sem nú er nýafstað-
in. Engu að síður er bíllinn kom-
inn til Íslands. Áður framleiddi
Volkswagen Passat í metan-út-
færslu, en er nú hætt því og
hefur snúið sér að Golf. Undir
Volkswagen-regnhlífinni eru
reyndar tveir aðrir bílar með
sömu tækni, Audi A3 G-Tron og
Skoda Octavia G-Tec og er Oct-
avian líka fáanleg hjá Heklu.
Athygli vekur hvað vélin í Golf
TGI er hljóðlát og þýðgeng og
talsverður munur á henni og
dísil vélunum og einskis titrings
gætir í bílnum. Þar sem bíllinn
er 170 kílóum þyngri en í Golf
með hefðbundnu 1,4 l TSI-bens-
ínvélinni er hann þyngri í upp-
taki og er þrátt fyrir sitt ágæta
tog yfir 10 sekúndur í hundrað-
ið, en samt finnst manni aldr-
ei skorta afl við inngjöf. Merki-
lega lítið finnst hins vegar fyrir
þyngdinni í akstri og virðist
sem þyngdardreifingin í bíln-
um bjargi því og rásfesta hans
er mjög góð og leggja má tals-
vert mikið á bílinn áður en hann
missir grip. Allt er mjög traust í
bílnum og þétt og veghljóð lítið
og hreint merkilegt að aka svo
góðum bíl sem ekki kostar meira
en þetta. Það er vafalaust að
þakka hve mikið hefur verið lagt
í þróun Golf í öllum sínum gerð-
um, enda ástæða til fyrir bíl sem
selst í meira en milljón eintök-
um á ári um allan heim.
frábær Dsg-sjálfskipting
Hægt er að fá Golf TGI bæði
með 6 gíra beinskiptingu og 7
gíra DSG sjálfskiptingu með
tveimur kúplingum og þannig
var reynsluakstursbíllinn. Þessi
DSG-skipting er alveg frábær
og þó svo gaman sé að fá ekki
stærri bíl en þetta beinskiptan
þá er DSG-sjálfskiptingin svo
Mögnuð ódýrasta útfærsla golf
brennir Metangasi
Hver hefði trúað því að hægt væri að fá svo góðan bíl á ríflega 3 milljónir króna, en hér er kominn jafningi
annarra útgáfna Volkswagen Golf sem bæði gengur fyrir metani og bensíni og er með 1.300 km drægi.
JEPPADEKK
fyrir íslenskar aðstæður
Kletthálsi 3 | 110 Reykjavík | 540 4900 | www.arctictrucks.is
f rir ísl s r st r
Kletthálsi 3 | 110 Reykjavík | 540 4900 | .arctictrucks.is
bílar
Fréttablaðið
6 6. október 2015 ÞRIÐJUDAGUR
0
2
-1
1
-2
0
1
5
1
0
:3
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
C
2
-5
3
C
0
1
6
C
2
-5
2
8
4
1
6
C
2
-5
1
4
8
1
6
C
2
-5
0
0
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
8
s
_
5
1
0
2
0
1
5
C
M
Y
K