Allt um íþróttir - 01.07.1950, Blaðsíða 13
legri en okkar menn, fóru ekki
úr jafnvægi, þó að illa horfði og
kom það bezt í ljós í aukaleikj-
unum, sem allir byrjuðu illa fyrir
þá.
Finnarnir kepptu þrjá aukaleiki
og unnu þá alla, Ármann (styrkt
lið) með 12:11, Fram með 7:4, og
Reykjavíkurúrval með 10:9. Heim-
leiðis héldu þeir 3. júní s.l. og
voru mjög ánægðir með ferðina,
viðtökur og aðbúnað allan, sem
Glímufélagið Ármann sá um.
Fram varð íslandsmeistari í hand-
knattleik karla utanhúss.
íslandsmeistaramótið í hand-
knattleik karla utanhúss fór fram
á Akureyri dagana 18. og 19. júní
s.l. Þetta er annað árið í röð, sem
mótið er haldið á Akureyri, og
er það harla einkennileg ráðstöfun.
Félögin hér og í Hafnarfirði hefðu
áreiðanlega fleiri sent lið, ef mót-
ið hefði t. d. verið haldið á Akra-
nesi.
Aðeins fjögur félög sendu lið á
mótið, Reykjavíkurfélögin Ár-
mann, Fram og Víkingur og Knatt-
spyrnufélag Akureyrar.
Keppnin fór fram á nýju íþrótta-
svæði, sem Akureyringar eru að
koma sér upp. Allir leikir mótsins
voru frekar ójafnir nema tveir
þeir síðustu milli Víkings og KA,
sem þeir fyrmefndu unnu með
8:7, og milli Fram og Ármanns,
sem Fram vann með 8:6 og tryggði
sér þar með meistaratitilinn.
Úrslit urðu þau, að Fram hlaut
6 stig, Ármann 4, Víkingur 2 og
KA ekkert.
urópumeiá tara -
mót í óun di.
Evrópumeistaramót í .sundi fer
fram í Vínarborg seinni hluta
ágústmánaðar n.k. Mjög lítið er
um þetta mót rætt hér, þó að við
eigum ágætum sundmönnum á að
skipa, t. d. hafa engir menn verið
valdir til æfinga í þessu sambandi
og frekar lítið er um sundkeppn-
ir. Það eina, sem heyrzt hefur frá
Í.S.Í. eru lágmarkstímar, sem sett-
ir hafa verið sem skilyrði til þátt-
töku héðan. Eftir þeim að dæma
kemst líklega enginn á þetta mót
frá íslandi, þar sem þessir lág-
markstímar eru óvenjugóðir sem
slíkir.
Síðasta Evrópumeistaramót í
sundi fór fram í Monte Carlo síðla
sumars 1947. íslendingar sendu þá
keppendur í fyrsta sinn, þá Ara
Guðmundsson, Sigurð Jónsson KR-
ing og Sigurð Jónsson Þingeying.
Þeir stóðu sig allir mjög sóma-
samlega og komst einn þeirra, Sig-
urður KR-ingur, í úrslit í 200 m.
bringusundi.
Það er von allra unnenda sund-
íþróttarinnar, að þeir aðiljar, sem
með þau mál fara, sýni meiri áhuga
og að einhverjir verði sendir sem
fulltrúar íslands á þetta merki-
lega mót.
IÞRÓTTIR
13