Allt um íþróttir - 01.07.1950, Qupperneq 9
Fram (0) 4 — Víkingur (0) 2
Þetta var fyrsti leikur íslands-
mótsins, sem veður var með hag-
stæðara móti og jafnframt fyrsti
leikurinn, sem endanleg úrslit
fengust í. Víking veitti lengi vel
betur, en undir lokin voru kraft-
arnir á þrotum og skoraði Fram
2 mörk á síðustu 5 mínútum. Þeg-
ar 10 mín. voru af síðari hálfleik
hafði Víkingur 2 yfir (Gunnlaug-
ur Lárusson bæði). Fyrir Fram
skoruðu Lárus Hallbjömsson (2),
Ríkharður Jónsson og Sæmundur
Gíslason.
KR (1) 3 — Valur (0) 0.
í þessum leik náði KR aftur
leiknum, sem liðið sýndi fyrst í
Reykjavíkurmótinu, en það var að-
eins fyrri hluta fyrri hálfleiksins,
síðan urðu ríkjandi háar og lang-
ar spymur, sem ekki höfðu annan
tilgang en að flytja þungamiðju
leiksins yfir á vallarhelming and-
stæðinganna. Ólafur Hannesson
skoraði fyrsta markið, Ari Gísla-
son annað og Sigurður Bergsson
það þriðja.
Víkingur (0) 4 — ÍA (1) 3
Þessi leikur var með f jölsóttari
leikjum mótsins og líklega einnig
sá skemmtilegasti og fjörugasti,
í það minnsta undir lokin. Leikinn
dæmdi enski dómarinn Mr. Victor
Rae og hefur það eflaust átt sinn
þátt í að Akurnesingarnir voru
ekki eins ákveðnir og fastir og á
fyrri leikjum. Þegar stundarfjórð-
ungur var eftir stóðu leikar 2:1
Víking í hag, og á næstu 10 mín.
auka þeir það í 4:1. Þá vom eftir
aðeins 9 leikfærir Akumesingar
og tókst þeim að skora 2 mörk á
síðustu 3 mín., bæði mörkin úr
vítaspymu (Sveinn Teitsson).
Fyrsta mark ÍA skoraði Þórður
Þórðarson. Mörk Víkings skomðu
Bjarni Guðnason, Baldur Ámason
(2) og Gunnlaugur Lárusson.
Fram (1) 4 — Valur (1)1
I þessum leik var skorað eitt
hið sérstæðasta mark, sem hér
hefur sézt á íþróttavellinum í op-
inberum leik. Þegar leikur skyldi
hafinn að nýju eftir fyrsta mark
Fram, tókst Val svo vel upp, að
um 6—7 sek. eftir að knettinum
var spymt af miðdeplinum lá hann
í neti Fram-marksins. I síðari
hálfleik tók Fram leikinn eiginlega
í sínar hendur og hélzt knötturinn
lengst af á vallarhelmingi Vals.
Mörk Fram skomðu Láms, Rík-
harður (2) og Guðmundur Jóns-
son.
KR (1) 1 — ÍA (1) 1
Ágætisveður var, er leikur þessi
fór fram, en ekki var hann að sama
skapi vel leikinn. Bæði mörkin
vom skoruð í fyrri hálfleik, Har-
aldur Einarsson fyrir KR og Þórð-
ur Þórðarson fyrir ÍA.
Valur (1)2 — Víkingur (0) 0
Þar eð lítið var í húfi, lagði
hvorugt liðið sig neitt í framkróka,
var leikurinn því fremur daufur
og rólegur. Sérstaklega var „slen-
ið“ á Víking áberandi. Halldór
Halldórsson skoraði bæði mörkin.
IÞRÓTTIR
9