Fréttablaðið


Fréttablaðið - 06.10.2015, Qupperneq 28

Fréttablaðið - 06.10.2015, Qupperneq 28
Ein mesta útlits breytingin er fólgin í nýjum LED aðalljósum Mælaborðið hefur tekið jákvæðum stakkaskiptum Sætin eru nú miklu betri og sérhönnuð fyrir lengri ferðir 1,8 l bensínvél, 147 hestöfl Framhjóladrif Eyðsla 6,0 l/100 km í bl. akstri Mengun 140 g/km CO2 Hröðun 9,4 sek. Hámarkshraði 200 km/klst. Verð 3.970.000 kr. Umboð Toyota á Íslandi l Rými l Áreiðanleiki l Ljúfur í akstri l Gott verð l Skortir sportlega eigin- leika l Best útbúnu útfærslur dýrar ToyoTa avensis ToyoTa avEnSiS Finnur Thorlacius reynsluekur T oyota Avensis er bíll sem seldist einkar vel á Íslandi á árum áður þegar markaðurinn fyrir stærri fólksbíla blómstraði. Eftir efna­ hagshrunið hafa hins­ vegar smærri fólksbílar og jepp­ lingar að mestu tekið við magn­ sölunni, en með bættum efnahag er nú aftur farið að gæta sölu á stærri fólksbílum. Toyota Avensis er í stærðarflokki með Ford Mondeo, Volkwagen Pass­ at, Skoda Octavia, Mazda6 og öðrum vinsælum bílum sem selj­ ast í miklu magni um heim allan. Í þessum flokki bíla er því mikil samkeppni. Allir eiga þeir það sammerkt að vera vel heppnað­ ir og Toyota Avensis þar á meðal. Þar fara rúmmiklir bílar sem fara vel með fjölskyldur og heppi­ legir fyrir stærri gerðir þeirra, ekki síst þeirra ferðaglöðu. Verð þeirra flestra í sínum ódýrustu útfærslum er rétt undir 4 millj­ ónum og það getur vart talist til­ viljun að þeir eru allir á svo til sama verðinu. Toyota Avensis má fá á 3.970.000 kr. í Live­útfærslu með 1,8 lítra bensínvél og bein­ skiptan. Vart getur það talist hátt verð fyrir stóran bíl sem er þó ágætlega búinn. Hann er fram­ leiddur í Evrópu, nánar tiltek­ ið í Bretlandi, er sniðinn að þörf­ um Evrópubúa og hefur selst í 1,7 milljónum eintaka í álfunni. andlitslyfting á þriðju kynslóð Toyota Avensis er nú af þriðju kynslóð, en í ár er hann kom­ inn andlitslyftur og enn meira hlaðinn tækninýjungum. Þegar Avensis kom fyrst á markað árið 1997 leysti hann af velli Toyota Carina, sem margir muna eftir og seldist mjög vel á Íslandi. Hann var greinilega ágætlega smíðaður bíll, líkt og Avensis, því enn má sjá eintök af honum á götum landsins. Talandi um end­ ingu Toyota­bíla þá þarf líklega ekki að kynna hana fyrir Íslend­ ingum, en þeir eru kunnir fyrir mjög góða endingu, litla bilana­ tíðni og hátt endursöluverð og því má einnig búast við í tilfelli Avensis. Toyota býður nú Avens­ is með tveimur vélarkostum, 1,8 lítra besínvél sem er 147 hestöfl og 1,6 lítra dísilvél sem afkastar 112 hestöflum. Til prófunar var bensínbíllinn með sjálfskiptingu og það í „sedan“­útfærslu. Avens­ is má sem fyrr einnig fá í lang­ baksútfærslu og búast má við því að hann seljist í meira magni, en með því er kominn bíll með mikla flutningsgetu. Litlar breytingar að utan en meiri að innan Avensis hefur ekki breyst ýkja mikið með andlitslyftingunni nú, en þó er hún greinanleg og bíllinn hefur fengið LED­aðalljós. Breyt­ ingin að innan er miklu meiri og vel hefur tekist til hjá Toyota þar og meiri lúxustilfinning til stað­ ar. Sætin eru nú miklu betri og sérhönnuð fyrir lengri ferðir, auk þess sem þau eru miklu flottari útlits. Mælaborðið hefur einn­ ig tekið jákvæðum stakkaskipt­ um, en eins og ávallt virðist allt vel smíðað og traustvekjandi þó efnis valið mætti vera ríkulegra. Átta tommu snerti­aðgerða skjár er fyrir miðju mælaborðinu og auðvelt var að læra á allt þar. Mælar bak við stýrið eru miklu flottari og vel útlítandi upplýs­ ingaskjár á milli hraðamælis og snúningshraðamælis. Allt er ein­ faldlega uppsett og því auðvelt að læra á stjórntækin á stuttum tíma, en það er sammerkt öðrum Toyota­bílum. Eftirtektarvert var hve vel hefur tekist til við ein­ angrun bílsins og mikil bót þar á ferð og meira að segja miðstöð­ in var orðin miklu hljóðlátari. Vel er hægt að missa sig í að útbúa bílinn flottustu innréttingunni með flestum tækninýjungunum, en hafa skal í huga að þá hækkar verðið hratt. Dýrasta útgáfan, TS Premium, með sömu vél og sjálf­ skiptur kostar 6.190.000 kr. og það er 56% dýrari bíll en grunn­ gerðin, 2,22 milljónum dýrari og tæplega réttlætanlegt. Ljúfur og áreynslulaus akstur Akstur Avensis er afar ljúfur og áreynslulaus og það má meira að segja taka hressilega á bílnum sér til skemmtunar. Hann er þó ekki með mestu aksturshæfnina í sínum stærðarflokki og leggja má meira á suma af keppinautum hans. Það var heldur aldrei mein­ ingin hjá Toyota að búa til stór­ kostlega aksturshæfan bíl með Avensis, til þess smíðuðu þeir lík­ lega GT86­sportbílinn skemmti­ lega. Avensis á fyrst og fremst að fara vel með ökumann og farþega hans. Stýring bílsins er nákvæm og hann fer fullkomlega þang­ að sem til er ætlast en tilfinning­ in fyrir akstrinum er ekki mjög beintengd ökumanni og er því dá­ lítið vélræn. Eitthvað sem ætti að henta mjög mörgum, en flest­ ir gera einmitt þá kröfu að bíll­ inn einfaldlega hlýði sér og að aksturinn sé ljúfur og ekki alltof sportlegur. Þetta uppfyllir Avens­ is af stakri prýði. Uppfærð 1,8 lítra vélin eyðir nú hálfum lítra minna en forverinn og uppgefin eyðsla í blönduðum akstri er 6,0 litrar. Með henni fer bíllinn í 100 á 9,4 sekúndum og hámarkshrað­ inn er 200 km/klst. Nýuppfærður Avensis er álitlegur kostur fyrir þá sem kjósa áreiðanlegan stóran bíl sem uppfyllir flestar þarfir og býðst auk þess á afar viðráðan­ legu verði. UppfærðUr Avensis sniðinn Að stærri fjölskyldUm Toyota Avensis má fá á 3.970.000 kr. í Live-útfærslu með 1,8 lítra bensínvél og beinskiptan. Vart getur það talist hátt verð fyrir stóran bíl sem er þó ágætlega búinn. BílAr Fréttablaðið 10 6. október 2015 ÞRIÐJUDAGUR 0 2 -1 1 -2 0 1 5 1 0 :3 1 F B 0 4 8 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 6 C 3 -0 A 7 0 1 6 C 3 -0 9 3 4 1 6 C 3 -0 7 F 8 1 6 C 3 -0 6 B C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 4 8 s _ 5 1 0 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.