Allt um íþróttir - 01.07.1950, Page 17
vang þurfti að vera um 14 sek. á
undan Rússanum Kusnetzov í
1500 m. hlaupinu, til þess að verða
Evrópumeistari í tugþraut, en
Holmvang sigraði með 18 sek. mun.
Nærtækara er þó dæmið um Öm
Clausen, sem á sínum tíma þurfti
að vera um 8 sek. á undan Mond-
schein, til þess að verða annar 1
tugþrautinni. Hann varð 8,6 sek.
fljótari.
Þótt Öm hafi misst úr langan og
mikilvægan tíma til æfinga, ætti
hann að geta náð mjög góðum ár-
angri og að bíða ósigur fyrir Ro-
bert Mathias er ekki svo mikið
atriði, enda þótt Örn ætti að hafa
möguleika á að koma þessum f jöl-
hæfa íþróttagarpi á óvart. Til dæm-
is hefur hinn velþekkti íþrótta-
frömuður Lauri Pihkala, Finn-
landi, látið þá skoðun í ljós, að
Örn geti bætt heimsmetið um 100
stig og jafnvel fleiri eru á þeirri
skoðun. Mesta viðurkenningin á
getu Arnar er þó sú, að Mathias
skuli gera sér ferð til íslands, til
þess einungis að keppa við hann.
Hér skulu nú gefin upp beztu
afrek þessara tveggja tugþrautar-
manna til gamans fyrir væntan-
lega áhorfendur að keppni þeirra.
Mathias Örn
100 m .. 11.3 11.0
Langstökk 6.82 7.11
Kúluvarp .. 13.59 13.63
Hástökk . . 1.83 1.86
400 m . . 51.3 50,7
110 m. grindahl. . . 15.0 15.3
Kringlukast .... . . 46.00 36.13
Stangarstökk .. .. 3.50 3.40
Mathias örn
Spjótkast ......... 54.23 45.24
1500 m............. 4:58.2 4:49.4
Stig alls .......... 7556 7259
Síðan þessi grein var rituð hef-
ur Mathias sett nýtt heimsmet í
tugþraut, með 8042 stigum!
SPREYTTU ÞIG!
Svör við spurningunum á bls. 2.
1. Noregur.
2. Hann var sigurvegari í Mara-
þonhlaupi hinna fyrstu nútíma
Ólympíuleikja, sem háðir voru
í Aþenu 1896.
3. Axel V. Tulinius.
4. Rússinn Nikolai Botvinnik.
5. Knattspymufélögin Fram og
K.R.
6. Fimm, eða kúluvarp og
kringlukast Gunnars Husebys,
1500 m. Óskars Jónssonar,
stangarstökk Torfa Bryngeirs-
sonar og 100 m. Finnbjarnar
Þorvaldssonar.
7. í París.
8. Fjóra, þann fyrsta gegn Dön-
um 1946, sem við töpuðum
með 3:0, gegn Norðmönnum
1947, töpuðum með 4:2, 1948
sigruðum við Finna með 2:0,
og í fyrra töpuðum við fyrir
Dönum með 5:1.
9. Pétur Kristjánsson.
10. Á Afmælismóti Í.R. 1947
kepptu Gunnar Huseby og
Svíarnir Anton Bolinder, Ev-
rópumeistari í hástökki, og
Lennart Attervall, Evrópu-
meistari í spjótkasti.
IÞRÖTTIR
17