Reykjalundur - 01.06.1954, Blaðsíða 26

Reykjalundur - 01.06.1954, Blaðsíða 26
Borgþór Gunnarsson Íæknir: Framfarir í handlæknismeðferð lungnaberkla Borgþór Guimarsson, læknir, höfundur þessarar eftir- tektarverðu greinar, starfar nú sem skurðlæknir við berklaspítala í New York. Hann lauk embættisprófi í læknisfræði við Iláskóla íslands, með 1. einkunn, árið 1918. Settur héraðslæknir á Djúpavogi og Flaley um nokkurra mánaða skeið. Fór til U.S.A. 1949. Starfaði sem kandidat við Quíncy City Hospital 1949-—50. Síðan aðstoðarskurðlæknir við Boston City Hospital í 3 ár, 1950—53. Hlaut þá styrk til frek- ara skurðlæknisnáms, úr krabbameinssjóði Texasríkis. Að lokinni dvöl þar, réðst hann sem skurðlæknir að Okla- homa Sanatorium og starfaði þar, unz hann fékk þá slöðu í N. Y., sem hann gegnir nú. Borgþór nýtur mikils álits sem sérfræðingur i skurð- lækningum og hefir aflað sér mikillar reynzlu og þekk- ingar, ekki sízt í þeirri grein lækninga, sem ritgerð hans fjallar um. Á síðastliðnum 3—5 árum hafa orðið aldahvörf í lækningum lungnaberkla. í stað langvarandi hvíldarmeðferða og loftbrjósts (Pneumothorax) eru nú notaðar lyflækningar og uppskurðir á lungunum (resektion) Mögulegt er nú að losa sjúkl- inga algjörlega við lungnaberkla á tiltölu- lega skömmum tíma, með brottnámi hins sýkta hluta. Aðeins litill hluti af lungunum er skorinn í burtu undir venjulegum kring- umstæðum. Þetta er kallað „segmental resektion“, eð'a aðeins segment í daglegu tali. Strax og sjúklingur kemur inn á berkla- liæli er byrjað á lyflækningum, sem standa yfir í G eða 8 mánuði. Þessi lvf eyða berkla- bakteríunni og bólgunni, sem hún orsakar í lungunum. Þegar röntgenmynd er, sem kallað er, óbrevtt (stable) með tveggja mánaða milli- bili, eru sérstakar myndir teknar til að finna leifar (residue) sjúkdómsins. Venjulega eru þessar leifar í aftari og efri hluta lungnanna (apical-posterior seg- ment). Nú tekur skurðlæknirinn við og með samþykki sjúklingsins, sker hann þess- ar leii'ar í burtu. Eftir slíka aðgerð er sjúklingurinn í flest- um tilfellum laus við' alla berkla, en til frekara öryggis, er iyflækningum haldið áfram í 6 mánuði eða, allt í allt, eitt ár. Sjúklingurinn er svo útskrifaður og fjótlega getur hann horfið aftur að sínu fyrra starfi. Ilundruð sjúklinga ganga nú árlega und- ir þennan uppskurð. Sumir eru skornir báð- um megin (hægra og vinstra brjósthol opn- að) ef sjúkdómsleifarnar eru í báðum lung- um. Fjöldi ungra manna og kvenna ganga örugg og vongóð undir þennan uppskurð. Mörgum árum er bjargað' af lífi þessa unga fólks og þeim er forðað frá líkamslýti (höggningu), langvarandi heilsuleysi eða dauða. Hér haldast lyflækningar og handlækn- ingar í hendur, því án lyflækninga yrði 24 REYKJALUNDUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Reykjalundur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.