Allt um íþróttir - 01.07.1950, Síða 11
Landið finnst mér mjög hrika-
legt, en fagurt um leið og fegurra
eftir því sem ég dvelst hér lengur.
Fólkið er mjög vingjarnlegt og
þeir mörgu kunningjar, sem ég
hef eignazt, gera allt, sem þeir
geta, til að gera mér dvöl mína
hér skemmtilega og ógleymanlega.
— Hvert er álit þitt á íslénzk-
um íþróttamönnum?
Ég þekkti marga þeirra með
nöfnum, áður en ég kom hingað,
og ekki minnkaði álit mitt'á þeim,
eftir að ég kynntist þeim persónu-
lega. íslenzkir frjálsíþróttamenn
standa algerlega jafnfætis öðrum
Evrópuþjóðum, og íþróttamenn
eins og Örn Clausen, Gunnar Huse-
by, Finnbjöm Þorvaldsson, Torfi
Bryngeirsson, Guðmundur Lárus-
son, Haukur Clausen og Hörður
Haraldsson hafa varpað miklum
Ijóma á ísland og íslendinga.
Knattspymumenn ykkar virðast
ekki eins góðir og frjálsiþrótta-
mennirnir og má e. t. v. kenna því
um, að grasvelli skortir.
— Finnst þér áhugi fólksins á
íþróttum mikill hér?
Ég er alveg viss um, að hvergi
fylgist almenningur eins vel með
íþróttum almennt eins og hér.
Einnig held ég, að ísland sé eina
landið í Evrópu, þar sem frjáls-
íþróttir eiga jafnmiklum vinsæld-
um að fagna og knattspyma.
— Álítur þú íslendinga hafa
mikla möguleika á að standa sig
vel í Brússel?
Mín skoðun er sú, að Huseby
sé nokkuð viss með titilinn í kúlu-
varpi, auk þess sem örn Clausen
hefur stóra möguleika í tugþraut-
inni, verði hann heill heilsu. í
spretthlaupunum emð þið líka
nokkuð vissir með að fá menn
meðal hinna þriggja fyrstu.
— Er nokkuð sérstakt, sem þú
villt taka fram?
Þið megið gjaman segja lesend-
um ykkar, að ég vonist til að fá
tækifæri til að heimsækja ykkar
dásamlega land oft aftur. Einnig
þætti mér vænt um, ef þið vilduð
geta þess, að komið hefur opin-
bert boð um að íslendingar heim-
sæki þýzkar borgir og keppi þar
eftir EM, og er það von mín og
ósk, að úr þeirri heimsókn geti
orðið. í því sambandi vil ég geta
þess, að Reykjavík hefði stóra
möguleika á að sigra nærri því
hvaða borg sem væri í Þýzkalandi
í stigakeppni, en sumar þeirra eru
milljónaborgir.
Við kveðjum nú þennan vin-
gjarnlega unga mann og biðjum
hann að skila kveðju til þýzkra
íþróttamanna frá íslenzkum.
Úr ýmsum áttum.
Alþjóða-Ólympíunefndin sam-
þykkti á fundi sínum 16. maí
s.l. að gera fulltrúa Vestur-Þýzka-
lands að meðlimi í nefndinni og
gaf þar með löndum hans mögu-
leika á að taka þátt í næstu
Ólympíuleikum. Ákvörðun þessi
hefir sætt gagnrýni víða um Ev-
rópu.
IÞRÓTTIR
11