Allt um íþróttir - 01.07.1950, Qupperneq 16
STÓRVIÐBURÐUR!
R. Mathias kemur til íslands . . .
HEIMBMETHAFINN í TUGÞRAUT
Allar líkur benda til, að hinn
kunni tugþrautarmaður Robert
Mathias muni koma hingað í
kringum 20. þ. m., í þeim tilgangi
að keppa við Öm Clausen í tug-
þraut. Ef úr því verður, er hér
um að ræða atburð, sem vekja
mun heimsathygli.
Mathias og Öm hafa áður keppt
saman í þessari f jölþættu íþrótta-
grein eða tvisvar sinnum og sá
fyrmefndi borið sigur úr býtum
í bæði skiptin. í fyrra skiptið á
Ólympíuleikunum 1948 með 7139
. . . og keppir við Örn Clausen.
stig, en þá keppti örn í fyrsta
skipti í tugþraut og hlaut 6444
stig og bætti íslenzka metið um
nær 900 stig. í síðara skiptið í
Osló árið eftir, en þá skildu að-
eins 149 stig á milli og varð Örn
annar með 7197 stig og sigraði
hinn velþekkta bandaríska tug-
þrautarmann Irving Mondschein.
Frægð Arnar fór víða fyrir þetta
mikla afrek, en hann lét ekki við
þetta eitt sitja. Rúmum mánuði
seinna keppti hann um Norður-
landameistaratitilinn og sigraði
auðveldlega og enn á nýju meti —
7259 stig. Eftir fyrri dag þrautar-
innar hafði hann hlotið 4147 stig
og er það fjórði bezti árangur,
sem náðst hefur í heiminum.
Tugþraut er mjög erfið íþrótta-
grein eða íþróttagreinar, enda eru
þeir, sem beztum árangri ná í
henni, hinir ókrýndu konungar
frjálsíþróttamanna. Fyrir áhorf-
endur er tugþraut einhver sú
skemmtilegasta grein, sem frjáls-
íþróttir hafa upp á að bjóða, en
eins og gefur að skilja, þá eru
keppendurnir oftast mjög misjafn-
ir hvað getu snertir í hverri grein
þrautarinnar og þar af leiðandi
breytist röð keppendanna alloft og
jafnan er síðasta greinin mest
spennandi. Má í því sambandi
minna á síðasta Evrópumeistara-
mót, þegar Norðmaðurinn Holm-
16
IÞRÓTTIR