Morgunblaðið - 28.03.2015, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MARS 2015
BROTTFARIR ÍMAÍ, JÚNÍ, JÚLÍOG ÁGÚST
60.000 KR.
NÁNAR Á UU.IS
BÓKAÐU SÓLINA NÚNA!
AFSLÁTTUR
BÓKUNAR
M.V. 2+2
15.000 KR.BÓKUNARAFSLÁTTURÁ MANN TIL 1. APRÍL
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Lögreglan á Sauðárkróki varar við
miklum sprungum sem myndast
hafa í Ketubjörgum í Syðri-
Bjargavík á Skaga. Lögreglan hefur
girt svæðið af og er allur aðgangur
bannaður af öryggisástæðum.
Málið kom til umfjöllunar í
byggðaráði Skagafjarðar sl. fimmtu-
dag og vakin var athygli á þessu á
vef sveitarfélagsins en þarna er vin-
sæll útsýnisstaður ferðamanna yfir
björgin og út á Skagafjörðinn.
Stefán Vagn Stefánsson, yfirlög-
regluþjónn á Sauðárkróki, sem jafn-
framt er formaður byggðaráðs, segir
sprunguna vera sérstaka að því leyti
að hún gangi þvert á landslagið á
löngum kafla, ekki bara í einu bjargi
þó að hún sé mest áberandi þar. Þar
sé bjargið í raun orðið laust frá
klettunum og geti fallið í sjó fram á
hverri stundu. Að sögn Stefáns
Vagns er þetta lausa bjarg um átta
metrar á breidd efst og 50-60 metra
hátt, en til samanburðar er Hall-
grímskirkja 73 metra há.
Stefán Vagn segir það til skoð-
unar í samráði við jarðvísindamenn
hvað beri að gera frekar, til að koma
í veg fyrir slys. Til greina komi að
sprengja lausa bjargið frá en það sé
með öllu óákveðið á þessu stigi. Fara
þurfi varlega þar sem um við-
kvæmar náttúruminjar sé að ræða.
Mikil hætta sé á hruni þegar frost
fer úr jörðu.
Hrefna Gunnsteinsdóttir, bóndi á
Ketu, segir sprungur í berginu ekki
koma sér á óvart. Þarna hafi mikið
landbrot átt sér stað í gegnum tíðina
en nú sé meiri umferð ferðamanna á
svæðinu en hún hafi nokkurn tímann
kynnst á Skaga, ekki bara á sumrin
heldur einnig líka í vetur.
„Við urðum fyrst vör við þessa
sprungu í fyrravor en síðan kom líka
sprunga hinum megin við björgin,
sem sést vel frá veginum, þannig að
þetta hefur verið að breiðast út á
stærra svæði,“ segir Hrefna.
Hún er með kartöflugarð skammt
frá sprungunni sem er nær Ketu.
„Ég var að taka upp kartöflur í
haust þegar ég sá ferðamenn koma
þarna gangandi niður eftir. Þeir
voru komnir út á nibbuna sem er
laus, og þá hætti mér að lítast á blik-
una,“ segir Hrefna en hún hefur
einnig áhyggjur af öryggi búfénaðar
á þessum slóðum.
„Þegar heitt er í veðri á sumrin og
mikil fluga þá hefur féð safnast
þarna fyrir. Ég vona bara að þetta
fari þegar klakinn fer úr jörð. Bjarg-
ið innan við gliðnar mjög hratt og
þetta er orðið sprungið alveg niður í
mitt bergið,“ segir Hrefna, sem von-
ar að fólk virði lokanir lögreglu.
Hætta á að laust
bjarg falli í sjó fram
Lögreglan á Sauðárkróki hefur girt af svæði við Ketu-
björg á Skaga Varasamar sprungur fyrir vegfarendur
Ljósmynd/Lögreglan á Sauðárkróki
Keta Eins og sjá má er stærðarinnar bjarg að losna frá klettunum við Ketu
á Skaga. Svæðið hefur verið girt af en þarna er eftirsóttur útsýnisstaður.
Ketubjörg sprungin
Grunnkort/Loftmyndir ehf.
Keta
Sauðárkrókur
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Knattspyrnu- og golfvellir koma al-
mennt mun betur undan vetri í ár en í
fyrra þegar gras kól víða. Ef ekki
verður slæmt páskahret má búast við
að vellirnir taki snemma við sér í ár.
Sveppasýking í Laugardal
Þrátt fyrir að útlitið sé um
margt betra en í fyrra hrjáir sveppa-
sýking þjóðarleikvanginn, Laugar-
dalsvöll. „Ástandið á vellinum er
slæmt eins og er út af sveppasýk-
ingu en við erum búnir að eitra fyrir
sveppina. Sýkta svæðið er kannski
30-40% af vellinum og grasið þar er
að öllum líkindum dautt núna,“ segir
Kristinn V. Jóhannsson, vall-
arvörður á Laugardalsvelli.
Hann segir að almennt sé
ástand grasvalla mun betra en í
fyrra. „Ég held að vellirnir séu al-
mennt ágætir. Þetta er allt annað
en í fyrra. Veturinn hefur kannski
verið leiðinlegur fyrir flesta en hvað
vellina varðar hefur ekki myndast
sami klaki og var í fyrra. Ég hef
heyrt af einhverri klakamyndun á
sumum völlum en ekkert í líkingu
við það sem var 2014,“ segir Krist-
inn.
Eins og staðan er nú er ekki út-
lit fyrir að neitt knattspyrnulið spili
á vellinum í sumar eftir að Fram
ákvað að spila heimaleiki sína á
gervigrasvelli í Úlfarsárdal. „Það
hefur alltaf verið eitt lið á vellinum
þannig að þetta verður í fyrsta skipti
í tugi ára sem ekkert lið spilar þar,“
segir Kristinn. „Það verða engu að
síður bikarleikir á vellinum, lands-
leikir í júní og Smáþjóðaleikarnir,“
segir Kristinn.
Hvaleyrin lítur vel út
Bjarni Þór Hannesson, vallar-
stjóri á golfvelli Keilis á Hvaleyri í
Hafnarfirði, segir útlitið gott á vell-
inum. „Þetta er allt annað en í fyrra.
Eini höfuðverkurinn er sá að það er
töluvert meiri frostlyfting en verið
hefur. Jarðvegurinn verður eilítið
ójafn fyrir vikið og þarf tíma til að
setjast en þetta er ekki annað 2014,
það er bókað mál,“ segir Bjarni Þór.
Spurður segir hann að það
versta sem gæti komið fyrir núna
væri mikið frost í auða jörð. „Ef
smásnjór verður yfir í páskahretinu
fyrirsjáanlega verður þetta í góðu
lagi,“ segir Bjarni Þór.
Grasvellir líta mun
betur út en í fyrra
Morgunblaðið/Golli
Hvít hula Sveppasýking hrjáir Laugardalsvöll sem stendur. Engu að síður er útlit grasvalla mun betra en í fyrra.
Ekkert lið í Laugardalnum Frostlyfting á Hvaleyrinni
Íslenska veðráttan hafði áhrif á flug-
samgöngur í gær en flugvél Iceland-
air, sem var á leið til Keflavíkur frá
London, þurfti að lenda á Reykjavík-
urflugvelli vegna slæmra brautarskil-
yrða í Keflavík en hálka var á flug-
brautinni. Eftir stutta dvöl í Reykja-
vík var vélinni flogið aftur til Kefla-
víkur þar sem farþegum var hleypt
frá borði. Vélin var því tveimur tím-
um á eftir áætlun; hún átti að lenda í
Keflavík klukkan fjögur en lenti þar
ekki fyrr en sex.
Einkaflugvél í vandræðum
Þá barst stjórnstöð Landhelgis-
gæslunnar tilkynning frá Flugstjórn-
armiðstöðinni í Reykjavík, rétt fyrir
klukkan fimm í gær, um að lítil einka-
flugvél væri í vandræðum vegna élja-
gangs og sambandsleysis en síðast
var vitað um vélina á flugi nálægt
Borgarnesi.
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar
hafði samstundis samband við TF-
LIF, þyrlu Landhelgisgæslunnar
sem var að koma inn til lendingar á
Reykjavíkurflugvelli eftir æfingaflug.
Áhöfn þyrlunnar áætlaði að taka elds-
neyti í Reykjavík og fara svo strax af
stað til móts við flugvélina en stað-
setning hennar var ekki nákvæmlega
þekkt. Jafnframt boðaði Landhelgis-
gæslan viðbragðsaðila vegna slíkra
atvika í samhæfingarstöðina í Skóg-
arhlíð.
Um klukkan 16:43 fékk stjórnstöð
Landhelgisgæslunnar tilkynningu frá
Flugstjórnarmiðstöðinni í Reykjavík
um að þeir hefðu náð sambandi við
flugvélina. Stefndi hún þá á flugvöllinn
á Sauðárkróki og bjóst við að lenda kl.
16:55. Flugvélin var svo tilkynnt lent á
Sauðárkróki heilu og höldnu á áætl-
uðum tíma. Var þyrlan þá afturkölluð
sem og aðrir viðbragðsaðilar.
Veðrið veldur
vandræðum í flugi
Viðbúnaður hjá Landhelgisgæslunni