Fréttablaðið - 06.10.2015, Blaðsíða 46
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan Atli Sveinsson jonatan@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Samtök um sorg og sorgarviðbrögð
NÝ DÖGUN
www.nydogun. is • www.sorg. is • sorg@sorg. is
Fræðslukvöld um missi tengdan fíkniefnaneyslu.
Guðný Sigurðardóttir, móðir fíkils segir frá reynslu sinni í
safnaðarheimili Háteigskirkju miðvikudaginn 7. október kl. 20.
Kynntur stuðningshópur sem fer af stað í kjölfarið.
Aðgangur ókeypis, allir hjartanlega velkomnir.
Dauði vegna
fíknar
„Ég ætla ekkert að toppa Audda Blö,
hann er frábær í sínu starfi og með
mikla reynslu í sjónvarpi. Ég ætla
bara að gera mitt vel. Það er bara
heiður að vera á eftir manni eins og
Audda, sem ég hef fylgst með síðan
hann var í 70 mínútum að borða
snakk og með strípur,“ segir Gauti
Þeyr Másson, eða Emmsjé Gauti
eins og hann kallast í daglegu tali.
Gauta flestir úr rappsenunni en nú
söðlar hann um á öðrum sviðum og
mun hann taka við af Auðuni Blön-
dal sem kynnir þáttanna Ísland Got
Talent, en Auðunn hefur sinnt því
hlutverki undanfarnar tvær þátta-
raðir.
Gott tækifæri
„Þetta er frábært, svolítið skrítið
í byrjun þegar ég fékk símtalið og
allt hálf súrrealískt. Ef ég hefði ekki
verið varaður við að símtalið væri
að koma, hefði ég haldið að þetta
væri grín,“ segir Gauti og bætir
auðmjúkur við: „Maður kemst ekki
hjá því að hugsa til þess að maður
hafi unnið sig upp á einhvern stað
fyrst maður fær að vera með í svona
stóru verkefni. Þetta er mjög gott
tækifæri fyrir mig.“ Gauti segist
gríðarlega spenntur fyrir verk-
efninu, ekki síst sé horft til þeirrar
staðreyndar að hann er nýbakaður
faðir.
„Það er nefnilega óskrifuð regla
að pabbar þurfi að gera eitthvað
sem gæti orðið vandræðalegt fyrir
afkvæmið seinna meir. Svo ég lít svo
á að hér sé ég að haka í ákveðin box
sem faðir. Þetta verður gaman.“
Annálaður athyglissjúklingur
Gauti segir verkefnið henta sér
sérlega vel, en hann sé annálaður
athyglissjúklingur sem njóti þess
út í ystu æsar að koma fram.
„Fólk hefur haft gaman
af, og mikla þörf
fyrir að segja við
mig: „Þú kemst
ekkert áfram á
at hyg l i ssýk-
inni,“ svo mér
finnst alls
ekki leiðin-
legt afsanna
þá mýtu. Ég
gengst fylli-
lega við minni
athyglissýki,“
bendir hann á
og hlær.
Byrjaður í ræktinni
Hann skýtur jafnframt inn
í að hann búi að býsna dýrmætri
reynslu sjálfur, en hann tók þátt í
Idol-Stjörnuleit fyrir heilum ára-
tug síðan. Þannig geti hann bráð-
lega státað af því að hafa setið
beggja vegna borðsins en á þeim
tíma voru félagarnir Simmi og Jói
kynnar.
„Þetta er auðvitað á netinu og
lesendur Fréttablaðsins geta bara
flett þessu upp á YouTube. Ég tók í
framhaldinu þann pól í hæðina að
deila þessu sjálfur á netinu, áður en
aðrir myndu gera það og taka mig
þannig af lífi. En ég meina, maður
á náttúrulega ekkert að vera að
skammast sín fyrir að láta vaða. Og
ég meina, núna eru tíu milljónir í
boði,“ segir Gauti, sem hefur varla
tíma til að klára spjallið.
„Ég er í þann mund að
henda mér í rækt-
ina. Ég samdi
við Jón Gnarr
um áskrift
að Stöð 2
og kort í
ræktina. Ég
ætla klár-
lega að vera
h o t st ö f f
á þessum
pósterum og
á skjánum,“
bætir hann við,
laufléttur.
Lokast þar hring-
urinn, en undanfarna
viku hafa róteringar dóm-
nefndar verið tilkynntar og öllum
úr fyrri dómnefnd skipt út en dóm-
arar í þriðju þáttaröð Ísland Got
Talent verða þau Dr. Gunni, Jakob
Frímann Magnússon, Marta María
Jónasdóttir og Ágústa Eva Erlends-
dóttir.
„Ég er einmitt mjög spenntur
fyrir að fylgjast með Jakobi og
Mörtu ræða djasstónlist,“ segir
Gauti glaður í bragði að lokum.
gudrun@frettabladid.is
Gauti er gríðarlega spenntur fyrir þessu nýja tækifæri, þar sem hann stefnir á að finna athyglissýkinni góðan farveg.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILhELM
Ætlar að vera
hot stöff
á skjánum
Rapparinn Emmsjé Gauti afsannar mýtuna „þú kemst ekkert áfram
á athyglissýkinni“, þegar hann tekur sér stöðu kynnis í Ísland Got
Talent. Sjálfur tók hann þátt í Idol-Stjörnuleit fyrir tíu árum.
Það er nefni-
lega óskrifuð
regla að pabbar Þurfi að
gera eitthvað sem gÆti
orðið vandrÆðalegt fyrir
afkvÆmið seinna meir. svo
ég lít svo á að hér sé ég að
haka í ákveðin box sem
faðir. Þetta verður gaman.
Vinsamlegast láttu vita í gjaldfrjálst númer
800 1177 eða á dreifing@postdreifing.is
Hjálpaðu okkur að bæta þjónustuna.
Blaðið á að berast þér fyrir kl. 7:15 virka morgna
og 8:15 á laugardögum
FÉKKSTU EKKI
BLAÐIÐ Í MORGUN?
KOM ÞAÐ OF SEINT?
6 . o k t ó b e r 2 0 1 5 Þ r I Ð J U D A G U r26 L í f I Ð ∙ f r É t t A b L A Ð I Ð
0
2
-1
1
-2
0
1
5
1
0
:3
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
C
2
-9
8
E
0
1
6
C
2
-9
7
A
4
1
6
C
2
-9
6
6
8
1
6
C
2
-9
5
2
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
8
s
_
5
1
0
2
0
1
5
C
M
Y
K