Allt um íþróttir - 01.07.1950, Blaðsíða 21

Allt um íþróttir - 01.07.1950, Blaðsíða 21
tók ég þátt í landsmóti UMFÍ að Laugum. Keppti ég þar í 400 m. hlaupi og varð þriðji. Þá komst ég að raun um, að þýðingarlaust er með öllu að ætla sér að keppa og ná árangri, án þess að æfa. Lærdómur. Það var vorið 1947, sem ég fyrst byrjaði að æfa frjálsar íþróttir fyrir alvöru. Fyrst í stað var mér lítill gaumur gefinn, en ég reyndi bara að manna mig upp og gera eins og hinir. Brátt kom að því, að þeir fóru að taka eftir mér (líklega af því, að ég kom svo oft á æfingar, en ekki af því að ég væri svo góður). Þeir kennarar, sem ég á fyrst og fremst að þakka árangur minn, eru þeir Georg Bergfors, sænskur þjálfari, sem var hjá Í.R. 1947 og Benedikt Jak- obsson íþróttakennari, sem hefur gefið mér mörg holl og góð ráð. Annars tel ég, að ég eigi mest vini mínum, Óskari Jónssyni, millivega- lengdahlauparanum og íslandsmet- hafanum í 800 — 3000 m. hlaup- um, auk hinna fyrrtöldu, að þakka framgang minn. Hann var fús til að miðla mér öllum þeim fróðleik og allri þeirri þekkingu, er hann hafði öðlazt, bæði á innlendum og erlendum vettvangi, og veit ég, að ég get seint fullþakkað honum þann lærdóm, sem ég hef öðlazt af honum, en það er von mín og ósk að fá að sjá hann sem fyrst á hlaupabrautinni aftur, þótt hann hafi orðið að taka sér frí um stund- arsakir. Ég hef verið svo heppinn að hafa afbragðs þjálfara það sem af er þessu ári, Eistlendinginn Ed- wald Mickson, duglegan og ötulan mann, sem hefur drifið mig áfram með oddi og egg við æfingarnar. Framfarir. Þær íþróttagreinar, sem ég hef aðallega stundað og keppt í eru millivegalengdahlaupin 800 og 1500 metrar. Fyrsta opinbera mótið, sem eg tók þátt í hér í Reykjavík, var Af- mælismót Í.R., Svíamótið svokall- aða, sem haldið var síðast í júní 1947, og keppti ég þar í 1000 m. hlaupi og varð 4. á 2:40.1 mín. Fyrsta keppni mín á erlendum vettvangi var í Osló 28. ágúst sama ár og keppti ég þar í B-flokki í 800 m. hlaupi og varð 3. á 2:00.6 mín. af 24 keppendum. Ég vil ekki lýsa því, hvernig mér var innan- brjósts áður en hlaupið hófst, en þegar á stað var komið, var allt í lagi. Til gamans fyrir þá, sem áhuga kynnu að hafa á því, ætla ég að skýra stuttlega frá helztu áröngr- um, sem ég hef náð, síðan ég byrjaði að æfa. Ár 800 m. hl. 1500 m. hl. 1947 .... 2:00.6 4:17.0 1948 .... 1:59.7 4:10.2 1949 .... 1:58.1 4:07.2 1950 .... 1:57.4 4:07.8 Yfirlit þetta sýnir bezta árang- ur hvers sumars. Eins og sjá má af ofangreindri töflu, þá hafa framfarirnar orðið nokkuð jafnar og miða í rétta átt og sérstaklega er ég bjartsýnn á framtíðina nú Framh. á bls. 24. IÞRÖTTIR 21

x

Allt um íþróttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Allt um íþróttir
https://timarit.is/publication/1115

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.