Vesturbæjarblaðið - 01.12.2005, Qupperneq 11
DESEMBER 2005 11Vesturbæjarblaðið
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
LB
I
25
92
2
1
0/
20
04
410 4000 | landsbanki.is
Njótið aðventunnar
Birtumeðferð í
Vesturbæjarlaug
Rannsóknir hafa leitt í ljós að
skammdegisóyndi hrjáir 10,5%
Íslendinga eða nær 30 þúsund
manns, þar af um 12 þúsund
Reykvíkinga!
Það lýsir sér sem geðlægð sem
kemur ávallt fram ásama tíma ár
hvert og stendur yfir vetrarmán-
uðina. Einkenni vetraróyndis eru
m.a. þunglyndi, depurð, skert
virkni eða athafnaleysi, kvíði,
bráðlyndi, þreyta að degi til, auk-
in svefnþörf og kyndeyfð. Erlend-
ar rannsóknir sýna að birtumeð-
ferð dregur verulega úr þessum
einkennum. Birtumeðferð gengur
út á það að viðkomandi situr fyr-
ir framan sérstakt ljós í ákveðinn
tíma.
Nýlegar rannsóknir hafa einnig
sýnt fram á að lækningamáttur
ljóss nærtil fleiri kvilla. Nefna má
flugþreytu, vanlíðan af völdum
vaktavinnu, svefntruflanir, sí-
þreytu, fyrirtíðarspennu og
þunglyndi á meðgöngu.
Í Vesturbæjarlaug hafa verið
settir upp sérstakir lampar á veg-
um ÍTR, birtulampar, sem hann-
aðir hafa verið sérstaklega til að
draga úr skammdegisóyndi. Þeg-
ar sest er fyrir framan lampann
er árangursríkast að horfa í
miðju hans. Þeir sem eru þjáðir
af skammdegisóyndi og telja að
það trufli líf sitt en finna ekki
nokkra bót að sitja fyrir framan
lampann, ættu skilyrðislaust að
leita læknis. ■
Anna Kristinsdóttir, borgarfulltrúi og formaður ÍTR, settist fyrir
framan einn lampann þegar þeir voru teknir í notkun. Henni til halds
og trausts er Sigmar B. Hauksson, sem áður sótti Vesturbæjarlaug, en
hefur nú fært sig um set. Kannski lamparnir dragi hann vestur eftir
aftur.
Gististaðurinn Þrjár systur á
horni Ránargötu og Ægisgötu
hefur vakið sérstaka athygli, sér-
staklega útlendinga, vegna nokk-
urs suðræns útlits hússins, ekki
síst gluggaumgjörð þess. Eigand-
inn, Þórður Benediktsson, segir
að síðasta sumar hafi verið mjög
gott og nýtingarhlutfall gistingar
býsna hátt. Næsta sumar verða 5
íbúðir til leigu á Þremur systrum
eins og síðasta sumar en í vetur
séu þar fastir viðskiptavinir sem
verði þar allt til vors.
Á sumrin er hægt að fá morgun-
mat í íbúðirnar en honum er þá
komið fyrir í kæliskápnum kvöld-
ið áður. En oftast sér fólk um sig
sjálft.
Þórður hefur nú keypt annað
hús á mótum Ægisgötu og Mýrar-
götu en þar var áður blikksmiðja.
Húsið verður ekki afhent Þórði
fyrr en 1. janúar nk. og þá fljótlega
verður hafist handa við að inn-
rétta.
„Ætli þessi gamla blikksmiðja
verði ekki fyrst og fremst vetrar-
leiguhús en ólíklegra að þær íbúð-
ir sem þar verða verði sérstak-
lega leigðar út á sumrin til ferða-
manna. Það er hins vegar ekki
gott að segja hvað verður, þetta
er kannski meira spurning um
hvað ég hef þrek og vilja til að
gera. En það væri gaman að geta
leigt það út strax næsta sumar.
Ætli þar verði ekki 5 íbúðir, svip-
að og hér uppi á Ránargötunni,“
segir Þórður Benediktsson. ■
Þrjár systur
á Ránargötunni
Þrjár systur á horni Ránargötu og Ægisgötu