Breiðholtsblaðið - 01.05.2006, Qupperneq 15
MAÍ 2006 15Breiðholtsblaðið
Margrét Sverrisdóttir, sem skipar
annað sæti á lista Frjálslyndra:
Berjumst fyrir varðveislu ósnortinnar
náttúru
„Almennt þarf að forðast flutning verkefna grunnskól-
anna til einkaaðila vegna hagsmunatengsla, sem dæmi má
nefna þegar Landsvirkjun vildi útbúa námsefni handa
grunnskólanemum í áróðursskyni. Eflaust má þó finna
einhverjar undantekningar frá þessari meginreglu með
það að markmiði að auka samkeppni t.d. í námsgagna-
gerð.
Framboð Frjálslyndra og óháðra leggst alfarið gegn
einkavæðingu Orkuveitu Reykjavíkur og Landsvirkjunar
og varar við því að fleiri auðlindir almennings komist í
hendur fárra. Orkuveita Reykjavíkur er mjög blómlegt fyr-
irtæki sem gefur góðan arð fyrir eigendur sína, Reykvík-
inga, og því leggst F-listinn gegn hlutafélagsvæðingu þess
eða öðrum breytingum á rekstri.
Við viljum stórlækka fasteignagjöld aldraðra og einnig
kemur lækkun holræsagjalds til greina fyrir sama hóp. Við
teljum að sú fyrirætlun okkar ásamt eflingu heimaþjónust-
unnar geri öldruðum kleift að búa heima eins lengi og þeir
kjósa.“
Borgarskólar með mismunandi áherslur
Við viljum heilsdagsskóla fyrir öll börn með áherslu á
íþróttir, verknám og listgreinar í dagslok. Frelsi skóla til að
velja sér skólastefnu verði aukið og stuðningur borgarinn-
ar verði jafn við alla viðurkennda grunnskóla, enda sé
þeim ekki heimilt að innheimta skólagjöld. Við viljum
þess vegna tala um borgarskóla með mismunandi áhersl-
ur og stefnur, raunhæfan valkost fyrir börn jafnt sem for-
eldra. Við höfum skýra stefnu hvað varðar einkaskóla. Við
erum hlynnt því að einkaskólar starfi við hlið grunnskóla-
kerfisins - enda sé það ekki gert á kostnað grunnskólans.
Við viljum ekki að efnamunur ráði úrslitum um gæði
kennslu barna. Valfrelsi foreldra til að velja skóla eftir
skólastefnu verði aukið. F-listinn vill að allar skólamáltíðir
verði ókeypis, og lögð áhersla á fjölbreytni og næringar-
gildi þeirra og öryggi í allri framreiðslu. F-listinn leggur
einnig til að grunnskólar verði gjaldfrjálsir í stað þess að
foreldrar greiði 10 til 16 þúsund krónur á mánuði fyrir
nesti og hádegismat, ef gert er ráð fyrir að þau fái hádegis-
mat í skólanum og gjald vegna frístundaheimila Þá er það
stefna F-listans að gjaldtaka vegna leik- og grunnskólans
verði samræmd.
Sumarlokanir úr sögunni
„Öll börn eigi rétt á leikskólanámi frá 2ja ára aldri eins
og um skyldunám væri að ræða. Markmið okkar er að
börn komist að á leikskólum frá 1 árs aldri og leikskólinn
sé gjaldfrjáls frá 2ja ára aldri. Leikskólar séu mannaðir allt
árið og sumarlokanir verði úr sögunni. Þannig geti for-
eldrar valið hvenær barnið fari í sumarfrí. Við viljum efla
dagforeldrakerfið vegna þess að við teljum gott fyrir börn
að vera í smærri hópum meðan þau eru innan við eins árs
aldur. Við leggjum áherslu á eftirlit með starfsemi þeirra
sem annast börnin.“
Öldrunarmál til sveitarfélaga
„Við erum mjög hlynnt því að færa öldrunarmál til sveit-
arfélaga, enda um nærþjónustu að ræða. Við vísum til
fyrra svars hér um lækkaðar álögur á eldri borgara til að
þeir geti búið heima og notið þeirrar eflingu heimaþjón-
ustu sem allir flokkar í borginni segjast vilja standa að.
Hraða þarf uppbyggingu hjúkrunarrýma fyrir aldraða eins
og kostur er. Kjör starfsfólks á dvalarheimilum hafa þegar
verið bætt hjá Reykjavíkurborg með eindregnum stuðn-
ingi F-listans. Við vekjum þó athygli á því hvernig ríkis-
stjórnarflokkarnir hafa svikið aldraða og öryrkja í þessum
efnum sem öðrum.“
Berjumst fyrir varðveislu
ósnortinnar náttúru
„Eyjabyggðarhugmyndir Sjálfstæðisflokksins falla um
sjálfar sig. Við erum eini flokkurinn í borginni sem berst
fyrir varðveislu ósnortinnar náttúru í borginni eins og fjör-
unum í Grafarvogshverfi. Einnig viljum við forða yndislegri
náttúru Skerjafjarðarins frá því umhverfisslysi sem bygg-
ing flugvallar á Lönguskerjum væri. Við getum ekki lofað
því en við ætlum að hverfa frá þeirri útboðsstefnu sem
ríkt hefur í tíð R-listans og stórauka framboð á lóðum und-
ir sérbýli í borginni.“
Óskar Bergsson, sem skipar annað
sætrið á lista Framsóknarflokksins:
Samþætta frístundanámið einsettum
skóladegi
„Stefna B-listans í Reykjavík er að sveitarfélögin og ríkið
reki skólanna. Það er almenna reglan. Ef atvinnulífið legg-
ur fram hugmyndir með að koma að slíkum rekstri þá er
það skoðað í hverju tilfelli fyrir sig. Framsóknarflokkurinn
vill að Orkuveita Reykjavíkur verði áfram í eigu borgarinn-
ar. Áherslur B-listans eru frekar á þann veg að bæta þjón-
ustuna heldur en að lækka skattana. Fjárhagsstaða
Reykjavíkurborgar er mjög sterk. Skuldaaukning borgar-
innar er tilkomin vegna arðbærra fjárfestinga sem munu
skila borgarbúum aukinni hagsæld í framtíðinni.“
Samþætta frístundanámið einsettum
skóladegi
„Það er helsta stefnumál B-listans í borginni að sam-
þætta frístundanámið hinum einsetta skóladegi. Við erum
eini flokkurinn sem leggur til 40 þúsund króna frístunda-
kort á ári til allra barna frá 5-18 ára. Með þessu viljum við
tryggja að börn þeirra foreldra sem minnstar hafa tekjurn-
ar njóti frístundanáms á við jafnaldra sína. Til þess að
mæta þörfum yngstu barnanna leggjum við til að hækka
rekstrarstyrki til dagforeldra og tryggja 50 þúsund króna
heimgreiðslu til foreldra barna á aldursbilinu 9 til 18 mán-
aða. Reykjavíkurborg hefur nú þegar riðið á vaðið með
launahækkanir til starfsfólks í umönnunarstéttum. Fulltrú-
ar Framsóknarflokksins í borgarstjórn stóðu á bak við þá
ákvörðun.“
Fjölgun sérbýlalóða
„B-listinn í Reykjavík hefur sett fram skýra stefnu í lóða-
málum. Við viljum gera sérstakt átak í því að fjölga sérbýl-
islóðum í Reykjavík með því að úthluta 1200 lóðum undir
sérbýli á næstu 18 mánuðum og finna jafnvægi framboðs
og eftirspurnar í lóðamálum í borginni.
Með flutningi flugvallarins á Löngusker opnast mikið
byggingarland í Vatnsmýrinni auk þess sem þéttingar-
svæði við Slippinn er í skipulagsmeðferð.
Engar hugmyndir eru um þéttingarsvæði í Breiðholti en
nauðsynlegt er gera átak í viðhaldi og endurbótum á gang-
stígum auk þess hreinsun á götum borgarinnar verður for-
gangsverkefni hjá B-listanum verði hann í meirihluta á
næsta kjörtímabili.“
Dagur B. Eggertsson, borgarfulltrúi
og oddviti Samfylkingarinnar:
Sex þúsund manna byggð og málefni eldri
borgra til borgarinnar
„Þjónusta Reykjavíkurborgar er og á að vera í stöðugri
endurskoðun. Á síðustu árum hefur borgin hætt rekstri
trésmiðju, pípugerðar, grjótnáms og vélamiðstöðvar og
hætt sorphirðu hjá fyrirtækjum. Á sama tíma hefur þjón-
ustan við íbúana verið efld með því að koma á fót símaveri
með einu símanúmeri fyrir alla þjónustu Reykjavíkurborg-
ar, 4 11 11 11, stofna þjónustumiðstöðvar í öllum hverfum
og gera upplýsingar og þjónustu aðgengilega á netinu. At-
vinnulífið hefur þannig tekið við mörgum þáttum sem
voru í opinberum rekstri í tíð Sjálfstæðisflokksins. Nú er í
athugun sala á Malbikunarstöðinni, sem er í eigu borgar-
innar, og vitaskuld sala á eignarhlut borgarinnar í Lands-
virkjun.
Orkuveitan sér borgarbúum fyrir góðri og öruggri þjón-
ustu gegn tiltölulega vægu gjaldi auk þess að reka grund-
vallarinnviði borgarinnar. Einkavæðing slíkrar þjónustu
hefur verið reynd víða og niðurstaðan hefur undantekn-
ingalítið orðið dýrari þjónusta og minna öryggi. Samfylk-
ingin leggst því alfarið gegn einkavæðingu Orkuveitu
Reykjavíkur.“
Nauðsynlegt að bjóða góða hverfisskóla
„Einkaskólarnir í borginni gegna mikilvægu hlutverki og
því er dyggilega stutt við bakið á þeim, en það er hlutverk
og skylda okkar að bjóða öllum börnum, óháð fjárhag,
upp á góða hverfisskóla. Við njótum krafta frábærra kenn-
ara og höfum eflt samstarf skólanna og heimilanna. Við
sjáum hreinlega ekki að rekstur hverfaskólanna væri betur
kominn í höndum einkaaðila.“
Gjaldfrjáls leikskóli og niðurgreitt félags-
starf fyrir aldraða
„Fjárhagsstaða Reykjavíkur er mjög sterk. Skuldir borg-
arsjóðsins á íbúa eru lægri en gengur og gerist og eignir
okkar langt umfram það sem þekkist hjá öðrum sveitarfé-
lögum. Samfylkingin vill að almenn grunnþjónusta sé veitt
gegn sem lægstu gjaldi. Þess vegna viljum við gjaldfrjálsan
leikskóla, ódýrar skólamáltíðir, hófleg gjöld í frístunda-
heimilin og niðurgreitt félagsstarf fyrir aldraða. Þetta kost-
ar peninga og við teljum réttara að þeir komi að mestu
leyti úr sameiginlegum sjóðum en gjöldin á notendur séu
sem lægst. Fasteignaskatturinn var lækkaður mikið um
síðustu áramót vegna uppsveiflunnar á markaðnum og
þess verður áfram gætt að borgarbúar verði ekki fyrir fjár-
hagslegum skell af þeim sökum. Holræsagjaldið hefur
lækkað í tvígang eftir því sem hreinsun strandlengjunnar
hefur miðað fram og mun halda áfram að lækka með
minnkandi þörf fyrir fjárfestingu.“
Tómstundastarf inn í stundaskrána
„Við myndum aldrei sætta okkur við þann vinnudag
sem við erum oft á tíðum að búa börnunum okkar; sund-
urslitinn og hist og her um bæinn. Það gengur ekki til
lengdar að börn í yngstu bekkjunum séu á æfingum, skáta-
fundum eða tónlistartímum fram eftir kvöldi. Færsla tóm-
stundastarfs inn í stundaskrá skólanna er ögrandi verkefni
þar sem Samfylkingin treystir á að þjónustumiðstöðvarnar
verði í lykilhlutverki við að kalla til samstarfs skólayfir-
völd, foreldra og þá aðila sem sjá um íþróttakennslu, list-
nám, æskulýðsmál og annað tómstundastarf. Lausnin má
þó aldrei bera keim af of mikilli miðstýringu því hverfin
eru ólík og aðstæður mismunandi á hverjum stað.“
Fleiri dagforeldrar
„Leikskólabylting undanfarins áratugar er frábært vega-
nesti fyrir áframhaldandi jákvæða þróun leikskólastarfs í
borginni. Við viljum fjölga leikskólaplássum fyrir yngsta
aldurshópinn með viðbyggingum við suma leikskóla og
efla dagforeldrakerfið í samstarfi við hinar vel heppnuðu
þjónustumiðstöðvar hverfanna. Það er hvimleitt fyrir for-
eldra ungabarna að sitja við símann og hringja í tugi dag-
foreldra og skrá barn sitt á biðlista út um allan bæ. Með
kjarabótinni sem núverandi borgarstjóri stóð fyrir og með
því að borgin gerði sérstakt átak í að fjölga dagforeldrum
og hækka niðurgreiðslur, skánaði ástandið til muna, þó að
enn megi gera betur.“
Tökuð málefni eldri borgara að okkur
„Samfylkingin hefur lýst sig reiðubúna til að taka alfarið
við málefnum eldri borgara. Reykjavíkurborg er með
mestu heimaþjónustuna af öllum sveitarfélögum, en ríkið
veitir minnstu heimahjúkrunina í Reykjavík. Samfylkingin
vill samvinnu við samtök eldri borgara um fjölgun fjöl-
breyttra búsetukosta þar sem öryggi og sjálfræði íbúa er
tryggt í sjálfstæðri búsetu og aldraðir geti notið hjúkrunar
og umönnunar á heimilum sínum. Yfir 300 aldraðir Reyk-
víkingar bíða nú í brýnni þörf eftir að komast inn á hjúkr-
unarheimili. Á sama tíma bíða þrjár lóðir í Mörkinni, Graf-
arholti og á Lýsis-lóðinni auk 360 milljóna á biðreikningi
hjá Reykjavíkurborg, eyrnamerktir byggingu hjúkrunar-
heimila. Ríkisvaldið heldur hinsvegar að sér höndum.“
Sex þúsund íbúðabyggð
„Síðustu ár hafa verið metár í byggingu íbúðarhúsnæðis
í Reykjavík. Aldrei voru fleiri íbúðir teknar í notkun en
2003 og aldrei hefur verið byrjað á fleiri nýjum íbúðum í
Reykjavík en í fyrra. Það eru stórir árgangar að koma út á
húsnæðismarkaðinn. Samfylkingin hefur lagt fram áætlun
um byggingu 6.000 íbúða í fjölbreyttri byggð á næsta kjör-
tímabili. Það er nægilegt framboð. Úlfarsárdalurinn mun
halda áfram að byggjast og byggðin þéttast á gamla hafn-
arsvæðinu og við Hlemm. Breiðholtið er nánast fullbyggt
þó þar komi til greina að setja niður nokkur einbýlishús
eða lítil fjölbýli á svæðum sem af einhverjum ástæðum
hafa ekki byggst á liðnum árum.“