Fréttablaðið - 06.10.2015, Page 28
Ein mesta
útlits breytingin er
fólgin í nýjum LED
aðalljósum
Mælaborðið hefur
tekið jákvæðum
stakkaskiptum
Sætin eru nú miklu
betri og sérhönnuð
fyrir lengri ferðir
1,8 l bensínvél, 147 hestöfl
Framhjóladrif
Eyðsla 6,0 l/100 km
í bl. akstri
Mengun 140 g/km CO2
Hröðun 9,4 sek.
Hámarkshraði 200 km/klst.
Verð 3.970.000 kr.
Umboð Toyota á Íslandi
l Rými
l Áreiðanleiki
l Ljúfur í akstri
l Gott verð
l Skortir sportlega eigin-
leika
l Best útbúnu útfærslur
dýrar
ToyoTa avensis
ToyoTa avEnSiS
Finnur Thorlacius reynsluekur
T
oyota Avensis er bíll
sem seldist einkar vel
á Íslandi á árum áður
þegar markaðurinn
fyrir stærri fólksbíla
blómstraði. Eftir efna
hagshrunið hafa hins
vegar smærri fólksbílar og jepp
lingar að mestu tekið við magn
sölunni, en með bættum efnahag
er nú aftur farið að gæta sölu
á stærri fólksbílum. Toyota
Avensis er í stærðarflokki með
Ford Mondeo, Volkwagen Pass
at, Skoda Octavia, Mazda6 og
öðrum vinsælum bílum sem selj
ast í miklu magni um heim allan.
Í þessum flokki bíla er því mikil
samkeppni. Allir eiga þeir það
sammerkt að vera vel heppnað
ir og Toyota Avensis þar á meðal.
Þar fara rúmmiklir bílar sem
fara vel með fjölskyldur og heppi
legir fyrir stærri gerðir þeirra,
ekki síst þeirra ferðaglöðu. Verð
þeirra flestra í sínum ódýrustu
útfærslum er rétt undir 4 millj
ónum og það getur vart talist til
viljun að þeir eru allir á svo til
sama verðinu. Toyota Avensis má
fá á 3.970.000 kr. í Liveútfærslu
með 1,8 lítra bensínvél og bein
skiptan. Vart getur það talist hátt
verð fyrir stóran bíl sem er þó
ágætlega búinn. Hann er fram
leiddur í Evrópu, nánar tiltek
ið í Bretlandi, er sniðinn að þörf
um Evrópubúa og hefur selst í 1,7
milljónum eintaka í álfunni.
andlitslyfting á þriðju kynslóð
Toyota Avensis er nú af þriðju
kynslóð, en í ár er hann kom
inn andlitslyftur og enn meira
hlaðinn tækninýjungum. Þegar
Avensis kom fyrst á markað árið
1997 leysti hann af velli Toyota
Carina, sem margir muna eftir
og seldist mjög vel á Íslandi.
Hann var greinilega ágætlega
smíðaður bíll, líkt og Avensis,
því enn má sjá eintök af honum á
götum landsins. Talandi um end
ingu Toyotabíla þá þarf líklega
ekki að kynna hana fyrir Íslend
ingum, en þeir eru kunnir fyrir
mjög góða endingu, litla bilana
tíðni og hátt endursöluverð og
því má einnig búast við í tilfelli
Avensis. Toyota býður nú Avens
is með tveimur vélarkostum, 1,8
lítra besínvél sem er 147 hestöfl
og 1,6 lítra dísilvél sem afkastar
112 hestöflum. Til prófunar var
bensínbíllinn með sjálfskiptingu
og það í „sedan“útfærslu. Avens
is má sem fyrr einnig fá í lang
baksútfærslu og búast má við því
að hann seljist í meira magni, en
með því er kominn bíll með mikla
flutningsgetu.
Litlar breytingar að utan en meiri
að innan
Avensis hefur ekki breyst ýkja
mikið með andlitslyftingunni nú,
en þó er hún greinanleg og bíllinn
hefur fengið LEDaðalljós. Breyt
ingin að innan er miklu meiri og
vel hefur tekist til hjá Toyota þar
og meiri lúxustilfinning til stað
ar. Sætin eru nú miklu betri og
sérhönnuð fyrir lengri ferðir, auk
þess sem þau eru miklu flottari
útlits. Mælaborðið hefur einn
ig tekið jákvæðum stakkaskipt
um, en eins og ávallt virðist allt
vel smíðað og traustvekjandi þó
efnis valið mætti vera ríkulegra.
Átta tommu snertiaðgerða skjár
er fyrir miðju mælaborðinu og
auðvelt var að læra á allt þar.
Mælar bak við stýrið eru miklu
flottari og vel útlítandi upplýs
ingaskjár á milli hraðamælis og
snúningshraðamælis. Allt er ein
faldlega uppsett og því auðvelt
að læra á stjórntækin á stuttum
tíma, en það er sammerkt öðrum
Toyotabílum. Eftirtektarvert var
hve vel hefur tekist til við ein
angrun bílsins og mikil bót þar á
ferð og meira að segja miðstöð
in var orðin miklu hljóðlátari. Vel
er hægt að missa sig í að útbúa
bílinn flottustu innréttingunni
með flestum tækninýjungunum,
en hafa skal í huga að þá hækkar
verðið hratt. Dýrasta útgáfan, TS
Premium, með sömu vél og sjálf
skiptur kostar 6.190.000 kr. og
það er 56% dýrari bíll en grunn
gerðin, 2,22 milljónum dýrari og
tæplega réttlætanlegt.
Ljúfur og áreynslulaus akstur
Akstur Avensis er afar ljúfur og
áreynslulaus og það má meira að
segja taka hressilega á bílnum
sér til skemmtunar. Hann er þó
ekki með mestu aksturshæfnina
í sínum stærðarflokki og leggja
má meira á suma af keppinautum
hans. Það var heldur aldrei mein
ingin hjá Toyota að búa til stór
kostlega aksturshæfan bíl með
Avensis, til þess smíðuðu þeir lík
lega GT86sportbílinn skemmti
lega. Avensis á fyrst og fremst að
fara vel með ökumann og farþega
hans. Stýring bílsins er nákvæm
og hann fer fullkomlega þang
að sem til er ætlast en tilfinning
in fyrir akstrinum er ekki mjög
beintengd ökumanni og er því dá
lítið vélræn. Eitthvað sem ætti
að henta mjög mörgum, en flest
ir gera einmitt þá kröfu að bíll
inn einfaldlega hlýði sér og að
aksturinn sé ljúfur og ekki alltof
sportlegur. Þetta uppfyllir Avens
is af stakri prýði. Uppfærð 1,8
lítra vélin eyðir nú hálfum lítra
minna en forverinn og uppgefin
eyðsla í blönduðum akstri er 6,0
litrar. Með henni fer bíllinn í 100
á 9,4 sekúndum og hámarkshrað
inn er 200 km/klst. Nýuppfærður
Avensis er álitlegur kostur fyrir
þá sem kjósa áreiðanlegan stóran
bíl sem uppfyllir flestar þarfir og
býðst auk þess á afar viðráðan
legu verði.
UppfærðUr Avensis
sniðinn Að stærri fjölskyldUm
Toyota Avensis má fá á 3.970.000 kr. í Live-útfærslu með 1,8 lítra bensínvél og beinskiptan. Vart getur
það talist hátt verð fyrir stóran bíl sem er þó ágætlega búinn.
BílAr
Fréttablaðið
10 6. október 2015 ÞRIÐJUDAGUR
0
2
-1
1
-2
0
1
5
1
0
:3
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
C
3
-0
A
7
0
1
6
C
3
-0
9
3
4
1
6
C
3
-0
7
F
8
1
6
C
3
-0
6
B
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
8
s
_
5
1
0
2
0
1
5
C
M
Y
K