Fréttablaðið - 13.10.2015, Síða 12
Vandi löggæslunnar í landinu er mun
djúpstæðari en kjaradeila lögreglu-
manna við ríkið gefur til kynna. Legið
hefur fyrir um árabil að fjölga þarf í lög-
regluliði landsins um á þriðja hundrað
manns. Nefnd á vegum innanríkisráð-
herra komst að þeirri niðurstöðu fyrir
rúmlega tveimur árum að hækka þyrfti
fjárframlög til lögreglu um 3,5 milljarða.
Geta ekki uppfyllt skyldur sínar
„Það er ljóst að það þarf a.m.k. 200 lög-
reglumenn í lögregluliðið eins og það
er í dag til að lögreglan geti sómasam-
lega sinnt lögboðnum skyldum sínum,“
segir Snorri Magnússon, formaður
Landssambands lögreglumanna, í
skriflegu svari til Fréttablaðsins þar sem
óskað var eftir svörum vegna þess að
allt frá hruni hefur Vinnuvernd ríkisins
endurtekið beint því til Stjórnarráðsins
að gera átak í vinnuvernd þeirra fjöl-
mörgu sem starfa hjá hinu opinbera.
Tölur yfir vinnuslys opinberra starfs-
manna, bæði í opinberri stjórnsýslu og
þjónustu, eru hvað hæstu tölurnar í
allri slysatölfræði eftirlitsins og sker lög-
reglan sig úr hvað það varðar. Rót þess
vanda er mikil og viðvarandi undir-
mönnun, er mat Vinnueftirlitsins.
Vandamálið löngu ljóst
Þegar horft er fáein ár aftur í tímann má
finna þess stað á fjölmörgum stöðum að
vandi lögreglunnar er viðurkenndur af
öllum sem gerst þekkja – stjórnvöldum
þar með talið. Í ársskýrslu ársins 2014
segir Haraldur Johannessen ríkislög-
reglustjóri að á árunum 2007 til 2014
fækkaði lögreglumönnum um tæplega
100, en aukafjárveiting árið 2014 leyfði
ráðningar á 44 nýjum lögreglumönn-
um. Enn er þó langt í land, segir Har-
aldur, og vísar til niðurstöðu nefndar
innanríkisráðherra frá mars 2013 sem
skipuð var fulltrúum allra þingflokka,
tveimur fulltrúum innanríkisráðu-
neytisins, ríkislögreglustjóra, Lands-
sambands lögreglumanna og fleiri.
Niðurstaða þingnefndarinnar
[Nefnd um gerð löggæsluáætlunar um
Ísland] var að fjölga þyrfti lögreglu-
mönnum um 236 eða um rúmlega 40%.
Það eru fleiri lögreglumenn en starfa í
heild sinni utan höfuðborgarsvæðisins.
Í febrúar var fjöldi lögreglumanna sam-
kvæmt upplýsingum ríkislögreglustjóra
640. Að mati ríkislögreglustjóra þurfa
lögreglumenn í landinu að vera að lág-
marki 860.
Milljarða niðurskurður
Þá má geta þess að í áætlunum sem
lögreglustjórarnir í landinu gerðu fyrir
árin 2008 – 2012 sáu þeir fyrir sér að í
landinu þyrftu að vera starfandi 804 lög-
reglumenn á árinu 2012 en rauntalan
var 624 það ár.
Þetta fær svo enn frekari stoð í
skýrslu sem Ögmundur Jónasson,
þáverandi innanríkisráðherra, lagði
fyrir Alþingi í desember 2012, „Staða
lögreglunnar“, en í henni er viðurkennt
af stjórnvöldum að raunfjárveitingar til
lögreglu höfðu dregist saman um 2,8
milljarða króna á árunum 2008 – 2011.
Þar er niðurstaðan afdráttarlaus:
„Á samráðsfundi ráðuneytisins með
ríkislögreglustjóra, 6. október sl. [2012],
skýrði ríkislögreglustjóri frá því að
hann hefði átt samráðsfundi með lög-
regluliðum úti á landi. Á þeim fundum
hefði eindregið komið fram að nú um
stundir væri lögreglunni ókleift að leysa
þau verkefni sem ætlast væri til af henni
vegna fjárskorts og manneklu. Ástand-
ið í lögreglunni væri óásættanlegt og
brýnt væri að fjölga lögreglumönnum
og auka fjárveitingar til lögreglunnar.
Að mati ríkislögreglustjóra væri það
staðreynd að lögreglan getur ekki sinnt
þeim verkefnum sem hún þarf að gera
lögum samkvæmt.“
Mælirinn löngu fullur
Samkvæmt fyrrnefndri ársskýrslu
ríkislögreglustjóra fyrir árið 2014 voru
starfandi 299 lögreglumenn á höfuð-
borgarsvæðinu, en löggæslusvæðið
nær yfir Reykjavík, Kópavog, Hafnar-
fjörð, Garðabæ, Mosfellsbæ, Seltjarnar-
nes og Kjós. Árið 1999 setti Böðvar
Bragason, fyrrverandi lögreglustjóri,
fram áætlanir um mannaflaþörf fyrir
embætti sitt, sem þá náði til Reykjavík-
ur, Seltjarnarness og Mosfellsbæjar, og
sagði að lágmarki þurfa 303 lögreglu-
menn til að halda uppi þjónustu við
borgarana.
„Í dag, fjórtán árum síðar, sitjum
við í þeirri stöðu að lögreglumenn eru
299 og löggæslusvæðið og þar með
íbúafjöldinn, ökutækjafjöldinn o.fl. er
margfaldur á við það sem þá var,“ segir
Snorri en hann sagði jafnframt í viðtali
við Bylgjuna á dögunum: „Við höfum
horft upp á hvert svikið loforðið á
fætur öðru, í kjaramálum, í búnaðar-
málum, í mannfjöldamálum og svo
framvegis. Mælirinn er bara einfaldlega
orðinn fullur hjá lögreglumönnum.
[…] Þannig að menn eru bara að gefast
upp á álaginu og skeytingarleysi stjórn-
valda og virðingarleysi í þeirra garð.“
Stórlega þarf að fjölga
í lögreglu um allt land
Undirmönnun í lögregluliði landsins hefur legið fyrir árum saman. Hið minnsta
þarf að fjölga um 200 manns í lögreglunni á landsvísu – er viðurkennt af ríkis-
lögreglustjóra jafnt sem stjórnvöldum. Bæta þarf við milljörðum króna í framlög.
Vandi löggæslunnar í landinu er mun djúpstæðari en kjaradeila lögreglunnar við ríkið gefur til kynna – undirmönnun hefur
verið ljós árum saman og úrbótum heitið frá hendi stjórnvalda án efnda. fréttablaðið/pjetur
Efling löggæslunnar í
stefnuyfirlýsingu
Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Sig-
mundar Davíðs Gunnlaugssonar,
sem undirrituð var 22. maí 2013,
segir um innanríkismál:
„Ríkisstjórnin leggur áherslu á
að efla löggæsluna. Leiðarljós í því
átaki verður niðurstaða nefndar
um löggæslumál sem skilaði
nýlega tillögum um forgangsröðun
verkefna á næstu árum.“
Hér er vísað til skýrslu nefndar
innanríkisráðherra um gerð lög-
gæsluáætlunar um Ísland.
Þar segir undir kaflanum Stefna
og markmið:
l Efling lögreglunnar fari fram
á árunum 2013 til 2017.
Markmiðið er að bæta getu
lögreglunnar til þess að takast
á við meginhlutverk sitt sam-
kvæmt lögum.
l Styrkja innviði lögreglunnar
og öryggi lögreglumanna
með fjölgun þeirra, aukinni
menntun og bættum búnaði
svo lögreglan standi undir
hlutverki sínu og störf hennar
verði auk þess réttlætanleg og
lögmæt m.a. varðandi öryggi
lögreglumanna og almennings.
Svavar Hávarðsson
svavar@frettabladid.is
Það er ljóst að það
þarf a.m.k. 200
lögreglumenn í lögregluliðið
eins og það er í dag til að
lögreglan geti sómasamlega
sinnt lögboðnum skyldum
sínum.
Snorri Magnússon,
formaður
Landssambands
lögreglumanna
EINSTÖK
TILBOÐ!
Kletthálsi 11 -110 Reykjavík
Sími 525 8000 - bilaland@bilaland.is
www.bilaland.is
www.facebook.com/bilaland.is
TILBOÐ
TILBOÐ
TILBOÐ
TILBOÐ
TILBOÐ
TILBOÐ
TILBOÐ
GERÐU FRÁBÆR KAUP
NISSAN PATROL SE
Nýskr. 11/09, ekinn 117 þús. km.
dísil, sjálfskiptur.
Verð áður kr. 4.340.000
TILBOÐSVERÐ!
3.590 þús.
HYUNDAI i20 CLASSIC
Nýskr. 11/11, ekinn 51 þús km.
bensín, beinskiptur.
Verð áður kr. 1.690.000
TILBOÐ kr. 1.460 þús.
SUZUKI GRAND VITARA
Nýskr. 06/12, ekinn 43 þús km.
bensín, beinskiptur.
Verð áður kr. 3.690.000
TILBOÐ kr. 3.290 þús.
HYUNDAI i40 COMFORT
Nýskr. 07/13, ekinn 35 þús km.
dísil, sjálfskiptur.
Verð áður kr. 4.290.000
TILBOÐ kr. 3.790 þús.
TOYOTA AURIS TERRA
Nýskr. 06/10, ekinn 67 þús km.
bensín, beinskiptur.
Verð áður kr. 2.090.000
TILBOÐ kr. 1.790 þús.
SKODA SUPERB AMBITION
Nýskr. 04/13, ekinn 114 þús km.
dísil, sjálfskiptur.
Verð áður kr. 3.780.000
TILBOÐ kr. 2.790 þús.
HONDA ACCORD ELEGANCE
Nýskr. 07/13, ekinn 37 þús km.
dísil, beinskiptur.
Verð áður kr. 3.790.000
TILBOÐ kr. 3.290 þús.
Rnr. 142791
Rnr. 142573
Rnr. 142745
Rnr. 120694
Rnr. 340029
Rnr. 282555
Rnr. 282432
GÖNGUM FRÁ
FJÁRMÖGNUN Á
STAÐNUM
WWW.BÍLALAND.IS
1 3 . o k t ó b e r 2 0 1 5 Þ r I Ð J U D A G U r12 f r é t t I r ∙ f r é t t A b L A Ð I Ð
0
2
-1
1
-2
0
1
5
1
0
:2
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
B
F
-8
C
C
0
1
6
B
F
-8
B
8
4
1
6
B
F
-8
A
4
8
1
6
B
F
-8
9
0
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
1
2
1
0
2
0
1
5
C
M
Y
K