Allt um íþróttir - 01.07.1950, Blaðsíða 6
örn Clausen (í 110 m. grhl. og
sjálfkjörinn í tugþraut), Gunnar
Huseby (í kúlu og kringlu) og
Torfi Bryngeirsson (í stöng og
vantar 2 cm. á langstökkið). Auk
þess skortir þá Jóel Sigurðsson (í
spjótkasti), Kristleif Magnússon (í
þristökki), Skúla Guðmundsson (i
hástökki), Pétur Einarsson (í 800
m.) og Þorstein Löve (í kringluk.)
svo lítið á lágmarksafrek, að ólík-
legt má telja, að þeir hafi ekki
náð þeim fyrir tilsettan tíma.
Eru þá alls komnir 13 menn, sem
hafa mikla möguleika á því að að
verði fulltrúar íslands á umræddu
móti, þótt ekki sé þar með sagt,
að kleift reynist að senda þá alla.
Eins og nú standa sakir höf-
um við mikla sigurmöguleika í
kúluvarpi, tugþraut og sprett-
hlaupunum (400 meðtalið). Þá er
og vert að geta þess, að íslenzka
boðhlaupssveitin í 4X100 m. boð-
hlaupi er einhver sú sigurstrang-
legasta, sem nú er völ á í Evrópu.
í lengra boðhlaupinu gætum við
eflaust náð lágmarkstímanum og
komizt í úrslit, en vafsamt að
það borgi sig að leggja þá raun á
spretthlaupara okkar. í stangar-
stökki og langstökki höfum við að
vísu ekki mikla sigurmöguleika,
en þó engu að síður möguleika,
einkum í stangarstökki. Þá bendir
allt til þess, að við getum komizt
í úrslit í spjótkasti og kringlukasti
og jafnvel hástökki og þrístökki.
Svo vikið sé nokkrum orðum að
möguleikum á þátttöku ísl. kvenna
í þessu Evrópumeistaramóti, verð-
ur að viðurkenna þá staðreynd, að
þeir eru harla litlir. En kannske
er ekki við öðru að búast, sé tek-
ið tillit til þess, hve stutt (2 ár)
er síðan ísl. stúlkur fóru að æfa
frjálsar íþróttir fyrir alvöru. Við
það bætast svo hin erfiðu skil-
yrði, sem þær hafa átt við að búa,
svo sem skortur á búningsklefum,
baði og síðast en ekki sízt skort-
ur á reglulegri og fjölbreyttri
þjálfun og keppni. Að vísu gekkst
FRÍ s.l. ár fyrir því, að hér var
haldið fyrsta meistaramót kvenna
í frjálsum íþróttum, en að því
undanskildu hefur lítið eftirlit ver-
ið haft með því, að kvenfólkið
fengi hlutfallslega jafnmörg tæki-
færi og karlmennimir til þess að
kanna getu sína.
Eins og nú horfir virðist aðeins
ein stúlka, Hafdís Ragnarsdóttir,
hafa möguleika á því að ná til-
skildum lágmarksárangri, þ. e. a. s.
12,6 sek. í 100 m. hlaupi. Næstar
henni koma svo María Jónsdóttir
(kringlukast) og Margrét Hall-
grímsdóttir (langstökk), auk þess
sem úrvals boðhlaupssveit gæti
hæglega hlaupið á 50—51 sek., ef
rækt væri lögð við þjálfun hennar.
Frjálsíþróttasamband íslands
(FRÍ) hefur ráðið Benedikt Jak-
obsson sem landsþjálfara og skip-
að sérstaka nefnd til þess að und-
irbúa þátttöku íslands í Evrópu-
meistaramótinu. Upp úr síðustu
áramótum valdi FRÍ 30—40
íþróttamenn, sem hafa síðan ver-
ið undir handleiðslu landsþjálfar-
ans og,hlotið gott veganesti fyrir
mótið.
6
IÞRÓTTIR