Allt um íþróttir - 01.07.1950, Page 4
JÓHANN BERNHARD:
éfurópum eió tcircim ótiJl í (fSrúóóel.
4. Evrópumeistaramótið í frjáls-
um íþróttum fer fram í Briissel
23.—27. ágúst næstkomandi. Er-
hér um að ræða stærsta íþrótta-
mót, sem haldið er í heiminum,
að Ólympíuleikunum einum und-
anskildum, þátttakendur munu
verða um 600 frá yfir 20 þjóðum
og áhorfendur tæp 70,000, en fleiri
rúmar Heysel-leikvangurinn ekki.
Fyrsta Evrópumeistaramótið
var haldið í Torino á ítalíu 7.—9.
sept. 1934, annað í París 4.—5.
sept. 1938, og það þriðja í Osló
22.—25. ágúst 1946. Var það fyrsta
Evrópumeistaramótið, sem við Is-
lendingar tókum þátt í, sællar
minningar. Sendum við þangað 10
þátttakendur, er gátu sér svo
góðan orðstír, að frægt er orðið.
Gunnar Huseby varð Evrópumeist-
ari í kúluvarpi, Finnbjörn Þor-
valdsson úrslitamaður í 100 m.
hlaupi, Skúli Guðmundsson og
Stefán Sörensson nr. 7 í hástökki
og þrístökki, og Oliver Steinn átt-
undi í langstökki. Hinir keppend-
urnir, Óskar Jónsson, Jón Ólafsson,
Kjartan Jóhannsson, Jóel Sigurðs-
son og Björn Vilmundarson stóðu
sig og ágætlega og sem heild vakti
íslenzki hópurinn óskipta athygli.
Enda þótt framfarir ísl. frjáls-
íþróttamanna hafi orðið mjög stór-
4
stígar síðan 1946, er ólíklegt að
þátttaka okkar verði meiri en þá
— vegna hinna alkunnu gjaldeyr-
isvandræða. Auk þess eru nú gerð-
ar mun meiri kröfur til íþrótta-
mannanna en t. d. á síðustu Ól-
ympíuleikum og hefur fram-
kvæmdanefnd mótsins þegar á-
kveðið lágmarksafrek í nokkrum
greinum, sem þátttakendur verða
að ná til þess að fá að taka þátt
í aðalkeppninni. Lágmarksafrekin
eru þessi:
íþróttagrein Karlar Konur
Kúluvarp ... . . 15,00 m. 12,50 m.
Kringlukast .. 47,00 — 39,50 —
Spjótkast .. . . 65,00 — 39,50 —
Sleggjukast . . 52,00 —
Langstökk .. 7,15 — 5,40 —
Þrístökk ... . . 14,50 —
Stangarstökk . . 4,00 —
Hástökk ... .. 1,90— 1,55 —
Eins og sjá má af þessu hefur
framkvæmdanefndin gengið nokk-
uð langt í því að takmarka f jölda
þeirra, sem taka þátt í aðalkeppn-
inni. Þó hefur hún slegið þann var-
nagla, að aldrei skuli færri en 9
keppa, þótt svo margir hafi ekki
náð lágmarksárangri.
í hlaupum, göngu og boðhlaup-
um hefur framkvæmdanefndin
ekki ákveðið nein lágmarksafrek,
enda er slíkt ekki venja, þar sem
IÞRÓTTIR