Fréttablaðið - 13.10.2015, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 13.10.2015, Blaðsíða 6
ÍS L E N S K A /S IA .I S /L Y F 7 65 38 1 0/ 15 www.lyfja.is Lægra verð í Lyfju Panodil-dagar í október 20% afsláttur af Panodil lausasölulyfjum - Lifi› heil Indverski listamaðurinn Sanatan Dinda vann í gær að því að leggja lokahönd á líkneski guðsins Durga áður en hátíðin Durga Puja hefst. Á hátíðinni fagna hindúar sigri hins góða á hinu illa. Hátíðin hefst þann 18. október og stendur til 25. október. Fréttablaðið/EPa Fagna sigri hins góða Dómsmál Sandra Sif Rúnarsdóttir og fjölskylda fóru í mál við Háskóla- velli vegna stúdentaíbúðar sem þau leigðu á Ásbrú veturinn 2011 til 2012. Sandra Sif og ungur sonur hennar urðu alvarlega veik vegna myglusvepps en hún var heima í fæðingarorlofi á tímabilinu. Gerð var krafa um að fá leiguna endur- greidda sem og bætur fyrir innbú fjölskyldunnar sem hefur verið í geymslu frá því þau fluttu úr íbúð- inni. Héraðsdómur dæmdi að fjöl- skyldan skyldi fá húsaleiguna end- urgreidda enda þyki það sannað að leigusali hafi vitað af rakaskemmd- um í íbúðinni áður en fjölskyldan flutti inn. Gunnar Ingi Jóhannsson, lögmaður fjölskyldunnar, segir málið fordæmisgefandi. „Þetta er heilmikið fordæmi með tilliti til ábyrgðar leigusala. Ef hús- næði er leigt svona í upphafi leigu- samnings getur leigjandi labbað út án leigugreiðslna.“ Fjölskyldan fær aftur á móti ekki bætta búslóð sína heldur eingöngu greidd þrif á henni. Dómskvaddir matsme nn s ö gð u nokkuð líklegt að hægt væri að þrífa búslóðina og fór dómurinn eftir þeim orðum. Sandra Sif segir niður- stöðuna ákveðinn sigur en varðandi búslóðina sé leigufélagið látið njóta vafans, en ekki heilsa sonar hennar. Hún mun skoða áfrýjun. „Það hefur sannað sig að sumir einstaklingar verða svo veikir í myglunni að þeir geta aldrei verið í rými eða í kringum húsgögn sem hafa vott af myglugró í sér. Sonur minn dettur út um leið og hann fer í þannig umhverfi og verður mjög lasinn. Hann er í raun mannlegur myglumælir og ég mun ekki prófa hvort hann þoli að vera í kringum búslóðina aftur. Sonur minn er ekki tilraunadýr.“ erlabjorg@frettabladid.is Sigur fyrir íbúa í mygluðum húsum Dómur féll í héraðsdómi í gær þar sem Háskólavöllum var dæmt að endurgreiða átta mánaða leigu vegna myglusvepps í íbúð. Þurfa einnig að greiða þrif á búslóð. Þetta er fyrsta myglusveppamálið sem vinnst fyrir dómstólum og er því talið gefa mikilvægt fordæmi. Hann er í raun mannlegur myglu- mælir og ég mun ekki prófa hvort hann þoli að vera í kringum búslóðina aftur. Sonur minn er ekki tilrauna- dýr. Sandra Sif Rúnarsdóttir, fyrrverandi leigjandi á Ásbrú Gunnar Ingi Jóhannsson, lögmaður Áfellisdómur um byggingareftirlitið „Ef þessu verður ekki hnekkt í Hæstarétti er þetta svaðalega fordæmisgefandi dómur. Bæði af- gerandi og mikilvægur,“ segir Hólm- steinn Brekkan, framkvæmdastjóri Leigjendasamtakanna. „Þetta er áfellisdómur um allt byggingareftirlit á Íslandi, alla bygg- ingarfulltrúa og opinbert eftirlit með húsakosti.“ Hólmsteinn vonar að dómurinn veki leigjendur til vitundar og hristi upp í kærunefnd húsamála. Kjaramál Dansarar í Íslenska dans- flokknum munu hækka í launum fari þeir í verkfall á fimmtudag og föstudag líkt og aðrir félagsmenn í SFR. „Þetta er eiginlega grátbroslegt,“ segir Ásgeir Helgi Magnússon, listdansari hjá Íslenska dansflokknum. Ásgeir segist fá 1.772 krónur á tímann í dagvinnulaun. Yfir átta tíma vinnudag fær hann því ríflega fjórtán þúsund krónur á dag eða 288 þúsund krónur á mánuði.  Úr verkfallssjóði SFR fær Ásgeir hins vegar sextán þús- und krónur á dag. Hann segist telja að hið sama eigi við um aðra félagsmenn innan SFR sem fái undir 300 þúsund krónur í mánaðar- laun, þeir hækki í launum í verkfalli. Kjaraviðræðurnar þokast hægt. Dansarar hjá dansflokknum fara í verkfall á fimmtudag og föstudag og svo aftur mánudag og þriðjudag verði ekki samið fyrir þann tíma. Dansarar fara hins vegar ekki í varanlegt verk- fall. „Þannig að launahækkunin mín verður bara í nokkra daga, allavega til að byrja með,“ segir hann kíminn. Ásgeir segir dansara fara fram á sömu laun og leikarar sem þeir starfi með í Borgarleikhúsinu. – ih Fá hærri laun í verkfalli en í vinnunni Þannig að launa- hækkunin mín verður bara í nokkra daga, allavega til að byrja með. Ásgeir Helgi Magnússon, listdansari 1 3 . o K t ó b e r 2 0 1 5 Þ r I Ð j U D a G U r6 f r é t t I r ∙ f r é t t a b l a Ð I Ð 0 2 -1 1 -2 0 1 5 1 0 :2 1 F B 0 4 8 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 6 C 0 -C 8 C 0 1 6 C 0 -C 7 8 4 1 6 C 0 -C 6 4 8 1 6 C 0 -C 5 0 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 4 8 s _ 1 2 1 0 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.