Vesturbæjarblaðið - 01.04.2007, Page 12
12 Vesturbæjarblaðið APRÍL 2007
Bernskuminningar úr Vesturbænum
Hápunkturinn í Melaskóla að
stjórna morgunleikfimi útvarpsins
Ég heiti Felix Bergsson, leik-
ari og fulltrúi Samfylkingar í
Hverfisráði Vesturbæjar. Þeg-
ar ég lít til baka er bernskan
í vesturbænum sveipuð ævin-
týraljóma. Ég er vesturbæingur
í húð og hár. Þegar ég fæddist
bjuggur foreldrar mínir, Ingi-
björg S. Guðmundsdóttir og
Bergur Felixson á Vesturgöt-
unni númer 45. Við fluttum síð-
an á Blönduós í 6 ár en snerum
aftur í vesturbæ Reykjavíkur
og ég bjó frá 8 ára aldri á Túns-
bergi við Þormóðsstaðaveg,
sem núna er hluti af Starhaga.
Þangað er ég nú kominn aftur,
ásamt eiginmanni og börnum
og horfi glaður út á Skerjafjörð-
inn á hverjum morgni.
Það var gott að vera barn á
Túnsbergi. Margir voru vinirnir
í nágrenninu, systkini mín Þórir
og Sigurþóra voru nálægt mér
í aldri og öll gengum við í Mela-
skóla.
Minningarnar úr Melaskóla eru
ljúfar. Skólinn var samfélag í sjál-
fu sér og þaðan minnist ég góð-
mennsku og aga, góðrar mennt-
unar, öryggis og trausts. Og svo
auðvitað allra vinanna sem hafa
fylgt mér í gegnum lífið.
Hrjúf með gullið hjarta
Kennarinn minn í Melaskóla
var Ásdís Steinþórsdóttir.
Dálítið hrjúf á yfirborðinu en und-
ir niðri sló hjarta úr gulli. Hún
kenndi okkur af fítonskrafti, rek-
in áfram af hugsjón um að gera
okkur að mönnum. Mér þótti sér-
staklega vænt um Ásdísi og ég
veit að henni fannst vænt um
okkur. Ásdís bjó á Neshaga, eigin-
lega við hliðina á skólanum. Það
var til marks um líf hennar. Mela-
skóli var líf hennar. Alla tíð, ef ég
mætti Ásdísi á götu, heilsuðumst
við með virktum og á einhvern
sérkennilegan máta breyttist ég
í litla átta ára drenginn sem gekk
í einfaldri röð inn í skólastofuna
hennar árið 1975. Hún var kenn-
arinn minn, með stóru K-i.
Breytti stúlknakór í
samkór!
Ég hafði strax tilhneigingu til
að vilja láta á mér bera, taka þátt
í listsköpun, komast á svið. Það
var auðvelt í Melaskóla. Að vísu
var þar einungis starfræktur
stúlknakór en við Hafsteinn G.
Jónsson vinur minn breyttum
því. Við vildum líka fá að syngja
og Magnús Pétursson, kórstjóri
og snillingur, tók okkur opnum
örmum. Kannski verður það
afrekið sem komandi kynslóðir
munu minnast okkar Haffa fyrir.
Að breyta stúlknakór Melaskóla í
samkór! Hver veit.
En árin í Melaskóla urðu fyrir
vikið full af tónlist. Tónlist og
meiri tónlist. Plötuupptökur með
Kötlu Maríu og fyrir Sameinuðu
þjóðirnar, framkoma í útvarpi og
sjónvarpi, kórferðalög, tónleikar
og fleiri tónleikar. Við elskuðum
Magnús og með ljúfri framgöngu
sinni varð hann okkur öllum fyr-
irmynd. Magnús stjórnaði ekki
með látum, við hlýddum öllu
sem hann sagði því við bárum
ótakmarkaða virðingu fyrir snilld
hans.
Hápunkturinn í samstarfi okk-
ar Magnúsar var þegar hann
fékk mig til að stjórna morgun-
leikfimi Ríkisútvarpsins á Alþjóð-
legum degi barnanna. Valdimar
Örnólfsson dró sig í hlé og við
Magnús skemmtum okkur kon-
unglega við að teygja og beygja
þjóðina. Lokahnykkurinn var að
sjálfsögðu “Höfuð herðar hné og
tær”. Mér fannst ég brjálæðis-
lega frægur, frægari en nokkru
sinni fyrr eða síðar.
Lífið á Starhaganum var ljúft
en við áttum það nú til að láta
til okkar taka í prakkarastrikum.
Ég var nú alltaf frekar huglaus
á þeim vettvangi og ef eitthvað
kom upp á fannst mér auðveld-
ara að benda á vini mína, Þóri
bróður eða Gunna Páls, sem
bjó í næsta húsi, Aðalbóli. Einu
sinni kveiktum við í sinu við
Starhagann og vorum rétt búnir
að brenna bílana sem stóðu við
götuna og forláta sportbát sem
var fastur við einn bílinn á tengi-
vagni. Þar bjargaði snarræði
nágranna og slökkviliðs. Skamm-
irnar sem við fengum sviðu sárt.
Unnu innanfélagsmót
með utanfótarspyrnu-
mann af Fálkagötunni
Sem betur fer vorum við ekki
mikið í að skemma eigur ann-
arra en vorum því duglegri í fót-
bolta og körfubolta og slösuðum
þar hver annan með reglulegu
millibili. Þórir bróðir minn var á
tímabili fastagestur á slysavarðs-
stofunni. Við vorum allir í KR en
stofnuðum líka okkar eigið fót-
boltalið og kepptum á einhvers-
konar innanfélagsmóti sem KR
stóð fyrir eitthvert sumarið. Og
viti menn - við unnum mótið!
Leynivopnið okkar kom af
Fálkagötunni. Það var Baldur
Grétarsson, besti vinur minn, en
hann var sérstaklega liðtækur í
utanfótarspyrnum sem rugluðu
alla markmenn. Nafn liðsins okk-
ar var Fálkarnir en það runnu á
okkur tvær grímur þegar okkur
var bent á að nafnið væri eigin-
lega það sama og Valur. Það þótti
okkur hræðilegt!
Leynifélagið Púkablístr-
an, ........ og forsetinn
Æskan í vesturbænum er fjár-
sjóður sem allt lífið byggir á. Þar
er margs að minnast. Allt leiklist-
arstarfið, lúðrasveitirnar, kórarn-
ir, KR, leynifélög (okkar hét Púka-
blístran), Sumardagurinn fyrsti,
Barnavinafélagið Sumargjöf
fyrir ofan Hagaborg, brennurn-
ar á Ægissíðunni sem við keppt-
umst við að safna í (þá voru þær
tvær og sú þriðja í Skerjó), sund
í sjónum og í Vesturbæjarlaug,
körfuboltaleikir á sumarkvöld-
um á leikvellinum við Melaskóla,
Simmasjoppa, Melabúðin, Ragn-
arsbúð, Árnabúð á Fálkagötunni
(þar gátum við staðið og spjallað
við ljúflinginn hann Árna tímun-
um saman), KRON á Dunhaga,
könnunarferðir í Vatnsmýri,
heimspekilegar umræður niðri í
fjöru, uppátæki og mikill hlátur,
........ Upptalningin er endalaus.
Einu sinni þegar við strákarnir
vorum að spjalla við Árna í Árna-
búð kom Vigdís Finnbogadóttir
og keypti skyr. Hún var forset-
inn. Við trúðum ekki okkar eigin
augum, en svo héldum við bara
áfram að spjalla. Þannig var lífið
í vesturbænum.
Besti staður í heimi!
Það er svo skrýtið, en ég er
búinn að komast að því að mér
finnst vesturbærinn í Reykjavík
vera besti staður í heimi. Þess
vegna snýr maður alltaf aftur.
Í vesturbænum vil ég ala upp
börnin mín, í vesturbænum vil
ég eldast. En við megum aldrei
gleyma að hlúa hvert að öðru,
nágrönnum okkar og vinum.
Sjarminn við vesturbæinn var, er
og verður falinn áfram í fólkinu
sem byggir hverfið. Það er merg-
urinn málsins.
Sjáumst á KR-vellinum í sum-
ar... eða í Melabúðinni... eða í
sundi... eða....
„Á jólunum er gleði og gaman"
Lúðrasveit, kór o.fl. menningartengt átti hug Felixar á
æskuárunum.
Með ættingjum á tröppunum á Túnsbergi.
Hreinlæti fyrir öllu!