Breiðholtsblaðið - 01.05.2006, Page 12
Íslenskukeppni milli eldri
borgara í Breiðholti og nemenda
úr 10. bekk allra grunnskólanna
var haldin í FB fyrir skömmu.
Það voru Íslenskukennarar í FB
sem sáu um keppnina og skólinn
bauð upp á kaffi og veitingar á
eftir. Keppnin var liður í Breið-
holtshátíð sem er menningarhá-
tíð eldri borgara og haldin á
vegum Þjónustumiðstöðvar
Breiðholts. Prófað var m.a. í staf-
setningu, orðaforða og orðtök-
um.
Alls komu 7 keppendur frá eldri
borgurum, þau Valdimar Ólafs-
son, Eyjólfur R. Eyjólfsson, Jó-
hann Hallvarðsson, Svanhildur
Sigurjónsdóttir, Sólveig Ingimars-
dóttir, Ingibjörg Björgvinsdóttir
og Jóhanna Björnsdóttir.
Frá grunnskólunum komu 15
keppendur úr öllum grunnskólun-
um í Breiðholti. Þessir keppendur
voru: Sigurður Rúnar Rúnarsson
og Gígja Gylfadóttir úr Breið-
holtsskóla, Hrafnhildur Ýr Matthí-
asdóttir, Hreinn Ágúst Kristins-
son, Andri Ingvason og Hafrún
Kjellberg úr Fellaskóla, Karen Sig-
fúsdóttir og Anna Guðrún Inga-
dóttir Hólabrekkuskóla, Ásta
Lára Guðmundsdóttir, Skúli Hall-
dórsson, Anna Kristín Guð-
mundsdóttir og Katla Sigurðar-
dóttir úr Seljaskóla og loks Guð-
rún Dögg Sveinbjörnsdóttir, Una
Sóley Stefánsdóttir og Arna Björk
Sigurðardóttir úr Ölduselsskóla.
Það var Valdimar Ólafsson,
fyrrverandi flugumferðarstjóri
sem sigraði með yfirburðum en
næst á eftir komu tveir eldri borg-
arar.
MAÍ 200612 Breiðholtsblaðið
BEGGABAR
Hraunbergi 4
Stuðningsmenn Leiknis
Upphitun á alla leiki á Beggabar
Tilboð 1/2 líter bjór kr. 400
Skot og bjór kr. 700
Styðjum Strákana.
Áfram Leiknir
Laugardaginn 20. maí spilar trúbatorin Einar Örn.
Laugardaginn 27. maí spilar Viðar Jóns.
Handavinnu- og listmunasýn-
ing verður opnuð í Gerðubergi
n.k. laugardag 20. maí. Sýndir
verða munir sem félagar í félags-
starfinu í Gerðubergi hafa unnið
en slíkar sýningar eru haldnar
annað hvert ár. Sýningin felur því
í sér yfirlit yfir tveggja ára starf
þeirra sem eru þátttakendur í fé-
lagsstarfinu og sinna handverki
og listsköpun á einhvern hátt.
Af öðru félagsstarfi í Gerðu-
bergi er það að segja að Gerðu-
bergskórinn mun syngja við tvær
guðsþjónustur fimmtudaginn 25.
maí á uppstigningardag. Fyrri
guðsþjónustan verður í Háteigs-
kirkju kl. 11.00 og hin síðari í
Fella- og Hólakirkju kl. 14.00. Þá
ráðgerir kórinn einnig ferð til
Blönduóss þar sem sungið verður
við guðsþjónustu. Félagsstarfið
mun einnig efna til dansleiks fyrir
minnissjúka í Gerðubergi þriðju-
daginn 23. maí þar sem Vinaband-
ið mun leika fyrir dansi. Fleira
verið á döfinni á vegum félags-
starfsins í Gerðubergi í tilefni af
árlegum menningardögum sem
hafa yfirskriftina „sendu mér sól-
skin“ að leiðarljósi.
Handavinnu- og
listmunasýning í Gerðubergi
Einn stærsti
skóli landsins
Búist er við allt að 700 nem-
endum í Sumarskólann í FB í
sumar, en skólinn er orðinn
einn af stærstu framhaldsskól-
um landsins. Kennt er í skólan-
um frá 26. maí til og með 23.
júní og er kennt frá kl. 17:30 á
daginn og fram til kl. 22:10.
Boðið er upp á 80 áfanga í skól-
anum og fer þeim fjölgandi með
árunum. Meðal kennslugreina má
nefna alla almenna áfanga, s.s. ís-
lensku, stærðfræði, ensku, dön-
sku, þýsku, spænsku, bókfærslu,
flestar raungreinar, félagsfræði,
markaðsfræði, sagnfræði, fjöl-
miðlun, upplýsinga- og tölvufræði
og m.fl.
Magnús Ingvason, forstöðu-
maður skólans segir nokkra mis-
munandi hópa koma í skólann. Í
fyrsta lagi séu þetta framhalds-
skólanemendur sem vilja flýta fyr-
ir sér í námi, í öðru lagi nemend-
ur sem hefur ekki gengið sem
skyldi í vetur og vilja vinna það
upp, í þriðja lagi nemendur úr 10.
bekk sem þurfa að ná betri ein-
kunnum úr samræmdu prófunum
og loks almenningur sem hefur
áhuga á einstökum áföngum.
Nemendum úr 10. bekk hefur
fjölgað nokkuð undanfarin ár.
Framhaldsskólarnir miða alla
jafna við einkunnina 5 þegar tekið
er inn í skólana á haustin. Nem-
endur sem fá lægra en það á sam-
ræmdu prófunum geta komið í
skólann og reynt að hækka ein-
kunn sína með því að taka annað
próf. Nám fyrir þennan hóp hefst
nokkru seinna, eða 7. júní.
Magnús segir að lokum að við-
tökurnar við sumarskólanum séu
mjög góðar og mörgum finnst frá-
bært að boðið sé upp á kennslu á
sumrin, en námið sækja nemend-
ur úr öllum borgarhverfum og af
öllu landinu.
Nokkrir af umsjónarmönnum Sumarskólans í FB: Torfi Magnússon,
Magnús Ingvason og Hjördís Hjörleifsdóttir.
Ungir og gamlir
í íslenskukeppni