Fréttablaðið - 13.10.2015, Side 2

Fréttablaðið - 13.10.2015, Side 2
Kanarí 21.október í 24 nætur Verð frá 169.900 kr. og 12.500 Vildarpunktar Á mann m.v. tvo í íbúð á Las Camelias Verð án Vildarpunkta 179.900 kr. Flogið út um Tenerife. VITA - Skógarhlíð 12 - Sími 570 4444Flogið með Icelandair Samfélag Í móttökustöð fyrir hæl- isleitendur í Bæjarhrauni í Hafnar- firði gista fjölskyldur í rými sem var annars hugsað sem sameiginleg stofa þar sem börn gætu leikið sér. Það er vegna fjölda hælisleitenda á landinu sem rýmið er nýtt sem íbúð að sögn Skúla Á. Sigurðs- sonar, verkefnisstjóra hælissviðs hjá Útlendingastofnun.   „Útlendingastofnun sinnir fyrst og fremst grunnþörfum hælis- leitenda, þ.e. húsnæði, mat, hvers konar heilbrigðisþjónustu, o.s.frv. Rauði krossinn hefur tekið við þar sem því sleppir, til dæmis með leik- fanga- og fatagjöfum, félagsstarfi, viðburðum og ýmsum stuðningi. Í húsnæðinu er gert ráð fyrir sam- eiginlegri stofu fyrir íbúa þar sem börn geta leikið sér en vegna fjölda hælisleitenda á landinu er það rými eins og er nýtt til íbúðar. Ekk- ert sjónvarp er í húsnæðinu eins og sakir standa.“ Fjölskyldur, barnafólk og ein- stæðar konur eru á einni hæð í Hafnarfirðinum og einhleypir karlar á annarri. Ekki er gengt milli hæðanna. Á gangi fyrir karla er sjónvarp og sameiginlegt rými, en ekki á fjölskyldugangi. „Mót- tökuteymi Útlendingastofnunar hefur óskað eftir því við Rauða krossinn að útveguð verði leik- föng fyrir börnin sem búa á vegum stofnunarinnar í Hafnarfirði,“ segir Skúli um aðstæður í húsinu. Hann segir mannþröngina í Bæj- arhrauni vera vegna aukins fjölda hælisumsókna sem hafa borist frá því í sumar. Í ágúst og september sóttu 110 manns um hæli í þessum tveimur mánuðum. Það sem af er árinu hafa 218 manns sótt um hæli og búist er við allt að 350 hælisleit- endum á árinu.  Aðstæður í móttökustöðinni eru annars ágætar, að sögn hælis- leitanda sem gistir þar núna. Sólahringsvakt frá Securitas er á staðnum og þá er einn starfsmaður Útlendingastofnunar með viðveru í húsnæðinu. Þar er jafnframt við- talsherbergi sem Útlendingastofn- un notar fyrir vikulega viðtalstíma. Þráðlaust net er komið upp í húsinu sem íbúarnir eru þakklátir fyrir, það auðveldar þeim að leita sér upplýsinga og vinna að umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi.  kristjanabjorg@frettabladid.is Hælisleitendur þurfa að gista í leikrýminu Vegna mikils fjölda hælisleitenda á landinu þurfa þeir að gista í stofu móttöku- stöðvarinnar í Hafnarfirði sem annars er ætluð sem leikrými fyrir börn. Óskað hefur verið eftir því að Rauði krossinn útvegi börnum í húsinu leikföng. Móttökustöðin er lokað úrræði, til verndar þeim sem sækja um alþjóðlega vernd á Íslandi. Þar búa nú svo margir að leiksvæði barna í húsinu er nýtt sem íbúð. Fréttablaðið/anton Í húsnæðinu er gert ráð fyrir sam- eiginlegri stofu fyrir íbúa þar sem börn geta leikið sér en vegna fjölda hælisleitenda á landinu er það rými eins og er nýtt til íbúðar. Skúli Á Sigurðsson, verkefnastjóri hælis- sviðs hjá Útlendingastofnun Veður Í dag snýst í suðvestan 5 til 10 metra á sekúndu. Það verða skúrir vestan til á landinu og ekki er útilokað að það verði haglél með í sumum þeirra. Austanlands er búist við rigningu fyrripartinn, en léttir til síðdegis. Sjá SÍðu 22 Sjúkraliðar fjölmenntu á baráttufund í húsakynnum félagsins við Grensásveg í gær. Að öllu óbreyttu munu 1.100 sjúkraliðar leggja niður störf á miðnætti aðfaranótt fimmtudags. Stétt sjúkraliða er mikil kvennastétt en eins og sést á myndinni mættu einungis örfáir karlmenn á fundinn. Fréttablaðið/Pjetur Sjúkraliðar í verkfallshug BandarÍkin Tulsi Gabbard, vara- formaður Landssambands demó- krataflokka Bandaríkjanna og fulltrúadeildarþingmaður, er ekki lengur velkomin á kappræður for- setaframbjóðendaefna flokksins sem fara fram í Nevada í kvöld. Flokkurinn dró boðskort hennar til baka í gær eftir að hún kallaði eftir fleiri kappræðum frambjóð- enda. Tveir frambjóðenda flokksins, Bernie Sanders og Martin O'Malley, hafa gagnrýnt hve fáar kappræður verða haldnar milli frambjóðenda, sex talsins, og benda á að átta árum fyrr, síðast þegar halda þurfti for- kosningar, hafi þær verið 26. Hillary Clinton mælist í aðdrag- anda kappræðnanna með mest fylgi á landsvísu, 42 prósent, en Sanders mælist næsthæstur með 25 prósent. Þó leiðir Sanders í þeim tveimur fylkjum sem fyrst kjósa, Iowa og New Hampshire. – þea Óvelkomin á kappræður SamfélagSmál „Ég held að ég sé fyrsti forstöðumaður trúfélags sem fór að tala fyrir því að Siðmennt fengi stöðu á við önnur trúfélög og Fríkirkjan hefur alltaf verið þeim opin,“ segir Hjörtur Magni Jóhanns- son, forstöðumaður Fríkirkjunnar í Reykjavík. Í næstu viku verði meðal annars útför í Fríkirkjunni á vegum Siðmenntar. Fréttablaðið greindi frá því í síðustu viku að Fossvogskirkja yrði lokuð til nóvemberloka vegna við- halds. Fossvogskirkja hefur verið sú kirkja innan Kirkjugarða prófasts- dæma Reykjavíkur sem hefur verið nýtt undir athafnir annarra safnaða en kristinna. Samþykkt kirkjuþings um innri málefni þjóðkirkjunnar tekur fyrir það að veraldlegar athafnir séu haldnar í rými Þjóð- kirkjunnar. „Ég hef fengið heilmikla gagnrýni frá þjóðkirkjuprestum fyrir að hafa leyft slíkar athafnir og fyrir að taka þátt í þeim sjálfur hér í Fríkirkj- unni,“ segir Hjörtur Magni. „Ég er sannfærður um að þjóð- kirkjubyggingarnar um allt land eigi að vera öllum opnar því þær eru jú í eigu safnaðanna en þeir fá fjármagn frá ríkinu og þjóðkirkjan er ríkisrekin stofnun. Hún á að vera opin öllum Íslendingum.“ – srs Fríkirkjan opin öllum Ég hef fengið heil- mikla gagnrýni frá þjóðkirkjuprestum fyrir að hafa leyft slíkar athafnir og fyrir að taka þátt í þeim sjálfur hér í Fríkirkjunni. Hjörtur Magni Jóhannsson 1 3 . o k t ó B e r 2 0 1 5 Þ r i ð j u d a g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð 0 2 -1 1 -2 0 1 5 1 0 :2 1 F B 0 4 8 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 6 B F -B 4 4 0 1 6 B F -B 3 0 4 1 6 B F -B 1 C 8 1 6 B F -B 0 8 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 8 s _ 1 2 1 0 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.