Fréttatíminn - 09.10.2015, Qupperneq 17
Heimir Hallgrímsson
Fæddur 10. júní 1967
Heimir er Vestmannaeyingur
í húð og hár, sonur Hallgríms
Þórðarsonar og Guðbjargar
Einarsdóttur.
Maki: Íris Sæmundsdóttir.
Börn: Hallgrímur, 19 ára, og
Kristófer, 13 ára.
Menntun: Stúdent frá
Framhaldsskólanum í Vest-
mannaeyjum 1987. Cand.
odont. frá Háskóla Íslands
1994. Lauk A-gráðu þjálf-
araprófi UEFA árið 2006.
Lauk UEFA Pro gráðu frá
enska knattspyrnusam-
bandinu 2011.
Starfsferill
Hefur rekið eigin tannlækna-
stofu í Vestmannaeyjum
frá 1994.
Heimir lék 109 leiki í
meistaraflokki á knatt-
spyrnuferli sínum. Hann
lék lengst af með ÍBV en
lauk ferlinum með KFS í 3.
deildinni.
Þjálfaði yngri flokka hjá ÍBV
1985-1998.
Þjálfaði meistaraflokk kvenna
hjá Hetti á Egilsstöðum
1998.
Þjálfaði meistaraflokk kvenna
hjá ÍBV 1999-2004.
Var yfirþjálfari hjá ÍBV 2005-
2006.
Þjálfaði meistaraflokk karla
hjá ÍBV 2007-2012.
Aðstoðarþjálfari íslenska
landsliðsins 2011-2013.
Þjálfari íslenska landsliðsins
við hlið Lars Lagerbäck
frá 2013.
grasspretta í eynni að brugðið var á
það ráð að fá sér rollur til að halda
gönguleiðunum opnum.
„Heimir mætir alltaf í smalanir.
Hann skrópaði hins vegar þegar ver-
ið var að slátra í vikunni og þóttist
hafa eitthvað betra að gera. Honum
til afsökunar var þetta ákveðið með
stuttum fyrirvara,“ segir nákominn
ættingi.
Heimir er yngsta barn foreldra
sinna og þótti líflegur krakki.
Prakkari, en allt innan siðsamlegra
marka. Hann naut góðra samvista
við aldraða ömmu sína sem barn og
þótti sú gamla stundum dekra vel
við hann.
„Heimir er mjög stríðinn. Það er
gaman að vera í kringum hann og
hann er endalaust að segja brand-
ara. Mikill húmoristi,“ segir einn
viðmælenda Fréttatímans.
„Þú vilt heldur ekki hafa hann í
hinu liðinu, hann getur verið ákveð-
inn þegar það þarf að vera það. Ef
þú lendir upp á kant við hann getur
verið erfitt að ná honum til baka. Þú
ert ekkert að fara að drulla yfir hann
og koma svo í kaffi daginn eftir.“
Eiginkonunni, Írisi Sæmunds-
dóttur, kynntist Heimir þegar hann
þjálfaði hana í fótbolta á árum áður.
Íris var afrekskona í boltanum og
síðar þjálfuðu þau saman í Eyjum.
Barna- og unglingaþjálfunin virðist
reyndar hafa gefið vel af sér fyrir
Heimi. Ekki er nóg með að þar hafi
hann lagt grunn að þjálfaraferlinum
og kynnst eiginkonunni heldur var
þar líka lagður grunnur að rekstri
tannlæknastofu hans.
„Hann kom sér vel við krakkana
til að ná þeim öllum í tannlækningar
hjá sér síðar meir. Heimir var svo
skemmtilegur að þegar kom að því
að velja sér tannlækni völdu allir
hann,“ segir einn í léttum tón.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@frettatiminn.is
nærmynd PB Helgin 9.-11. október 2015
Sætar franskar
frá McCain
Sætu kartöflurnar frá McCain eru ómótstæðilega
bragðgóðar. Þú skellir þeim í ofninn og áður en þú
veist af hefurðu töfrað fram girnilegt og gómsætt
meðlæti. Prófaðu núna!
Vinsælar hjá Íslendingum í mörg ár
Bíldshöfða 18 - 110 Reykjavík
sími: 557 9510 - www.patti.is
Opið virka daga kl. 10-18
laugard. 11-15
ÍSLENSKIR SÓFAR SNIÐNIR AÐ ÞÍNUM ÞÖRFUM
MÁL OG ÁKLÆÐI AÐ EIGIN VALI
Mósel Basel HavanaRoma
Torino
Með nýrri AquaClean tækni
er nú hægt að hreinsa nánast
alla bletti aðeins með vatni!
Erfiðir blettir eins og eftir tómatsósu, léttvín, kaffi, te, meira að
segja kúlupenna, nást á auðveldan hátt úr áklæðinu.
Áklæði