Fréttablaðið


Fréttablaðið - 06.10.2015, Qupperneq 46

Fréttablaðið - 06.10.2015, Qupperneq 46
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan Atli Sveinsson jonatan@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is Samtök um sorg og sorgarviðbrögð NÝ DÖGUN www.nydogun. is • www.sorg. is • sorg@sorg. is Fræðslukvöld um missi tengdan fíkniefnaneyslu. Guðný Sigurðardóttir, móðir fíkils segir frá reynslu sinni í safnaðarheimili Háteigskirkju miðvikudaginn 7. október kl. 20. Kynntur stuðningshópur sem fer af stað í kjölfarið. Aðgangur ókeypis, allir hjartanlega velkomnir. Dauði vegna fíknar „Ég ætla ekkert að toppa Audda Blö, hann er frábær í sínu starfi og með mikla reynslu í sjónvarpi. Ég ætla bara að gera mitt vel. Það er bara heiður að vera á eftir manni eins og Audda, sem ég hef fylgst með síðan hann var í 70 mínútum að borða snakk og með strípur,“ segir Gauti Þeyr Másson, eða Emmsjé Gauti eins og hann kallast í daglegu tali. Gauta flestir úr rappsenunni en nú söðlar hann um á öðrum sviðum og mun hann taka við af Auðuni Blön- dal sem kynnir þáttanna Ísland Got Talent, en Auðunn hefur sinnt því hlutverki undanfarnar tvær þátta- raðir. Gott tækifæri „Þetta er frábært, svolítið skrítið í byrjun þegar ég fékk símtalið og allt hálf súrrealískt. Ef ég hefði ekki verið varaður við að símtalið væri að koma, hefði ég haldið að þetta væri grín,“ segir Gauti og bætir auðmjúkur við: „Maður kemst ekki hjá því að hugsa til þess að maður hafi unnið sig upp á einhvern stað fyrst maður fær að vera með í svona stóru verkefni. Þetta er mjög gott tækifæri fyrir mig.“ Gauti segist gríðarlega spenntur fyrir verk- efninu, ekki síst sé horft til þeirrar staðreyndar að hann er nýbakaður faðir. „Það er nefnilega óskrifuð regla að pabbar þurfi að gera eitthvað sem gæti orðið vandræðalegt fyrir afkvæmið seinna meir. Svo ég lít svo á að hér sé ég að haka í ákveðin box sem faðir. Þetta verður gaman.“ Annálaður athyglissjúklingur Gauti segir verkefnið henta sér sérlega vel, en hann sé annálaður athyglissjúklingur sem njóti þess út í ystu æsar að koma fram. „Fólk hefur haft gaman af, og mikla þörf fyrir að segja við mig: „Þú kemst ekkert áfram á at hyg l i ssýk- inni,“ svo mér finnst alls ekki leiðin- legt afsanna þá mýtu. Ég gengst fylli- lega við minni athyglissýki,“ bendir hann á og hlær. Byrjaður í ræktinni Hann skýtur jafnframt inn í að hann búi að býsna dýrmætri reynslu sjálfur, en hann tók þátt í Idol-Stjörnuleit fyrir heilum ára- tug síðan. Þannig geti hann bráð- lega státað af því að hafa setið beggja vegna borðsins en á þeim tíma voru félagarnir Simmi og Jói kynnar. „Þetta er auðvitað á netinu og lesendur Fréttablaðsins geta bara flett þessu upp á YouTube. Ég tók í framhaldinu þann pól í hæðina að deila þessu sjálfur á netinu, áður en aðrir myndu gera það og taka mig þannig af lífi. En ég meina, maður á náttúrulega ekkert að vera að skammast sín fyrir að láta vaða. Og ég meina, núna eru tíu milljónir í boði,“ segir Gauti, sem hefur varla tíma til að klára spjallið. „Ég er í þann mund að henda mér í rækt- ina. Ég samdi við Jón Gnarr um áskrift að Stöð 2 og kort í ræktina. Ég ætla  klár- lega að vera h o t st ö f f á þessum pósterum og á skjánum,“ bætir hann við, laufléttur. Lokast þar hring- urinn, en undanfarna viku hafa róteringar dóm- nefndar verið tilkynntar og öllum úr fyrri dómnefnd skipt út en dóm- arar í þriðju þáttaröð Ísland Got Talent verða þau Dr. Gunni, Jakob Frímann Magnússon, Marta María Jónasdóttir og Ágústa Eva Erlends- dóttir. „Ég er einmitt mjög spenntur fyrir að fylgjast með Jakobi og Mörtu ræða djasstónlist,“ segir Gauti glaður í bragði að lokum. gudrun@frettabladid.is Gauti er gríðarlega spenntur fyrir þessu nýja tækifæri, þar sem hann stefnir á að finna athyglissýkinni góðan farveg. FRÉTTABLAÐIÐ/VILhELM Ætlar að vera hot stöff á skjánum Rapparinn Emmsjé Gauti afsannar mýtuna „þú kemst ekkert áfram á athyglissýkinni“, þegar hann tekur sér stöðu kynnis í Ísland Got Talent. Sjálfur tók hann þátt í Idol-Stjörnuleit fyrir tíu árum. Það er nefni- lega óskrifuð regla að pabbar Þurfi að gera eitthvað sem gÆti orðið vandrÆðalegt fyrir afkvÆmið seinna meir. svo ég lít svo á að hér sé ég að haka í ákveðin box sem faðir. Þetta verður gaman. Vinsamlegast láttu vita í gjaldfrjálst númer 800 1177 eða á dreifing@postdreifing.is Hjálpaðu okkur að bæta þjónustuna. Blaðið á að berast þér fyrir kl. 7:15 virka morgna og 8:15 á laugardögum FÉKKSTU EKKI BLAÐIÐ Í MORGUN? KOM ÞAÐ OF SEINT? 6 . o k t ó b e r 2 0 1 5 Þ r I Ð J U D A G U r26 L í f I Ð ∙ f r É t t A b L A Ð I Ð 0 2 -1 1 -2 0 1 5 1 0 :3 1 F B 0 4 8 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 6 C 2 -9 8 E 0 1 6 C 2 -9 7 A 4 1 6 C 2 -9 6 6 8 1 6 C 2 -9 5 2 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 8 s _ 5 1 0 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.