Reykjalundur - 01.06.1954, Blaðsíða 34
Fulltríiar á 0 Inngi S.l.B.S.
Níunda þing SÍBS
Níundii þing S.ÍB.S. var haldið að
Beykjalundi dagana 3.—5. júní í sumar.
Forseti sambandsins, Maríus Helgason,
setti þingið með ræðu. Bauð hann þing-
fulltrúa og gesti velkomna. Þá taldi hann
upp þau mál, er mest haíði verið unnið að,
síðan sambandsþing var síðast haldið. Gat
hann einkum hinna tveggja fullkomnu
vinnuskála, er reistir hafa verið að Reykja-
lundi og taldi þá beztu vinnustaði, sem
þekktust hérlendis.
Minntist hann séra Hálfdáns Helgason-
ar, prófasts að Mosfelli, er lézt s. 1. vetur,
og bað þingheim rísa úr sætum og votta
hinum látna virðingu sína.
Þórður Benediktsson kvaddi sér hljóðs
að lokinni ræðu forseta og tilkynnti þing-
heimi, að félögin að Reykjalundi, Vífils-
stöðum og Reykjavík mundu afhenda sam-
bandinu stóran silkifána að gjöf. Halldór
Þórhallsson, formaður Berklavarnar í
Reykjavík, mælti því næst nokkur orð og
afhjúpaði og afhenti forseta fánann.
A þinginu voru mættir 83 fulltrúar frá
10 sambandsdeildum. Forseti þingsins var
kjörinn Jónas Þorlærgsson, 1. varaforseti
32
HEVKJALUNDUR