Fréttablaðið


Fréttablaðið - 13.10.2015, Qupperneq 36

Fréttablaðið - 13.10.2015, Qupperneq 36
LeikList Heimkoman HHHHH Þjóðleikhúsið eftir Harold Pinter Leikstjóri: Atli Rafn Sigurðarson Leikarar: Björn Hlynur Haraldsson, Eggert Þorleifsson, Ingvar E. Sigurðs- son, Ólafur Egill Egilsson, Snorri Engil- bertsson og Vigdís Hrefna Pálsdóttir Leikmynd: Börkur Jónsson Búningar: Helga I. Stefánsdóttir Lýsing: Halldór Örn Óskarsson Tónlist: Einar Scheving Hljóðmynd: Kristján S. Einarsson Dramatúrg: Símon Birgisson Þýðing: Bragi Ólafsson Týndi sonurinn Teddy snýr aftur á heimaslóðir en heimkoman er ekk­ ert fagnaðarefni fyrir ættingja hans. Heimkoman eftir Harold Pinter, frumsýnt á stóra sviði Þjóðleikhússins síðastliðinn laugardag í leikstjórn Atla Rafns Sigurðarsonar, er full af heiftugri orku og dýrslegri þrá, ekki einungis til að lifa af heldur að tróna á toppi fæðu­ keðjunnar. Nóbelskáldið hafði ein­ stakan hæfieika til að láta hið ósagða krauma undir atburðarás verka sinna og er gríðarlega krefjandi. Af þeim sökum verður fyrst að spyrja af hverju Heimkoman er sýnd á stóra sviði Þjóðleikhússins þegar leikverkið á frekar heima á smærra sviði þar sem hægt er að beisla orku textans betur. Dýpt og hæð sviðsins varð til þess að fyrir hlé varð hljóm­ burðurinn innantómur og sviðsetn­ ingin flatneskjuleg. Pinter skapar hliðarheima, súrreal­ íska spegilmynd á raunveruleikanum og leikararnir verða að endurspegla þessa flóknu hugmyndafræði. Ingvar E. Sigurðsson leikur slátrarann Max, hið hættulega höfuð fjölskyldunnar sem er að færast á efri árin. Endur­ koma Ingvars er fagnaðarefni og nær hann stundum að framkalla þær til­ finningalegu mótsagnir sem búa í Max en drápseðlið finnst hvergi og kómíkin er yfirgnæfandi. Ekki hjálpar að hann situr oftar en ekki í rafknúnum hjóla­ stól sem steindrepur ógn karaktersins. Björn Hlynur Haraldsson leikur hinn ógeðfellda Lenny af kostgæfni en ýkt tilfinningaleg viðbrögð og líkams­ staða Björns undirstrika vel óstýri­ látan heim Pinters. Hann er allt í senn smeðjulegur, kaldhæðinn en einnig viðkvæmur fyrir áreiti. Lykillinn að þessu karlaveldi er Ruth, eiginkona Teddys, en hún er fleygurinn sem brýtur upp heim fjölskyldunnar og fyllir í tómarúmið sem hin látna móðir hefur skilið eftir. Vigdís Hrefna Pálsdóttir sýnir aftur á móti litla dýpt og fá blæbrigði, Ruth tekur engum breytingum heldur er köld frá byrjun, útsjónarsöm og viss í sinni sök. Loka­ ákvörðun hennar verður þannig kraft­ laus og hvörfin í framvindunni hverfa. Hinn tilkomulausi Teddy er leikinn af Ólafi Agli en hann er ágætur í hlut­ verkinu þó að hann hafi verið utan­ veltu í sýningunni, oft látinn sitja til hliðar og gefið lítið rúm til að bregðast við atburðarásinni. Eggert Þorleifsson er umkomuleysið uppmálað í hlut­ verki einkabílstjórans Sam og vekur samúð áhorfenda án þess að gera per­ sónu sína aumkunarverða. Hnefaleika­ maðurinn og yngsti sonurinn er leik­ inn af Snorra Engilbertssyni sem gerir það ágætlega þrátt fyrir að Joey verði fljótlega flatur í einfaldleika sínum. Ágætir taktar frá leikarahópnum nægja ekki til að jafna út ójafnvægi í flutningum og framsetningunni á ann­ ars fínni þýðingu Braga Ólafssonar og sjaldan kviknar undir samleiknum en þessi óstöðugleiki birtist líka í ramma sviðsetningarinnar. Sýningin gerist í hvítþvegnum bíl­ skúr þar sem áhorfendur sjá einungis bakvegg rýmisins en sviðsvængirnir þjóna sem inngangur inn í sjálfar vistarverurnar. Sviðið er minnkað eftir því sem á líður á sýninguna með því að færa bakvegginn og þjarmar þann­ ig bókstaflega að persónunum. Leik­ myndin, sem Börkur Jónsson hannar, nær áhugaverðri virkni að lokum en fyrir hlé eru tómu fletir sviðsins of áberandi. Búningarnir, í umsjá Helgu I. Stef­ ánsdóttur, ríma heldur ekki saman og tímaramminn er óljós. Klassískur fatn­ aður Ruth stangast á við sérstaklega ljótu silfurlituðu jakkafötin sem Lenny klæðist svo dæmi sé tekið. Halldór Örn Óskarsson sér um lýsinguna en ofur­ björtu flúorljósin gefa umhverfinu áhugaverðan en gerilsneyddan ljóma. Tónlistin er í höndum Einars Schev­ ing sem er mikill hæfileikamaður. Í byrjun verks situr hann á sviðinu og framkallar stemningu sem minnir á reykfyllta bari og dimm skúmaskot. En eftir hlé dofnar bæði tónlistin og tónlistarmaðurinn hreinlega hverfur af sviðinu án útskýringa. Þegar öllu er á botninn hvolft haml­ ar óskýr leikstjórn Atla Rafns Sigurðar­ sonar sýningunni. Ákvörðunin um að láta Teddy og Ruth koma inn á heim­ ilið í gegnum áhorfendainnganginn er annað dæmi um þau veiku uppbrot sem lita sýninguna. Heimkoman eftir Harold Pinter er stórkostlega skrifað verk sem talar beint inn í okkar sam­ tíma en fítonskraftur textans týnist með óstöðugri leikstjórn og glopp­ óttum dramatúrgískum áherslum. Sigríður Jónsdóttir Niðurstaða: Fín frammistaða Björns Hlyns og Ingvars nær ekki að slíta sýninguna frá daufri leikstjórn. Lífsbaráttan bræðir úr sér Karlarnir í Heimkomu Pinters fá sér vindil og ræða málin. Næstu tónleikar í tónleikaröð­ inni Klassík í Vatnsmýrinni verða haldnir miðvikudaginn 14. október kl. 20 í Norræna húsinu. Þar mun Jón Sigurðson píanóleikari ráðast í að flytja heila dagskrá með píanó­ verkum eftir Alexander Scriabin. Jón segir að tónlist þessa merka tónskálds hafi lengi leitað á hann. „Þetta er alveg tónlist sem tekur á að flytja en þetta hefur verið svona mitt verkefni í gegnum árin og Scriabin hefur alltaf sótt á mig. Svo langaði mig til þess að gera pínulítið meira en venjulega á þessu ári en nú eru 100 ár liðin frá dauða þessa merka rússneska tónskálds.“ Jón mun leika tólf prelúdíur, tvær sónötur, fjögur ljóð, Mazurka og Vers la flamme eftir Scriabin. Framan af samdi Scriabin eingöngu verk í síðrómantískum stíl en með árunum fór hann að fjarlægjast hið hefðbundna tónmál. Ferundar­ hljómar, sem komu mikið til í stað þríunda, áttu að færa hlustandann upp á æðra tilverustig. „Það sem gerir Scriabin svo ein­ stakan í heimi tónskáldanna eru þessu gríðarlegu umskipti sem verða á hans tónlistarhugmynd­ um á ferlinum. Mér finnst það vera meiri breytingar en eru til dæmis á milli höfunda á klassíska tímanum. Þannig er til að mynda meiri munur á milli hans fyrstu og síðustu verka en á sér stað hjá Beet­ hoven, Mozart og Haydn svo dæmi sé tekið. Þessi gríðarlega endurnýj­ un sem hann Scriabin fer í gegnum á sínum ferli er í raun alveg með ólíkindum.“ Jón segir að til þess að ná yfir­ liti yfir höfundarverk tónskálds á borð við Scriabin þurfi vissulega að koma nokkuð víða við. „Ég byrja á verkum sem hann samdi þegar hann var svona liðlega tvítugur og ég enda á verkum sem voru samin um 1914. Þannig að ég reyni svona að stikla á þessu höfundarverki.“ Þegar um svo mikla breidd höfundarverks er að ræða þá má velta því fyrir sér hversu aðgengi­ legir tónleikarnir verða fyrir þá sem hafa kannski ekki enn mikla reynslu af því að hlusta á klassíska tónlist en Jón segir að fólk þurfi ekkert að hafa mikla áhyggjur af því. „Fyrstu verkin eru afskaplega aðgengileg en ég vil ekki fullyrða of mikið um seinni hlutann því Scriabin breytir svo miklu. En með réttu hugarfari þá og ef maður veit eftir hverju á að hlusta þá er þetta svolítið eins og góð slökunartón­ list. Og erum við ekki öll alltaf að reyna að slaka á?“ magnus@frettabladid.is Umskiptin með ólíkindum Jón Sigurðsson píanóleikari Það sem gerir scri- abin svo einstakan á í heimi tónskáldanna eru Þessu gríðarlegu umskipti sem verða á hans tónlistar- hugmyndum á ferlinum. mér finnst Það vera meiri breytingar en eru t.d. á milli höfunda á klassíska tímanum. 1 3 . o k t ó b e r 2 0 1 5 Þ r i ð J u D a G u r24 M e N N i N G ∙ F r É t t a b L a ð i ð menning 0 2 -1 1 -2 0 1 5 1 0 :2 1 F B 0 4 8 s _ P 0 3 6 K _ N ÝT T .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 6 B F -D 6 D 0 1 6 B F -D 5 9 4 1 6 B F -D 4 5 8 1 6 B F -D 3 1 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 4 8 s _ 1 2 1 0 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.